814. spurningaþraut: Lárviðarstig í boði — úr kvikmyndageiranum

814. spurningaþraut: Lárviðarstig í boði — úr kvikmyndageiranum

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið? Lár­við­ar­stig er svo í boði fyrir þá sem muna hver leik­stýrði mynd­inni.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Kvik­myndin, sem spurt var um hér að ofan, var gerð eftir skáld­sögu sem ... hver skrif­aði?

2.  Til eru ber sem eru eitruð eða alt­ént vara­söm. Til dæmis segir sagan að smá­fuglar ger­ist hér sumir heldur drukknir þegar þeir háma í sig ofþroskuð og jafn­vel gerjuð ber á haustin. Hvaða ber eru talin svo mögnuð?

3.  Önnur víðkunn ber, sem reyndar vaxa ekki hér á landi nema þá í gróð­ur­húsum, þau eru gul á litin og mjög vin­sæl til átu, enda flutt inn í stórum stíl. Þau eru líka ein­hver stærstu ber sem um getur, og svo stór og óvenju­leg að margir vita ekki einu sinni að fræði­lega er um ber að ræða. Hvaða ber eru þetta?

4.  Í hvaða landi starfar frétta­stofan TASS?

5.  Á Íslands­meist­ara­móti karla í fót­bolta þetta árið hefur eitt lið stungið önnur af og er sem stendur langefst. Hvaða lið er það?

6.  Bhutan heitir ríki eitt sem er um það bil einn þriðji af Íslandi að stærð. Á korti virkar Bhutan þó minna enda er það hálf­part­inn kramið milli tveggja mun stærri ríkja. Hver eru þau? — og hafa þarf bæði rétt.

7.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Varsjá?

8.  Og við hvaða fljót stendur hún?

9.  Mila Kunis er úkra­ínskur Gyðingur sem fædd­ist 1983 og flutti til Banda­ríkj­anna sjö ára gömul. Þar hefur Kunis komið undir sig fót­unum sem ... hvað?

10.  Ursus maritimus heitir á lat­ínu dýr eitt sem ber stundum fyrir augu Íslend­inga. Hvað köllum við þetta dýr?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða borg er þessi mynd tekin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Friðrik Erlings­son.

2.  Reyniber.

3.  Bananar.

4.  Rúss­landi.

5.  Breiða­blik.

6.  Indland og Kína.

7.  Póllandi.

8.  Vislu.

9.  Leikkona.

Mila Kunis

10.  Hvíta­björn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fyrri myndin er úr Benjamín dúfu, sem Gísli Snær leik­stýrði.

Seinni myndin er frá París.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár