Er heimili staður eða tilfinning?

Martin Ferdin­and og Yevgeny Dyer búa í borg, en hvenær má kalla hana heim­ili sitt?

Er heimili staður eða tilfinning?

Á kaffi­húsi við Tjörnina eru Martin og Yev, báðir inn­flytj­endur en af ólíkum ástæðum. Martin flutti þegar tæki­færi bank­aði upp á, en Yev hafði ekk­ert val.  Móðir hans flutti hingað þegar hann var of ungur til að hafa eitt­hvað um það að segja.  Sú upp­lifun varð kveikjan að götu­ljós­mynda­verk­efni um hvað það er að vera inn­flytj­andi. 

Mynd­irnar köll­uð­ust á við þá til­finn­ingu að tapa heim­ili sínu eftir flutn­inga en líða samt aldrei eins og nýi stað­ur­inn sé heim­ilið þitt. Á meðan öll tengsl við hinn stað­inn fjara út eða rofna og þú endar milli heima. 

Martin er laga­höf­undur og flutti hingað fyrir fjórum árum.  „Þetta er góður staður þótt ég geti ekki enn með sann­fær­ingu kallað hann heim­ili mitt.“ En heim­ili er hug­tak sem þeir báðir hafa átt erfitt með að ná utan um. 

Yev talar um fjöl­breytn­ina hér. Alla þessa ólíku hópa sem hægt er að til­heyra. Þótt margir komi hingað á leið­inni eitt­hvert annað, ítrekar Martin koma margir sér þó einnig vel fyrir. Kannski sé það einmitt það sem geri heim­ili. Að finn­ast þú til­heyra og að líða vel. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár