625. spurningaþraut: Hvaða staður leynist undir rauðum punkti?

625. spurningaþraut: Hvaða staður leynist undir rauðum punkti?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir bíó­myndin sem hér má sjá skjá­skot úr?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver skrif­aði bók­ina Lok lok og læs, sem kom út fyrir jólin síð­ustu?

2.  Í hvaða borg er leik­hús­gatan fræga Broadway?

3.  Hversu margir hlutir eru í með­al­bíl? Hér telj­ast skrúfur og boltar með. Eru það 300 hlutir, 3.000, 30.000, 300.000, 3 millj­ónir hluta eða 30 millj­ónir?

4.  Hvaða fyrr­ver­andi náms­maður í Sov­ét­ríkj­unum skrif­aði síðar um dvöl sína bók­ina Mið­viku­dagar í Moskvu?

5.  Í hvaða heims­álfu er landið Nepal?

6.  Ýmsar eyjar eru á hinum svo­nefnda Mið-Atl­ants­hafs­hrygg en aðeins eitt heilt land. Hvaða land er það?

7.  Hver leik­stýrir sjón­varps­þátta­röð­inni Svörtu sandar sem sýnd er á Stöð 2 um þessar mundir?

8.  Hvaða hljóm­sveit flutti lagið Mýr­dals­sandur fyrir um 30 árum? Nefna verður hljóm­sveit­ina sjálfa, ekki með­limi hennar.

9.  Hvaða tennis­leik­ari, sem enn er virkur, hefur unnið flest risa­mót í kvenna­flokki?

10.  Ragn­heiður Run­ólfs­dóttir varð íþrótta­maður árs­ins 1991, önnur kvenna og fyrsta konan síðan 1964. Í hvaða íþrótta­grein keppti Ragn­heiður?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þétt­býl­is­staður sá sem leyn­ist undir rauða punkt­inum?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Yrsa Sig­urð­ar­dóttir.

2.  New York.

3.  30.000.

4.  Árni Bergmann.

5.  Asíu.

6.  Ísland.

7.  Baldvin Z.

8.  GCD. Gaman er að hlusta á þetta fjöruga lag í morg­unsárið:

9.  Serena Williams. 

10.  Sundi.

***

Svar við auka­spurn­ingum:

Á þeirri efri er sena úr Hamlet.

Á þeirri neðri leyn­ist London undir rauða punkt­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár