Viðskipti Vinnslustöðvarinnar og Moshenskys: „Ég veit bara ekkert um það“

Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son segir að einu við­skipti Vinnslu­stöðv­ar­innar í Eyjum við Alex­ander Mos­hen­sky séu með fisk frá Íslandi. Hann hafnar öllum sögu­sögnum um lán­veit­ingar frá Hví­trúss­anum til Vinnslu­stöðv­ar­innar og tengdra félaga og segir að hann njóti engra sér­kjara í við­skipt­unum. Engin vit­neskja hafi legið fyrir um skatta­skjóls­við­skipti félaga Mos­hen­skys.

Viðskipti Vinnslustöðvarinnar og Moshenskys: „Ég veit bara ekkert um það“
Engin vit­neskja um skatta­skjól Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, eða Binni í Vinnslu­stöð­inni eins og hann er yfir­leitt kall­aður, seg­ist ekki hafa vitað neitt um notkun Alex­and­ers Mos­hen­kys á skatta­skjólum eins og Tortólu og Seychelles-eyjum í við­skiptum útgerð­ar­innar við hann. Mynd: mbl / Óskar Pétur Friðriksson

Fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyjum, Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, segir að fyr­ir­tækið hafi enga vit­neskju um aflands- og skatta­skjóls­við­skipti hví­trúss­neska kaup­sýslu­manns­ins Alex­and­ers Mos­hen­sky. Hann segir að fyr­ir­tækið teng­ist þeim ekki með nokkrum hætti. Sig­ur­geir, sem yfir­leitt er kall­aður Binni í Vinnslu­stöð­inni, segir að eina sam­band Vinnslu­stöðv­ar­innar við fyr­ir­tæki Mos­hen­kys sé að selja þeim upp­sjáv­ar­fisk.

Þegar blaða­maður Stund­ar­innar segir Binna að eign­ar­haldið á fyr­ir­tækja­neti Mos­hen­skys, sem Vinnslu­stöðin hefur verið að selja fisk­inn til, endi í skatta­skjól­inu Seychelles í Ind­lands­hafi, segir Binni að hann hafi ekki vitað það. „Ég veit bara ekk­ert um það og hef ekk­ert verið að velta því fyrir mér.“

Stundin hefur fjallað um Íslands­tengsl Mos­hen­skys síð­ustu miss­erin. Hann hefur meðal ann­ars átt í við­skiptum við Vinnslu­stöð­ina síð­ast­liðin 20 ár. „Hann kom fyrst hérna til Vest­manna­eyja árið 2003 og hefur átt í miklum við­skiptum við Ísland í langan tíma. Það er ekk­ert leynd­ar­mál og hefur aldrei …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár