Fyrri aukaspurning:
Hver er konan hér að ofan?
***
Aðalspurningar:
1. Hversu margir eru dómarar Hæstaréttar?
2. En hve mörg eru hjörtu kolkrabbans?
3. Hver er dómsmálaráðherra?
4. Hver sendi á dögunum frá sér lag um Tenerife og söng þar meðal annars: „Ég get ekki meira Þórólfur.“
5. Í hvaða ríki Bandaríkjanna er stórborgin Houston?
6. Hvar á Íslandi er Stöðvarfjörður?
7. Hver lék aðalkvenhlutverkið í gamanmyndinni Some Like It Hot árið 1959?
8. Hákarl er verkaður á tvo vegu og hvað nefnast afurðirnar? Hafa verður hvorttveggja rétt!
9. Hvaða starfi gegnir Ragnar Þór Ingólfsson um þessar mundir?
10. Hvað heitir leiðtogi Norður-Kóreu — fullu og réttu nafni?
***
Seinni aukaspurning:
Hvaða lógó er þetta?
***
Svör við aðalspurningum:
1. Sjö.
2. Þrjú.
3. Jón Gunnarsson.
4. Bríet.
5. Texas.
6. Austurlandi, Austfjörðum.
7. Marilyn Monroe.
8. Glerhákarl og skyrhákarl.
9. Formaður VR.
10. Kim Jong-un.
***
Svör við aukaspurningum:
Á efri myndinni er leikkonan Helga Braga.
Á neðri myndinni er lógó Chevrolet bíla.
Athugasemdir