654. spurningaþraut: Hér er spurt um fleðulega gellu með gassagang

654. spurningaþraut: Hér er spurt um fleðulega gellu með gassagang

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn hér til vinstri? Þið fáið jafn­framt STASI-stig ef þið vitið hvað hinn heitir?

****

Aðal­spurn­ingar:

1. Á BSÍ í Reykja­vík er nú enda­stöð fyrir flug­rútu og ýmsar aðrar sam­göngur. En hvað þýðir skamm­stöf­unin BSÍ?

2.  Hversu löng skyldi vera leiðin frá BSÍ og út að flug­stöð­inni á Mið­nes­heiði? Eru það 37 kíló­metrar, 47 kíló­metrar, 57 kíló­metrar, 67 kíló­metrar eða 77 kíló­metrar?

3.  Og flug­stöðin sú arna, eftir hverjum heitir hún?

4.  Hvað hét geysi­vin­sæll sjón­varps­þáttur Hermanns Gunn­ars­sonar á sínum tíma?

5.  Hvað nefnd­ist sú fleðu­lega gella sem þar birt­ist ein­lægt með gassa­gangi nokkrum?

6.  Og hver fór með það hlut­verk?

7.  Hvaða fjöl­menna Asíuland ætlar að reisa sér nýja höf­uð­borg á næstu árum?

8.  Hvaða fjöl­menna Suður-Amer­íku­land gerði einmitt það fyrir um 60 árum — reisti nýja höf­uð­borg og flutti þangað alla stjórn­sýslu sína?

9.  Þann 17. júní 1976 voru 17 Íslend­ingar sæmdir hinni íslensku fálka­orðu. Þar af voru átta manns sem gegndu allir sama starf­inu undir sama hatti, þótt á ögn mis­mun­andi vett­vangi væri. Þessir menn höfðu þótt vinna sín verk af slíkri prýði síð­ustu fjögur árin að þeir máttu heita þjóð­hetjur, þótt sumir þeirra væru vissu­lega fræg­ari en aðrir. Hvaða karlar voru þetta?  

10.  Inn úr hvaða firði gengur Djúpavík á Ströndum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bif­reiða­stöð Íslands.

2.  47 kíló­metrar.

3.  Leifi Eiríks­syni.

4.  Á tali með Hemma Gunn.

5.  Elsa Lund.

6.  Laddi.

7.  Indónesía.

8.  Brasilía.

9.  Skip­herrar Land­helg­is­gæsl­unnar sem fengu orð­una fyrir frammi­stöðu sína í þorska­stríðum við Breta.

10.  Reykja­firði.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karlinn á efri mynd­inni — sá til vinstri — er Gor­bat­sjov. Sá til hægri er Erich Honecker leið­togi Austur-Þýska­lands.

Konan á neðri mynd­inni er Björk.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár