Covid veldur heilaskemmdum

Ný rann­sókn bendir til þess að hluti heil­ans rýrni meira hjá þeim sem fengið hafa Covid en þeim sem hafa sloppið.

Covid veldur heilaskemmdum
Sýnataka Talið er að meira en 70% þjóð­ar­innar hafi fengið Covid-19. Mynd: Heiða Helgadóttir

Rannsókn sem felur í sér að tæp 800 manns fóru í heilaskönnun hefur bent til þess að jafn­vel milt smit af Covid-19 leiðir til rýrn­unar á heil­anum.

Rýrnunin mælist aðal­lega á svæði heil­ans sem teng­ist lykt­ar­skyni, en önnur virkni virð­ist líka hafa orðið fyrir áhrifum. Meg­in­nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar er þrí­þætt: Aukin rýrnun í þykkt gráa efn­is­ins í heil­anum, meiri vefja­skemmdir í þeim hluta heil­ans sem fer með lykt­ar­skyn og meiri almenn rýrnun heil­ans eftir Covid-smit.

Rann­sóknin var birt í tíma­rit­inu Nature og er talin sú stærsta sinnar teg­undar og sú fyrsta þar sem fólk var látið und­ir­gang­ast heilaskanna fyrir og eftir smit. Meg­in­nið­ur­staðan var að þau 401 sem fengið höfðu Covid reynd­ust vera með meiri rýrnun í gráa efn­inu í heil­anum en þau 384 sem ekki höfðu fengið Covid. Þátt­tak­endur í rann­sókn­inni fóru í heilaskanna bæði áður en þau fengu Covid og að með­al­tali fjórum og hálfum mán­uði eftir smit. Það kemur sér­fræð­ingum á óvart hversu mikil rýrnun á heil­anum varð við Covid-smit, en flestir þátt­tak­endur í rann­sókn­inni fengu aðeins mild ein­kenni.

Allt að 2% rýrnun heilavefs

Eðlilegt er að fólk missi 0,2% til 0,3% af gráa efn­inu á minnistengdum svæðum heil­ans eftir því sem það eld­ist. Rann­sóknin leiddi í ljós að þau sem höfðu smit­ast af Covid urðu fyrir 0,2% til 2% við­bót­arrýrnun í heil­anum. 

Þátt­tak­endur fóru einnig í próf sem kanna átti vits­muna­lega skerð­ingu sem teng­ist öldrun, virkni og vinnslu­hraða heil­ans. Prófið fól í sér að tengja slóð milli punkta með tölum og bók­stöfum. Þau sem höfðu orðið fyrir mestri rýrnun á heila­vef stóðu verst að vígi í próf­inu.

„Þar sem frá­vikin í heila þátt­tak­enda virð­ast að hluta tengj­ast missi á lykt­ar­skyni er hugs­an­legt að end­ur­heimt þess hafi í för með sér að frá­vikin verði minna áber­andi eftir því sem tím­inn líður,“ segir Gwenaëlle Douaud, pró­fessor í tauga­fræði við Oxford-háskóla í sam­tali við CNN. Hún lagði til að þátt­tak­endur færu aftur í skanna að tveimur árum liðnum til þess að kanna hversu við­var­andi heilaskað­inn er.

„Það kemur mér á óvart hversu mikið glat­að­ist og hversu almennt það er,“ hefur New York Times eftir Serena Spudich, tauga­fræð­ingi hjá Yale School of Medicine, sem kom þó ekki að rann­sókn­inni. „Ég hefði ekki bús­ist við að sjá svona mikla hlut­falls­breyt­ingu.“

Rýrnun heila­efnis er helst grein­an­leg í dreka­fell­ingum (e. parahippocampal gyrus) og hægri tótta­renn­i­s­berki (e. orbitofron­tal cortex). Þau svæði heil­ans eru ekki aðeins tengd lykt­ar­skyni, heldur einnig minni og annarri færni. Covid-smit­aðir stóðu sig þó ekki verr á minnis­prófi en aðrir. Einn hluti heil­ans hefur hins vegar aldrei eina virkni, heldur fjöl­þætta, og er orsaka­sam­hengið of flókið til þess að greina end­an­lega hver áhrifin eru af rýrnun á einum stað.

Óljós atriði

Meðal ann­marka rann­sókn­ar­innar eru að rann­sak­endur höfðu ekki upp­lýs­ingar um ein­kenni þátt­tak­enda og hvort þau smit­uðu hefðu orðið fyrir langvar­andi covid-veik­indum (e. long covid) eða svo­kall­aðri heila­þoku. Þá er ekki vitað hversu vel rann­sóknin á við yngstu ald­urs­hópana, þar sem þátt­tak­endur voru á aldr­inum 51 til 81 árs, en áhrifin á vit­ræna getu greindust meiri eftir aldri. Loks er óljóst hversu við­var­andi áhrifin á heil­ann eru.

Til að varpa ljósi á áhrifin væri hægt að gera frek­ari rann­sóknir, eins og að greina hvort hefð­bundin flensa og aðrar kór­óna­veirur hafi sam­bæri­leg áhrif á heil­ann. Að auki á eftir að gera rann­sóknir á hegðun sem tengja mætti breyt­ingum á heil­anum. 

„Það er eitt­hvað sem gerð­ist í heil­anum á þessu fólki,“ segir Spudich, tauga­sér­fræð­ingur við Yale, við New York Times.

Alls hafa 40% Íslend­inga nú smit­ast af Covid svo sannað þyki með sýna­töku. Talið er þó að mun fleiri hafi fengið Covid, eða um 70% lands­manna. 68 manns eru á sjúkra­húsi með Covid-19, ekki öll þó vegna Covid, og 6 eru smituð á gjör­gæslu.

Rann­sókn­ina má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Mér hefur tekist að forðast smit, hingað til, og mun halda því áfram eins lengi og mér framast er unnt. Það kann einhver að spyrja manneskju eins og mig, eitthvað á þessa leið:
    - "Af hverju ertu að passa þig, þú getur ekki komist hjá því að smitast og veikjast af COVID-19?"

    Mitt svar er svona:
    - Já, það er rétt, mér tekst ekki að forðast sjúkdóminn endalaust, en því lengur sem mér tekst að forðast hann, því meiri líkur eru á fleiri meðferðar- og lyfjaúrræðum ásamt sífellt fleiri rannsóknarniðurstöðum er segja til um afleiðingar og áhættuþætti. Svo kemur að því að tíðni smita lækkar og þá minnka líkurnar á að smitast að sama skapi.

    Farið varlega og takið ábyrgð á eigin heilsu! Hjálpumst að við að verja þá sem eru í sérstakri áhættu; fólk með undirliggjandi sjúkdóma og aðra sem eru viðkvæmir fyrir því að veikjast illa.
    2
  • BS
    Bylgja Sigurjónsdóttir skrifaði
    Úff ! Ferlega er ég orðin þreytt á endalausum “fréttum” af covid !

    Allt svo óljóst með afleiðingar.Samkvæmt rannsóknum.
    Meira dramað alltaf .


    Rólegir kúrekar.!
    -4
  • Mummi Týr skrifaði
    Hvernig kemur þá næsta ríkistjórn til með vera skipuð eftir hjarðofnæmi og nú er komin skýring á af hverju slógan Framsóknar virkaði svona vel í haust....
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár