KSÍ: Ekkert landslið mun leika við Rússa

Knattt­spyrnu­sam­band Íslands hefur ákveðið að snið­ganga kapp­leiki við Rússa vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu.

KSÍ: Ekkert landslið mun leika við Rússa
Snið­ganga Rússa Landslið íslands í knatt­spyrnu munu ekki mæta Rússum né Hvít-Rússum á meðan á hern­að­inum í Úkraínu stendur. Mynd: AFP

Stjórn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands ákvað á fundi sínum nú fyrir stundu að ekk­ert íslenskt knatt­spyrnu­lands­lið muni leika við lands­lið frá Rúss­landi á meðan á hern­aði Rússa í Úkraínu stendur. Það sama verður látið gilda um lands­lið Hvíta-Rúss­lands vegna stuðn­ings þeirra við inn­rás­ina.

Ákvörð­unin var tekin á fyrsta fundi nýrrar stjórnar, sem kjörin var um liðna helgi. Ákvörðun um að ekki verðir leikið við Rússa nær meðal ann­ars til þeirra leikja sem framundan eru í Þjóða­deild Knatt­spyrnu­sam­bands Evrópu (UEFA) en til stóð að karla­lands­liðið mætti Rússum í júlí. Engu skiptir, segir í yfir­lýs­ingu KSÍ, þó rúss­neska liðið leiki ekki undir nafni eða fána Rúss­lands. Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bandið (FIFA) gaf út að Rússum væri óheim­ilt að leika á heima­velli, með áhorf­endum, undir fána eða nafni Rúss­lands en að öðru leyti hefur ekki verið tekin ákvörðun um frek­ari aðgerðir gegn Rússum.

Þá munu íslensk lands­lið heldur ekki mæta Hvít-Rússum í Hvíta-Rúss­landi á meðan á hern­að­inum stendur, í ljósi stuðn­ings Hvíta-Rúss­lands við hernað Rússa. Nær sú ákvörðun meðal ann­ars til leiks kvenna­lands­liðs­ins sem fram átti að fara í Hvíta-Rúss­landi í mars­mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár