Áslaug Arna viðurkennir mistök

Dómsmála­ráðherra segir það hafa verið mistök að fljúga með þyrlu Landhelgis­gæslunnar úr fríi á Suður­landi á fund í Reykjavík og til baka. Hún hyggst ekki þyggja sams konar boð aftur og segir tilefni til að endur­skoða verklag.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Dóms­mála­ráð­herra seg­ist hafa skiln­ing á gagn­rýni vegna þyrlu­ferð­ar­innar. Mynd: xd.is

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir dómsmála­ráðherra segir það hafa verið mistök að þiggja flug með þyrlu Landhelgis­gæslunnar á fund úr og aftur í hestaferð sem hún var í á Suður­landi. Þetta kemur fram í frétt RÚV. 

Stundin greindi frá því í gær að þyrlan hefði flutt Áslaugu Örnu úr hestaferð sem hún var í með föður sínum á fundinn „Að lifa með veirunni“ í Reykjavík og til baka fimmtudaginn 20. ágúst. Ráðherra var ekki meðal ræðumanna á fundinum, en hlýddi á ræður og yfirgaf fundinn þegar hann var rétt um hálfnaður. Fundinum var streymt á netinu. Flogið var með hana til baka í hesta­ferðina og fór þyrlan þaðan í Borgar­fjörð í næsta verkefni.

Sjaldgæft er að Landhelgis­gæslan fljúgi með ráðherra og þegar það gerist tengist það oftast störfum stofnunarinnar eða utan­ríkismálum, svo sem heim­sóknum erlendra ráðamanna eða varnar­æfingum. Áslaug Arna og dómsmála­ráðuneytið hafa ekki svarað fyrir­spurn um málið sem Stundin sendi í gær.

„Forstjóri Landhelgis­gæslunnar lagði þetta til og var vegna verkefnis á þessu svæði og fullvissaði mig um það að þetta hefði hvorki áhrif á verkefni eða flug­áætlun og hefði engan auka­kostnað eða fyrirhöfn í för með sér,“ sagði Áslaug Arna við RÚV. „En það er ljóst að þetta hefur tíðkast þegar það passar inn í verkefni Gæslunnar og það voru mistök af minni hálfu að samþykkja þetta boð.“

Aðspurð um hvort hún hefði skilning á gagnrýni vegna þessa sagði hún svo vera. „Já, ég skil það vel. Eftir á að hyggja hefði ég ekki átt að þiggja boðið en að sama skapi var ég fullviss um að þetta hefði engin áhrif á kostnað, verkefni, flug­áætlun né fyrirhöfn Gæslunnar.“

Áslaug sagði jafnframt tilefni til þess að endur­skoða verklag og að hún hyggðist ekki þiggja samskonar boð aftur. 

Spurningar Stundarinnar til ráðherra

1. Af hverju sótti ráðherra fundinn „Að lifa með veirunni“ fimmtudags­morguninn 20. ágúst frekar en til dæmis að fylgjast með honum netleiðis?

2. Var eitthvað annað tilefni með ferð ráðherra til Reykja­víkur?

3. Óskaði ráðherra eftir fluginu sjálf?

4. Hvenær var tekin ákvörðun um að ráðherra færi á fundinn og hvenær var tekin ákvörðun um að ferðin yrði farin með þyrlunni?

5. Telur ráðherra það rétta nýtingu á tíma, mannauð og fjármunum Landhelgis­gæslunnar að flytja ráðherra á þennan fund?

6. Telur ráðherra það rétta nýtingu á tíma, mannauð og fjármunum Landhelgis­gæslunnar að flytja ráðherra í frí?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár