Biðin eftir niðurstöðu í Laugalandsmálinu orsakar áfallastreitu

Kolbrún Þorsteins­dóttir, ein kvennana sem vistuð var á meðferðar­heimilinu Lauga­landi, segir að það að hafa greint frá ofbeldi sem hún varð fyrir þar hafi valdið áfalla­streitu. Hið sama megi segja um fleiri kvennanna. Löng bið eftir niður­stöðum rann­sóknar á meðferðar­heimilinu hefur aukið á vanlíðan kvennana.

Gagnrýnir skeytingarleysi
Gagn­rýnir skeyt­ing­ar­leysi Kolbrún segir að hún og aðrar kvenn­ana sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi upp­lifi það að fólki sé sama um það ofbeldi sem þær hafi lýst að hafi við­geng­ist á meðan á vist­un­ina stóð. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stefnt er að því að skila niður­stöðum rann­sóknar á því hvort börn sem vistuð voru á meðferðar­heimilinu Lauga­landi, áður Varpholti, hafi verið beitt ofbeldi eða sætt illri meðferð í lok apríl­mánaðar. Verða þá liðnir 14 mánuðir frá því að Gæða- og eftirlits­stofnun velferðar­mála var falið að framkvæma þá rannsókn. Áður hafði verið gefið út að stefnt væri að verklokum um síðastliðin áramót. Kolbrún Þorsteins­dóttir, ein kvennanna sem vistuð var á meðferðar­heimilinu, segir að það að greina frá ofbeldinu sem hún var beitt þar hafi orsakað verulega áfalla­streitu hjá henni og hið sama megi segja um fleiri kvennana. Hin langa bið eftir niður­stöðu rann­sóknarinnar hafi aukið enn frekar á þá vanlíðan.

Í svari frá Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála við fyrir­spurn Stundarinnar um framgang rann­sóknarinnar kemur fram, þegar spurt var um ástæðu þeirra tafa sem orðið hafa á skilum, að rýning og greining þeirra gagna sem aflað var við rann­sóknina hafi verið umfangs­meiri en gert var ráð fyrir í verk­áætlun. Það skýri þær tafir sem orðið hafi á að niður­stöðu sé skilað.

Gagnrýna skeytingarleysi í sinn garð

Í samtölum við fjölda þeirra kvenna sem vistaðar voru á meðferðar­heimilinu gagnrýna þær harðlega það sem þær upplifa sem skeytingar­leysi af hálfu Gæða- og eftirlits­stofnunarinnar í þeirra garð, sem og skort á upplýsinga­gjöf. Þannig hafi þeim ekki verið tilkynnt um það með nokkrum hætti að skil á niður­stöðum myndu tefjast svo sem orðið er og ljóst má vera. Svör við fyrir­spurnum hópsins hafi verið snubbótt og óskýr og ekkert frumkvæði hafi verið haft að því að miðla upplýsingum um gang rann­sóknarinnar til þeirra.

„Þetta gerði tauga­kerf­inu mínu eitt­hvað, minnstu áföll valda mér mik­ill van­líðan, lík­am­legum verkjum“
Kolbrún Þor­steins­dóttir

Gæða- og eftirlits­stofnun velferðar­mála neitar að upplýsa um við hverja tekin voru viðtöl við vinnslu rann­sóknarinnar. Stundin óskaði eftir svörum um hversu margar fyrr­verandi skjólstæðinga meðferðar­heimilisins hefði verið rætt, við hversu marga fyrr­verandi starfs­menn og hversu marga aðra aðila og hver tengsl þeirra hefðu verið við starfsemi Lauga­lands. Við engum af þessum spurningum, sem Stundin hefur raunar áður lagt fram, fengust svör.

Engar tillögur að aðgerðum í skýrslunni

Niður­stöðum rann­sóknarinnar verður skilað skriflega til félags- og vinnu­markaðs­ráðuneytisins. Ekki verða settar fram neinar tillögur að aðgerðum í skýrslunni að því er segir í svörum Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála. Þar verður því til að mynda ekki lagt til að fram fari lögreglu­rannsókn teljist tilefni til. Ekki verður heldur lagt til að konurnar verði beðnar afsökunar ef niður­staða rann­sóknarinnar verður sú að konurnar hafi verið beittar ofbeldi og ekki verður gerð tillaga um að þeim verði greiddar bætur ef svo er. Einungis var kannað hvort og í hvaða tilfellum börn hafi sætt ofbeldi eða illri meðferð á meðferðar­heimilinu, auk þess sem varpa á ljósi á meðferðar­starfið og eftirlit með því.

Kolbrún Þorsteins­dóttir er ein sex kvenna sem stigu fram í Stundinni, í janúar 2021, og lýstu því ofbeldi sem þær hefðu verið beittar meðan þær voru vistaðar á Lauga­landi. Kolbrún segir að eftir að hún steig fram hafi henni liðið eins og sigurvegara, verið stolt af sjálfri sér fyrir að segja frá ofbeldinu. Eftir því sem frá hafi liðið hafi það hins vegar haft veruleg neikvæð áhrif á hana. „Þetta gerði tauga­kerfinu mínu eitthvað, minnstu áföll valda mér mikill vanlíðan, líkamlegum verkjum þar með talið. Þetta hefur undið þannig upp á sig að ég hef glímt við mjög mikla áfalla­streitu síðustu mánuði. Ég geri ráð fyrir að þurfa að minnka við mig vinnu og reikna með að hafa samband við VIRK starfs­endur­hæfingu og leita eftir aðstoð þar. Ég er að bíða eftir að komast til sálfræðings sem er sérhæfður í áföllum sem birtast með þessum líkamlegu einkennum.“

„Við hefðum allar þurft á sál­fræði­með­ferð að halda“
Kolbrún Þor­steins­dóttir

Hluti kvennanna sem vistaðar voru á Lauga­landi hafa myndað með sér félags­skap á Facebook og segir Kolbrún að hún sé ekki sú eina sem glími við áfalla­streitu í kjölfar þess að umfjöllun um málið hófst. Hin langa bið eftir niður­stöðu rann­sóknarinnar hafi aukið á vanlíðan þeirra. „Mér finnst afskaplega skrýtið hversu lítið hefur verið gert í fram­haldinu af því að við vorum boðaðar í viðtöl hjá rann­sóknar­nefndinni, það hefur engin eftir­fylgni orðið, aldrei verið haft samband og engu skeitt um líðan mína eða okkar. Það hefur aldrei staðið til boða að við fengjum sálræna aðstoð, sem heldur betur hefði verið þörf á eftir að hafa rifið ofan af þessum sárum. Við hefðum allar þurft á sálfræði­meðferð að halda. Ég upplifi þetta eins og að fólki sé alvega sama, eða eins og fólki líði eins og við höfum verið að kvarta yfir engu. Við erum allar stelpurnar að spyrja okkur þessarar spurningar: Skiptir þetta engu máli?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á meðferðar­heimilinu í Varpholti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerfis­bundnu andlegu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt líkamlegu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á meðferðar­heimilinu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til forstöðu­hjóna heimilisins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­verndar­yfirvalda sem brugðust þeim.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfis­bundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi

Niður­staða skýrslu Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á meðferðar­heimilinu hafi verið beittar andlegu ofbeldi. Yfir helmingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar líkamlegu ofbeldi og fjöldi til viðbótar staðfesti að hafa orðið vitni að slíku. Barna­verndar­stofa brást hlutverki sínu.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­haldandi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á meðferðar­heimilinu Varpholti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arnþórs­syni, forstöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rannsaka á heimilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft samband við hana til að upplýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sálfræði­þjónustu,“ segir Anna María Ingveldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókninni.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár