Er nú verið að skipuleggja nýja „árás á Gleiwitz“?

„Árásin á Gleiwitz“ aðfar­arnótt 1. sept­em­ber 1939 var blekk­ing Þjóð­verja til að rétt­læta árás þeirra á Pólland

Er nú verið að skipuleggja nýja „árás á Gleiwitz“?
Þýskir her­for­ingjar sýna blaða­mönnum lík „pól­skra“ árás­armanna“ að morgni 1. sept­em­ber 1939.

Síðla kvölds 31. ágúst 1931 réð­ist vopn­aður hópur pól­skra her­manna og þjóð­ern­is­sinna inn í útvarps­sendi­stöð í bænum Gleiwitz rétt við landa­mæri Póllands og Þýska­lands suður í Slesíu.

Pól­verjarnir brutu sér leið inn í sendi­stöð­ina, læstu þýska tækni­menn niðri í kjall­ara og einn Pól­verj­anna sett­ist við hljóð­nema og útvarp­aði um nágrennið pólskum áróðri, en mikil spenna hafði þá verið millum Pólverja og Þjóð­verja allt sum­arið.

Ekki höfðu Pól­verjarnir þó langan tíma til að vinna myrkra­verk sína því nú komu á stað­inn hug­prúðir þýskir her­menn og náðu að hrekja Pól­verj­ana burt og drepa þá flesta. Síðan köll­uðu Þjóð­verjar á blaða­menn, bæði þýska og einnig banda­ríska og sýndu þeim verksum­merki.

Staða mála í sept­em­ber 1939.

Pól­verjarnir sem höfðu verið skotnir í gagnárás Þjóð­verja á útvarps­sendi­stöð­ina voru allir klæddir pólskum ein­kenn­is­bún­ingum svo ber­sýni­lega hafði verið um að ræða her­menn í opin­berum erinda­gjörðum.

„Og hafi ein­hverjir efast um þann ofstopa sem Pól­verjar hafa sýnt Þjóð­verjum að und­an­förnu, þá er hér komin sönnun þess,“ sögðu þýsku her­menn­irnir við blaða­menn­ina.

Líkin voru að vísu flest óþekkj­an­leg þar sem þessir pólsku her­menn höfðu ber­sýni­lega flestallir verið skotnir í and­litið, en Þjóð­verjar gátu þó bent blaða­mönnum á lík Franciszek Honioks, sem var Pólverji búsettur í Þýska­landi sem var öllum kunnur á svæð­inu fyrir að hafa haldið stíft fram mál­stað Pólverja í deil­unum þetta sumar.

Honiok hafði senni­lega verið ein­hvers konar leið­sögu­maður pólsku inn­rás­armann­anna en látið sjálfur lífið.

Honiokhefur verið kall­aður „fyrsta fórn­ar­lamb síð­ari heims­styrj­aldar“.

Og þetta var ekki eina árás Pólverja á þýskar bæki­stöðvar þetta kvöld, sögðu Þjóð­verjarnir við blaða­menn­ina. Um það bil tugur árása hafði verið gerður af sama tagi og árásin í Gleiwitz. Sem betur fer tókst alls­staðar að hrekja hina pólsku árás­ar­menn á brott en mann­fall var tölu­vert í liði beggja.

Þýsku her­for­ingj­arnir hristu höf­uðið þegar þeir lögðu þetta allt saman fyrir blaða­menn­ina.

Þetta sýnir hví­líkir ofstopa­menn Pól­verjar eru, sögðu þeir. Einmitt vegna þess­ara árása hafði Adolf Hitler for­ingi Þjóð­verja neyðst til að grípa til gagn­ráð­staf­ana nú strax í morg­unsárið 1. sept­em­ber.

Þýskur her hafði í sjálfs­varn­ar­skyni ráð­ist á nokkrum stöðum yfir landa­mærin, ráð­inn í að koma í veg fyrir fleiri grimmd­ar­árásir Pólverja.

Útvarps­sendi­stöðin í Gleiwitz

Við megum þakka fyrir for­ingj­ann, sögðu her­for­ingj­arnir. Hann lætur ekki vaða yfir okkur.

Og þar með hófst sókn þýskra her­sveita inn í Pólland.

Þetta átti í upp­hafi að heita leið­angur til að verj­ast ágangi Pólverja og koma í veg fyrir árásir þeirra, en end­aði með algjöru her­námi Póllands nokkrum vikum síðar.

En það sem hér skiptir máli er að „árás Pólverja á Gleiwitz“ var til­bún­ingur Þjóð­verja sjálfra. Þeir höfðu safnað saman pólskum ein­kenn­is­bún­ingum með hjálp iðn­rek­and­ans Oskars Schindlers (sem seinna varð frægur fyrir að bjarga Gyðingum úr klóm dauða­sveita Hitlers), sótt slatta af föngum í fanga­búð­irnar í Dachau og víðar, klætt þá í pólsku bún­ing­ana og síðan drepið þá með eit­ur­sprautum.

Þar næst skotið þá í and­litið svo þeir þekkt­ust ekki.

Honiok var hand­tek­inn 30. ágúst og fluttur til Gleiwitz þar sem hann var svo drep­inn líka en þó ekki skot­inn í and­litið, því hann átti einmitt að þekkj­ast.

Kunnur fyrir stuðn­ing sinn við Pólverja sem hann var.

Naujokstók þátt í mörgum skít­verkum fyrir Þjóð­verja í stríð­inu, m.a. að því er talið er morð­inu á danska prest­inum og rit­höf­und­inum Kaj Munk 1944.

Adolf Hitler hafði rúmri viku fyrr kynnt fyrir her­for­ingjum sínum mark­miðin með árásinni á Pólland, sem hann var þá búinn að ákveða. Hann sagði her­for­ingjum sínum að þeir skyldu sýna algjört mis­kunn­ar­leysi og hvorki hika við að drepa konur né börn.

Og hann bætti við:

„Ég mun sjá okkur fyrir tylli­á­stæðu [fyrir árásinni] í áróð­urs­skyni. Það skiptir engu máli hversu trú­verðug hún verður. Sig­ur­veg­ar­inn er aldrei spurður hvort hann segi satt.“

SS-for­ing­inn Reinhard Heydrich mun hafa ann­ast skipu­lagn­ingu „árás­ar­innar á útvarps­sendi­stöð­ina“ í Gleiwitz en sá sem sá um sjálfa fram­kvæmd­ina var Alfred Naujoks, frægur þorp­ari sem tveim mán­uðum seinna kom við sögu í annarri blekk­ing­ar­að­gerð sem ég skrif­aði um í Stundina fyrir nokkru og má lesa um hér.

Það fór sem Hitler spáði — ekki margir trúðu því í raun og veru að Pól­verjar hefðu verið að verki í Gleiwitz og þeim öðrum stöðum sem „Pól­verjar“ réð­ust á aðfar­arnótt 1. sept­em­ber 1939.

En það skipti engu máli. Þessi blekk­ing­ar­að­gerð hafði samt skilað sínu hlut­verki við að ræsa stríðs­vélar ein­ræð­is­herr­ans.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár