Biðin eftir niðurstöðu í Laugalandsmálinu orsakar áfallastreitu

Kolbrún Þor­steins­dóttir, ein kvenn­ana sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, segir að það að hafa greint frá ofbeldi sem hún varð fyrir þar hafi valdið áfallastreitu. Hið sama megi segja um fleiri kvenn­anna. Löng bið eftir nið­ur­stöðum rann­sóknar á með­ferð­ar­heim­il­inu hefur aukið á van­líðan kvenn­ana.

Biðin eftir niðurstöðu í Laugalandsmálinu orsakar áfallastreitu
Gagn­rýnir skeyt­ing­ar­leysi Kolbrún segir að hún og aðrar kvenn­ana sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi upp­lifi það að fólki sé sama um það ofbeldi sem þær hafi lýst að hafi við­geng­ist á meðan á vist­un­ina stóð. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stefnt er að því að skila nið­ur­stöðum rann­sóknar á því hvort börn sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, hafi verið beitt ofbeldi eða sætt illri með­ferð í lok apr­íl­mán­aðar. Verða þá liðnir 14 mán­uðir frá því að Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála var falið að fram­kvæma þá rann­sókn. Áður hafði verið gefið út að stefnt væri að verk­lokum um síð­ast­liðin ára­mót. Kolbrún Þor­steins­dóttir, ein kvenn­anna sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu, segir að það að greina frá ofbeld­inu sem hún var beitt þar hafi orsakað veru­lega áfallastreitu hjá henni og hið sama megi segja um fleiri kvenn­ana. Hin langa bið eftir nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar hafi aukið enn frekar á þá van­líðan.

Í svari frá Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um fram­gang rann­sókn­ar­innar kemur fram, þegar spurt var um ástæðu þeirra tafa sem orðið hafa á skilum, að rýn­ing og grein­ing þeirra gagna sem aflað var við rann­sókn­ina hafi verið umfangs­meiri en gert var ráð fyrir í verk­á­ætlun. Það skýri þær tafir sem orðið hafi á að nið­ur­stöðu sé skilað.

Gagnrýna skeytingarleysi í sinn garð

Í sam­tölum við fjölda þeirra kvenna sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu gagn­rýna þær harð­lega það sem þær upp­lifa sem skeyt­ing­ar­leysi af hálfu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar í þeirra garð, sem og skort á upp­lýs­inga­gjöf. Þannig hafi þeim ekki verið til­kynnt um það með nokkrum hætti að skil á nið­ur­stöðum myndu tefj­ast svo sem orðið er og ljóst má vera. Svör við fyr­ir­spurnum hóps­ins hafi verið snubb­ótt og óskýr og ekk­ert frum­kvæði hafi verið haft að því að miðla upp­lýs­ingum um gang rann­sókn­ar­innar til þeirra.

„Þetta gerði tauga­kerf­inu mínu eitt­hvað, minnstu áföll valda mér mik­ill van­líðan, lík­am­legum verkjum“
Kolbrún Þor­steins­dóttir

Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála neitar að upp­lýsa um við hverja tekin voru við­töl við vinnslu rann­sókn­ar­innar. Stundin óskaði eftir svörum um hversu margar fyrr­ver­andi skjól­stæð­inga með­ferð­ar­heim­il­is­ins hefði verið rætt, við hversu marga fyrr­ver­andi starfs­menn og hversu marga aðra aðila og hver tengsl þeirra hefðu verið við starf­semi Lauga­lands. Við engum af þessum spurn­ingum, sem Stundin hefur raunar áður lagt fram, feng­ust svör.

Engar tillögur að aðgerðum í skýrslunni

Nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar verður skilað skrif­lega til félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Ekki verða settar fram neinar til­lögur að aðgerðum í skýrsl­unni að því er segir í svörum Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála. Þar verður því til að mynda ekki lagt til að fram fari lög­reglu­rann­sókn telj­ist til­efni til. Ekki verður heldur lagt til að kon­urnar verði beðnar afsök­unar ef nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar verður sú að kon­urnar hafi verið beittar ofbeldi og ekki verður gerð til­laga um að þeim verði greiddar bætur ef svo er. Einungis var kannað hvort og í hvaða til­fellum börn hafi sætt ofbeldi eða illri með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­inu, auk þess sem varpa á ljósi á með­ferð­ar­starfið og eft­ir­lit með því.

Kolbrún Þor­steins­dóttir er ein sex kvenna sem stigu fram í Stund­inni, í jan­úar 2021, og lýstu því ofbeldi sem þær hefðu verið beittar meðan þær voru vistaðar á Lauga­landi. Kolbrún segir að eftir að hún steig fram hafi henni liðið eins og sig­ur­veg­ara, verið stolt af sjálfri sér fyrir að segja frá ofbeld­inu. Eftir því sem frá hafi liðið hafi það hins vegar haft veru­leg nei­kvæð áhrif á hana. „Þetta gerði tauga­kerf­inu mínu eitt­hvað, minnstu áföll valda mér mik­ill van­líðan, lík­am­legum verkjum þar með talið. Þetta hefur undið þannig upp á sig að ég hef glímt við mjög mikla áfallastreitu síð­ustu mán­uði. Ég geri ráð fyrir að þurfa að minnka við mig vinnu og reikna með að hafa sam­band við VIRK starfsend­ur­hæf­ingu og leita eftir aðstoð þar. Ég er að bíða eftir að kom­ast til sál­fræð­ings sem er sér­hæfður í áföllum sem birt­ast með þessum lík­am­legu ein­kennum.“

„Við hefðum allar þurft á sál­fræði­með­ferð að halda“
Kolbrún Þor­steins­dóttir

Hluti kvenn­anna sem vistaðar voru á Lauga­landi hafa myndað með sér félags­skap á Facebook og segir Kolbrún að hún sé ekki sú eina sem glími við áfallastreitu í kjöl­far þess að umfjöllun um málið hófst. Hin langa bið eftir nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar hafi aukið á van­líðan þeirra. „Mér finnst afskap­lega skrýtið hversu lítið hefur verið gert í fram­hald­inu af því að við vorum boð­aðar í við­töl hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni, það hefur engin eft­ir­fylgni orðið, aldrei verið haft sam­band og engu skeitt um líðan mína eða okkar. Það hefur aldrei staðið til boða að við fengjum sál­ræna aðstoð, sem heldur betur hefði verið þörf á eftir að hafa rifið ofan af þessum sárum. Við hefðum allar þurft á sál­fræði­með­ferð að halda. Ég upp­lifi þetta eins og að fólki sé alvega sama, eða eins og fólki líði eins og við höfum verið að kvarta yfir engu. Við erum allar stelp­urnar að spyrja okkur þess­arar spurn­ingar: Skiptir þetta engu máli?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár