Fór ekki sami maður af vettvangi

Það var fyrir til­viljun sem Haf­steinn Sveins­son ákvað að fæða fugl­ana við Tjörnina en þetta er þriðji vet­ur­inn sem hann gerir það helst alla daga.

Fór ekki sami maður af vettvangi

Fyrir þremur árum renndi ég hérna niður að Tjörn með eitt óskorið brauð sem var orðið of gam­alt í ísskápnum hjá mér. Ég fór með það niður að Tjörn svo það færi ekki til einskis. Þá gerði ég mér grein fyrir því hvers konar hugur var hér við Tjörnina. Ég fór ekki sami maður af vett­vangi.

Svo ég tók mig til og hef gefið fugl­unum í þrjá vetur. Ég geri það yfir­leitt dag­lega ef það er stillt veður. Ef það er hávað­arok þá sleppi ég því vegna þess að brauð­mol­arnir hverfa í vind­inn. Á öllum góð­viðr­is­dögum reyni ég að gefa þeim. Þetta eru svo ban­hungr­aðar verur hér við hlið­ina á okkur og engu sinnt. Það liggur við að maður tár­felli þegar maður horfir á hvað þetta eru hungr­aðir fuglar hérna.

Eins og ég segi þá er þetta þriðji vet­ur­inn sem ég gef þeim nán­ast á hverjum ein­asta degi allan vet­ur­inn. Þeir þekkja mig orðið það ótrú­lega vel að ég hef staðið mig að því að kalla grá­gæs af eggjum til að koma upp að fótum mér til að þiggja brauð. Það er ótrú­legt. Villta grá­gæs. Svona er þetta, lífið er marg­slungið og skrítið, það er það.

Brauðið fæ ég í bak­arí og stór­mörk­uðum. Í Garðabæ fæ ég brauð. Það er heil­mikil vinna að ná í brauð, þetta eru svo margir svangir munnar. Allt klár­ast. Alveg sama hvað þú kemur með, allt klár­ast það á auga­bragði.

Ég er fæddur Rang­æ­ingur og ólst upp í Rangár­þingi, þannig að ég var strax í æsku bund­inn nátt­úr­unni sterkum böndum. Í gegnum tíð­ina hef ég séð hvers konar undur líf­ríkið er í kringum okkur. Svo þroskast maður með árunum og skilur betur til­ver­una í kringum sig heldur en á æsku­ár­unum, það er bara þannig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár