Dagur tekur slaginn í borginni

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri til­kynnti í morgun að hann hyggð­ist gefa kost á sér til að leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar áfram. Skotárásin á bíl hans á síð­asta ári hafi haft veru­leg áhrif á hann.

Dagur tekur slaginn í borginni
Óttast ekki að missa meiri­hlut­ann Dagur seg­ist hafa ástríðu fyrir póli­tík og ótt­ist ekki að missa meiri­hlut­ann í borg­ar­stjórn. Mynd: reykjavik.is

Dagur B. Egg­erts­son mun gefa kost á sér til að leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Reykja­vík. Dagur segir að fyrir ári síðan hafi hann haft efa­semdir um að fara fram á ný, ekki síst eftir að skotið var á bíl hans utan við heim­ili hans.

Dagur greindi frá ákvörðun sinni í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 nú í morgun. Þar sagði hann að umrædd skotárás hefði haft veru­leg áhrif á hann, meiri en hann hefði viljað við­ur­kenna fyrsta kastið. Þannig hafi hann hætt að fara út að ganga á kvöldin með eig­in­konu sinni.

Spurður um hvaða mál hann myndi leggja áherslu á á nýju kjör­tíma­bili sagði Dagur mörg stór mál þegar komin af stað og nefndi þar meðal ann­ars sam­göngur og skipu­lags­mál. Dagur var spurður hvort hann hefði áhyggjur af því að úrslit kosn­ing­anna gætu orðið með þeim hætti að hann myndi þurfa að sitja í minni­hluta á næsta kjör­tíma­bili, ef til að mynda Viðreisn kysi að starfa með Sjálf­stæð­is­flokknum. Dagur sagð­ist ekki ótt­ast að sú staða gæti komið upp en hann væri þó með­vit­aður um þann mögu­leika. Hann hefði hins vegar ástríðu fyrir þát­töku sinni í stjórn­málum.

Dagur hefur setið í borg­ar­stjórn í tæp tutt­ugu ár, var fyrst kjör­inn árið 2002. Hann varð borg­ar­stjóri árið 2007 en sat aðeins í eitt­hund­rað daga þar eð meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn féll. Dagur var for­maður Borg­ar­ráðs á árunum 2010 til 2014 en hefur setið sem borgaar­stjóri frá kosn­ing­unum 2014.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Þessi fallegi Dagur. Nóg um það. Kv
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Frábært. Davíð er einfaldlega besti borgarstjóri sem Reykjavík hefur haft. Ef hann hefði ekki gefið kost á sér myndi Sjálfstæðisflokkurinn eflaust ná að mynda meirihluta. Að vísu aukast möguleikar Sjálfstæðisflokksins með brotthvarfi Eyþórs og framboði Hildar en ég held þó að það nægi ekki. Til þess er hún ekki nógu sterkur frambjóðandi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár