Dómsmálaráðherra í þyrlu Landhelgisgæslunnar: „Skutluðu okkur í leiðinni“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra stað­festir í sam­tali við Stundina að hann hafi notað tæki­færið, tekið þátt í æfingu Land­helg­is­gæsl­unnar í Breiða­firði og fengið í leið­inni far með þyrlu gæsl­unnar frá Bíldudal yfir á Stykk­is­hólm. Rík­is­end­ur­skoðun hefur gagn­rýnt að ráð­herrar nýti loft­för í eigu eða leigu stofn­ana rík­iss­ins.

Dómsmálaráðherra í þyrlu Landhelgisgæslunnar: „Skutluðu okkur í leiðinni“
Fékk far með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra fékk far með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar frá Bíldudal til Stykk­is­hólms, og tók um leið þátt í æfingu með gæsl­unni. Fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, var harð­lega gagn­rýnd fyrir að fá far með gæsl­unni á fund. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Já, ég not­aði tæki­færið og tók þátt í æfingu sem þeir voru að fara í og þeir skutl­uðu okkur í leið­inni hér yfir í Breiða­fjörð,“ segir Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra aðspurður að því hvort hann hafi þegið far með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar fyrr í dag. 

Jón segir að hann hafi verið að heim­sækja emb­ætti dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins á Vest­fjörðum og hafi ætlað að gera slíkt hið sama á Snæ­fells­nesi. „Þeir voru hérna á svæð­inu og hentu okkur yfir í leið­inni,“ segir hann. Þá seg­ist hann hafa tekið þátt í æfingu Land­helg­is­gæsl­unnar áður en þyrl­unni var á end­anum lent í Stykk­is­hólmi.

Í byrjun árs gagn­rýndi Rík­is­end­ur­skoðun að ráð­herrar og aðrir ráða­menn hefðu flogið með loft­förum Land­helg­is­gæsl­unnar. Sérstaka gagn­rýni fékk Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, fyrir að hafa fengið far með gæsl­unni úr hesta­ferð með fjöl­skyld­unni á fund í Reykja­vík. „Tæki stofn­un­ar­innar eru örygg­is­bún­aður sem keyptur er eða leigður sem tæki til lög­gæslu og björg­un­ar­starfa til hags­bóta fyrir almenn­ing en ekki til einka­er­inda,“ segir í skýrsl­unni.

„Þeir skutl­uðu okkur í leið­inni hérna yfir í Breiða­fjörð“

Í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Rík­is­end­ur­skoð­unnar í tengslum við úttekt­ina segir að þar þyki „eðli­legt“ að nota loft­för og skip stofn­un­ar­innar við fram­kvæmd emb­ætt­is­er­inda dóms­mála­ráð­herra, sem er æðsti yfir­maður gæsl­unnar. Rík­is­end­ur­skoðun var ósam­mála þeirri túlkun ráðu­neyt­is­ins og sagði hana „umdeil­an­lega“ og að hún fengi tæp­ast stað­ist. „Ef þyrlur þurfa að bregð­ast við útköllum á meðan æfingum eða eft­ir­lits­ferðum stendur og far­þegi eða far­þegar eru um borð er nauð­syn­legt að lenda þyrl­unni á hent­ugum stað til að hleypa þeim frá borði. Það hefur því óhjá­kvæmi­lega nei­kvæð áhrif á hversu fljót þyrlan er á vett­vang,“ segir í skýrsl­unni.

Jón segir hins vegar að hann hafi farið eftir „þeim reglum sem Rík­is­end­ur­skoðun setur um þessi mál.“ Ekkert óeðli­legt sé við að hann hafi þegið far með gæsl­unni: „Ég er bara hér í emb­ætt­is­er­indum og það vill svo til að þeir eru hér á svæð­inu, meðal ann­ars á æfingu. Ég er að kynna mér starf­semi þyrlu­sveitar gæsl­unnar og tek þátt í æfingu með þeim hér. Það er bara ekk­ert óeðli­legt við þetta.“

Við vinnslu úttekt­ar­innar bað Rík­is­end­ur­skoðun dóms­mála­ráðu­neytið að leggja drög að verk­reglum varð­andi það far fyrir ráð­herra. Reglur ráðu­neyt­is­ins gera dóms­mála­ráð­herra kleift að fá far þegar hann er að sinna emb­ætt­is­störfum í krafti stöðu sinnar sem æðsti yfir­maður Land­helg­is­gæsl­unnar.

Rík­is­end­ur­skoðun árétt­aði að var­huga­vert væri að túlka ákvæði laga um ábyrgð og yfir­stjórn ráð­herra yfir til­teknum stofn­unum á þann veg að ráð­herra hefði heim­ild til að „nýta eða ráð­stafa mannauði, eignum og öðru lausafé stofn­un­ar­innar í þágu emb­ætt­is­ins síns frá degi til dags“. Rík­is­end­ur­skoðun lagði til að settar yrðu við­mið­un­ar­reglur um afnot æðstu stjórnar rík­is­ins af loft­förum í eigu eða leigu stofn­ana rík­is­ins og yrði afnot einkum látin taka til „flutn­inga vegna óvæntra atburða eða form­legra athafna á vegum æðstu stjórnar rík­is­ins en öll einka­not verði óheimil“.

Ásgeir Erlends­son, upp­lýs­inga­full­trúi Land­helg­is­gæsl­unnar, segir að það sé ekk­ert nema eðli­legt að dóms­mála­ráð­herra kynni sér starf­semi stofn­un­ar­innar og að fyrr­nefnd gagn­rýni Rík­is­end­ur­skoð­unar eigi þar af leið­andi ekki við í þessu til­felli. Ólíkt ráð­herr­anum segir hann að eft­ir­lits­ferðin og æfingin hafi haf­ist um leið og ráð­herr­ann gekk um borð í þyrl­una í Bíldudal og staðið þar til að henni var lent í Stykk­is­hólmi. Ákveðið hefði verið í lok síð­ustu viku að ráð­herr­ann myndi fylgj­ast með æfingu.

Ráð­herran gaf ekki færi á því að svara því sjálfur hvenær hann ákvað að taka þátt í æfingu Land­helg­is­gæsl­unnar og fá í leið­inni far með þyrl­unni yfir í Breiða­fjörð­inn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Bárður Jónsson skrifaði
    Þrefalt Djé.
    Dómgreindarleysi í Dómsmálaráðuneytinu og allt í boði X-D
    2
  • VÁ
    Vigfús Ásbjörnsson skrifaði
    Þetta er gert til að draga umræðuna frá Íslandbankaþjófnaðnum.
    1
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Glæsilegt......
    0
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Ráðherrarnir halda áfram að skíta uppá bak og reyna jaframt að skíta yfir Banka ruglið hjá BB.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár