Stundin og Eigin Konur hefja samstarf

Þætt­irnir Eigin Konur, undir stjórn Eddu Falak, verða birtir á Stund­inni. Rit­stjórn Stund­ar­innar kemur að heim­ild­ar­vinnu og umfjöll­unum í tengslum við þætt­ina.

Stundin og Eigin Konur hefja samstarf

Rit­stjórn Stund­ar­innar og Eigin Konur, undir stjórn Eddu Falak, hafa hafið form­legt sam­starf.

Í sam­starf­inu felst að rit­stjórn Stund­ar­innar veitir ráð­gjöf og aðstoð við heim­ild­ar­vinnu í und­ir­bún­ingi þátta Eigin kvenna. Þá birt­ast þættir Eigin Kvenna áskrif­endum Stund­ar­innar til jafns við styrkj­endum Eigin Kvenna á Patreon. Þeir þættir Eigin Kvenna sem eru opnir öllum verða frum­sýndir á Stund­inni.

Markmiðið valdefling og opnun umræðunnar

Í Eigin Konum hefur verið lögð áhersla á að veita brota­þolum rödd og rými, sem sam­ræm­ist áherslum Stund­ar­innar um vald­efl­ingu. Stundin var stofnuð árið 2015 með því mark­miði að starf­rækja fjöl­miðil sem væri fyrst og fremst háður almanna­valdi og almanna­valdi, út frá þeim for­sendum að vald hefur áhrif á hvaða upp­lýs­ingar eru veittar, og að upp­lýs­ingar hafa áhrif á ákvarð­anir, upp­lýstar ákvarð­anir eru und­ir­staða far­sældar sam­fé­lags­ins og hags­munir valds­ins eru ekki alltaf sömu og almenn­ings.

Áhersla hefur verið lögð á rann­sókn­ar­blaða­mennsku og var rit­stjórn Stund­ar­innar í heild sinni valin blaða­menn árs­ins fyrir umfjöllun um upp­reist æru barn­a­níð­inga. Á þeim tíma sem Stundin hefur starfað hefur mið­ill­inn hlotið flestar til­nefn­ingar einka­rek­inna miðla til blaða­manna­verð­launa. Rit­stjóri Stund­ar­innar er Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og rann­sókn­ar­rit­stjóri Helgi Seljan.

Fjöldi fólks hefur treyst Eigin Konum og Eddu Falak fyrir frá­sögnum sínum af erf­iðri reynslu frá því hlað­varps­þætt­irnir hófu göngu sína árið 2021 og hafa við­tölin haft afger­andi áhrif á þjóð­fé­lags­um­ræð­una. Í sam­starfi við Eigin Konur mun fram­lag Stund­ar­innar liggja í langri reynslu af  rann­sókn­ar­blaða­mennsku. Eftir atvikum mun Stundin fylgja eftir umfjöll­unum.

Hótanir eftir sambandsslit

Í fyrsta þætti Eigin kvenna eftir sam­starf, sem er sá 71. í röð­inni, segir Edda Pét­urs­dóttir frá and­legu ofbeldi í kjöl­far sam­bands­slita þar sem hún sætti stöð­ugu áreiti frá fyrr­ver­andi kærasta sínum. Á fyrsta árinu eftir sam­bands­slitin fékk hún fjölda tölvu­pósta og smá­skila­boða frá mann­inum þar sem hann ýmist lof­aði hana eða rakk­aði niður, krafð­ist við­ur­kenn­ingar á því að hún hefði ekki verið heið­ar­leg í sam­band­inu og hót­aði að birta kyn­ferð­is­legar myndir og mynd­bönd af henni ef hún færi ekki að vilja hans. Stundin birtir hluta skila­boð­anna í frétt í sam­starfi við Eigin konur.

Hlað­varps­þætt­irnir Eigin Konur verða því fram­vegis birtir á vef Stund­ar­innar, til við­bótar við miðla Eigin Kvenna. Styrkj­endur Eigin Kvenna á Patreon og áskrif­endur Stund­ar­innar fá aðgang að fjórum þáttum auka­lega í hverjum mán­uði. 

Áskrift að Stund­inni má fá hér. Styrkja má Eigin Konur hér á Patreon og fylgja hér á Instagram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Þetta samstarf er aldeilis frábær hugmynd !!!
    2
  • Eiríkur Jónsson skrifaði
    Þá er líklega best að afskrá sig, hafandi verið áskrifandi Stundarinnar frá upphafi
    -3
    • BD
      Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
      Akkúrat það fyrsta sem ég hugsaði
      -3
    • GAG
      Guðni Arnar Guðnason skrifaði
      Sammála, segi upp áskrift í dag. Algjörlega fáránleg ákvörðun Stundarinnar.
      -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár