656. spurningaþraut: Hvað hét keisarafrú ein í Miklagarði?

656. spurningaþraut: Hvað hét keisarafrú ein í Miklagarði?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fyrir utan þre­menn­ing­ana í Vest­ur­porti er einn utan­að­kom­andi höf­undur líka skrif­aður fyrir hand­riti Ver­búð­ar­innar. Hver er það?

2.  Höf­und­ur­inn sá fjall­aði í fáeinum minn­inga­bókum um upp­eldi sitt í til­teknum söfn­uði hér­lendis, sem er ansi umdeildur, meðal ann­ars vegna skoð­ana sinna á hvað leyfi­legt sé við lækn­is­að­gerðir. Hvaða söfn­uður er það?

3.  Hversu margir sentí­metrar eru í einni tommu? Svarið þarf ekki að vera hár­ná­kvæmt.

4.  Hvað þýðir orðið hjör, eins og til dæmis í nafn­inu Hjör­leifur?

5.  Í hvaða sæti lentu Íslend­ingar á Evr­ópu­mót­inu í hand­bolta á dög­unum?

6.  En hverjir unnu mótið?

7.  Hvað hefur Vivienne Westwood feng­ist við í líf­inu svo að eftir hefur verið tekið?

8.  Hvernig bók­menntir fjall­aði Katrín Jak­obs­dóttir einkum um áður en hún lagði fyrir sig stjórn­mál?

9.  Við hvaða inn­haf stendur borgin Vla­di­vostok? Takið eftir orð­inu inn­haf.

10.  Einu sinni var frú ein í Mikla­garði, eður Kon­stant­ínópel. Hún var gift einum keis­ara og móðir ann­ars. Hún þótti svo vel kristin að hún var gerð að dýr­lingi aust­ur­róm­versku kirkj­unnar, og löngu seinna var eyja nokkur látin heita í höf­uðið á frúnni. Þar and­að­ist svo þriðji keis­ar­inn enn síðar. Hvað hét konan?

***

Auka­spurn­ing sú hin síð­ari:

Sú 11 milljón manna borg sem hér sést að neðan var lengi lítt kunn öðrum en heima­mönnum. Það hefur nú breyst. Hvaða árborg er þetta? Ef þið eruð að leysa þraut­ina í tölvu, smellið þá á mynd­ina, þá sést borgin betur.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mikael Torfason.

2.  Vottar Jehóva.

3.  Nákvæmt svar er 2,54 en rétt tel ég vera 2,5—3.

4.  Sverð.

5.  Sjötta.

6.  Svíar unnu.

7.  Hún er tísku­hönn­uður.

8.  Glæpa­sögur.

9.  Jap­ans­haf. Orðið Aust­ur­haf er líka á kreiki, einkum í Kóreu.

10.  Helena. Hér er vísað til eyj­ar­innar St.Helenu, þar sem Napóleon dó.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni sveifla karlar sér í súmó-glímu.

Á neðri mynd­inni er borgin Wuhan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár