„Ég þurfti bara að klára mig“

Helga Lilja Ósk­ars­dóttir flúði í neyslu til að deyfa van­líðan sína en einnig til að finna félags­skap fólks sem var utan­gátta eins og hún. Það var ekki fyrr en hún átt­aði sig á því hversu algjör­lega neyslan tók af henni stjórn­ina að hún varð hrædd og fann hjá sér eigin vilja til að verða edrú. Áður hafði hún hins vegar misst stjórn­ina algjör­lega og farið á bólakaf.

„Síðan þegar ég dett í það, í síð­asta skiptið, þá gjör­sam­lega missti ég stjórn­ina aftur.“ Þetta segir Helga Lilja Ósk­ars­dóttir um bar­daga sinn við neysl­una sem hún flúði í til að deyfa van­líðan sína en einnig til að finna félags­skap. Eftir að hafa orðið edrú þegar hún gekk með barnið sitt missti hún fót­anna aftur og sökk djúpt.

Helga ólst upp við erf­iðar aðstæður í æsku. For­eldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára gömul en faðir hennar glímdi við alka­hól­isma og þung­lyndi meðal ann­ars. Á pabba­helgum varð Helga því vör við alka­hól­is­mann. Til að byrja með bjó faðir hennar hjá for­eldrum sínum eftir skiln­að­inn og segir Helga að þá hafi hlut­irnir alla jafna verið í lagi. Eftir að faðir hennar kynnt­ist konu og hóf að búa með henni hafi hins vegar sigið á ógæfu­hlið­ina. Sú kona hafi líka glímt við fíkn eins og faðir Helgu og tölu­vert mikil neysla hafi því verið inni á heim­il­inu. „Þetta var samt ekki hið týpíska dópista­líf­erni, þau voru rosa­lega góð en veik.“

Þrátt fyrir veik­indi föður hennar voru þau feðgin náin segir Helga. „Það er alveg gaman stundum að vera í kringum fullt fólk þegar maður er krakki. Það var oft alveg næs en oft líka slæmir tímar.“

„Þetta var samt ekki hið týpíska dópista­líf­erni, þau voru rosa­lega góð en veik“

Móðir Helgu kom út úr skápnum þegar hún var átta ára. „Í dag er full­kom­lega eðli­legt að vera sam­kyn­hneigður en fyrir þessum 22 árum þá var það öðru­vísi. Mamma sagði mér að ein­hver vin­kona hennar ætli að búa með okkur núna og þær ætli að vera par. Ég hafði komið inn að biðja um epli og sagði bara: Okei, en má ég fá epli. Mér var alveg sama.“

Helga lýsir því að þegar fór að spyrj­ast út að móðir hennar væri farin að búa með konu og spurn­ing­arnar þar að lút­andi hafi byrjað, hafi hún áttað sig á því að þetta væri öðru­vísi en alla jafna. „Krakk­arnir í skól­anum voru alltaf að spyrja mig hvort mamma mín væri lessa og hvort pabbi minn væri þá hommi líka,“ segir Helga og bætir við að á þessum tíma hafi þetta þótt mjög skrítið.

Vandamálinu frestað

Lífið var því flókið og erfitt fyrir Helgu sem barn. Hún skipti um skóla og pass­aði ekki vel inn í hóp­inn þar. „Ég tók bara upp þessa grímu, ég ætla að vera töffari af því að ég ætla ekki að leyfa neinum að sjá hvað ég er brotin.“ Vanlíðan hennar varð til þess að hegðun hennar og frammi­staða í skóla varð sífellt verri, sem end­aði með því að henni var komið í fóstur utan heim­ilis, og utan borg­ar­innar, í Borg­ar­firði. Sú ákvörðun var tekin í sam­ráði við barna­vernd­ar­nefnd, ástandið hafi verið orðið þannig. „Ég var bara hætt að mæta í skól­ann og ef ég mætti í skól­ann var ég bara ríf­andi kjaft. Það var verið að grípa inn í til að aðstæð­urnar yrðu ekki verra. Það hjálp­aði fullt en aðstæð­urnar urðu verri seinna meir, þannig að það var bara verið að fresta vanda­mál­inu.“

Helga segir að það besta sem fyrir hana hafi komið hafi verið að vera send í fóstur, árin þar hafi verið frá­bær og henni liðið vel. Enn hafi þó komið til árekstra í skóla enda and­inn í sveita­skól­anum á Klepp­járns­reykjum verið annar en hún átti að venj­ast og hún ekki passað inn enda hafi hún ekki haft áhuga á „sam­kvæm­is­dansi eða hestum“ eins og hún orðar það.

Fráfall föður olía á eld

En þó henni hafi liðið betur í Borg­ar­firð­inum segir Helga að van­líðan hennar hafi verið svo djúp­stæð að hún hafi verið til­búin að leita hvaða leiða sem var til að láta sér líða betur. Hún hafi fyrst drukkið áfengi í kringum tólf ára aldur og síðan prófað að neyta kanna­bis­efna um þrettán, fjórtán ára ald­ur­inn. Í lok 10. bekkjar, eftir að hún kom heim til Reykja­víkur úr fóstri í Borg­ar­firð­inum, hafi hún farið að reykja kanna­bis dag­lega. 

Helga lýsir því að með því að með þessu hafi hún bælt niður til­finn­ingar. „Hjá mér var eðli­legt að hugsa: Ef þetta getur gert þetta fyrir mig, hvað getur þá næsti hlutur gert fyrir mig. Maður er bara alltaf að leit­ast eftir því að líða betur og betur.“

„Þá tekur bara við ein­hver brú­tal neysla þar sem er ekki klukku­tíma stopp“

Faðir Helgu féll frá þegar hún var sextán ára. Þrátt fyrir hans bresti segir hún að þau feðgin hafi verið náin og and­lát hans hafi verið henni áfall. „Þá varð mér bara alveg sama um allt og þá tekur bara við ein­hver brú­tal neysla þar sem er ekki klukku­tíma stopp. Það var bara stopp þegar maður varð að sofa. Ég held að það lengsta sem ég hafi verið vak­andi hafi verið allt upp í tíu daga sko. Það er erfitt en þegar þú ert kom­inn á þriðja dag get­urðu sigrað heim­inn. Þú ert beyglaður og rugl­aður en þú hefur ekki vit­neskj­una um að þú sért beyglaður og rugl­aður.“

Helga fiktaði við ýmis efni en man það óglöggt. „Ég man hins vegar eftir því þegar ég not­aði e-pillu fyrst, þá byrj­aði bolt­inn að rúlla.“ Neyslan var bæði til að deyfa til­finn­ingar en líka leit að félags­skap. Félags­skap ann­arra sem ekki pössuðu inn, rétt eins og Helga upp­lifði með sjálfa sig.

Varð edrú barnshafandi

Helga var í neyslu um nokkra hríð, allt þar til hún varð ólétt af sínu fyrsta barni, þá sautján ára gömul. Þegar hún upp­götv­aði að hún væri með barni fór hún í með­ferð og var edrú á meðan að á með­göng­unni stóð og í nokkra stund eftir að barnið kom í heim­inn. Ein­hverjum mán­uðum eftir að Helga átti barnið sitt fór hún að fara á djam­mið um helgar og þá voru jafn­vel allar helg­arnar undir. Hún bjó heima hjá móður sinni sem sinnti barn­inu. Nokkru síðar fór hún inn í AA-sam­tökin og var þá edrú í um tíu mán­uði.

„Síðan þegar ég dett í það, í síð­asta skiptið, þá gjör­sam­lega missti ég stjórn­ina aftur. Það var samt bara svona tveir mán­uðir,“ segir Helga. Hún átt­aði sig strax á því að hún væri að fara mjög djúpt í neyslu. „Ég dett algjör­lega inn í þetta, það er eng­inn milli­vegur. Eftir fyrsta kvöldið hringi ég í mömmu mína og segi: Ég er dottin í það, ég þarf ein­hvern veg­inn að koma mér inn í með­ferð og þú verður að vera með barnið á meðan því ég ætla ekki að vera í kringum hann í þessu ástandi.“

Helga komst aftur inn í með­ferð um tveimur mán­uðum síðar. Fram að því var hún í neyslu og seg­ist hafa ákveðið með sjálfri sér að fara á fullt í neysl­una, að eiga ekk­ert eftir. „Ég þurfti bara að klára mig, og það tókst alveg.“ Á þessu tíma­bili tók hún meðal ann­ars efni í æð.

Spurð hvað hafi verið erf­ið­ast í þessu ferli öllu svarar Helga að það hafi verið að koma út úr neysl­unni. Allur hennar vin­skapur hafi verið bund­inn við neyslu­fé­laga og þegar hún til að mynda varð ólétt og hætti að nota þurfti hún að segja skilið við þá alla og stóð vina­laus eftir.

Eftir að hafa kom­ist í með­ferð á þessum tíma, árið 2012, hefur Helga haldið sig á beinu braut­inni. Hún segir að ástæðan fyrir því að hún hafi kom­ist úr neyslu hafa verið að þá hafi hana virki­lega langað það sjálfa, að verða edrú. „Ástæðan var sú að það hræddi mig hvað þetta tekur stjórn­ina algjör­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár