„Sigurinn er barnabörnum mínum að þakka, þau reistu mig upp þegar ég bugaðist“

„Barna­börnin frelsuðu mig þegar ég gafst upp eftir að end­ur­upp­töku­nefndin synj­aði því að mitt mál yrði tekið upp að nýju fyrir tæpum fimm árum,“ segir Erla Bolla­dóttir sem fagnar nú nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur frá því í morgun þar sem ákvörðun nefnd­ar­innar um að hafna end­ur­upp­töku vegna dóms Erlu í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu var felld úr gildi.

„Sigurinn er barnabörnum mínum að þakka, þau reistu mig upp þegar ég bugaðist“
Stærsti sig­ur­inn til þessa Erla seg­ist hafa verið að berj­ast fyrir rétt­læti í máli sínu í 23 ár. Mynd: mbl / Eggert Jóhannesson

„Ég hef því verið að berj­ast fyrir þessu rétt­læti í næstum 23 ár og úrskurður hér­aðs­dóms í morgun er stærsti sig­ur­inn hingað til.“ Þetta segir Erla Bolla­dóttir en í morgun felldi Hér­aðs­dómur Reykja­víkur úr gildi ákvörðun end­ur­upp­töku­nefndar sem hafði hafnað end­ur­upp­töku á dómi Erlu í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.  

Mæðgur fagnaErla fagnar nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms í morgun ásamt dóttur sinni, Guð­björgu Lindu Hart­manns­dóttur.

Erla stefndi íslenska rík­inu og rík­is­sak­sókn­ara fyrir rúmum tveimur árum. Hún krafð­ist þess að úrskurður end­ur­upp­töku­nefndar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu frá árinu 2017 um að synja end­ur­upp­töku dóms hennar yrði felldur úr gildi en nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að mál allra sem sak­felldir voru árið 1980, nema Erlu, skyldu fara aftur fyrir dóm­stóla en Erla var dæmd fyrir að bera rangar sakir á menn. 

„Ég byrj­aði að leita rétt­lætis fyrir mig og fyrir okkur öll sem búum hér á Íslandi árið 1999 en þá hafði ég búið í Suður Afríku í fimm ár og var nýkomin aftur heim. Ég hef því verið að berj­ast fyrir þessu rétt­læti í næstum 23 ár og úrskurður hér­aðs­dóms í morgun er stærsti sig­ur­inn hingað til,“ segir Erla í sam­tali við Stundina. Erla var sem fyrr segir dæmd fyrir mein­særi í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu árið 1980.

Segir synjun nefndarinnar hafa verið hræðilegt áfall

Í byrjun árs 2017 hafn­aði end­ur­upp­töku­nefnd því að mál hennar yrði tekið fyrir að nýju.  Erla seg­ist lítið muna eftir þessum degi í febr­úar árið 2017 þegar nið­ur­staða nefnd­ar­innar var birt. 

„Ég var á skrif­stofu Ragnars Aðal­steins­sonar lög­manns míns og við vorum að lesa skýrsl­una og í minn­ing­unni finnst mér eins og ég hafi misst mátt­inn og runnið út af stólnum, það gerð­ist ekki en það er dökkt ský yfir minn­ingu þessa augna­bliks á skrif­stof­unni. Þetta var hræði­legt áfall,“ segir Erla.

Hún seg­ist hafa farið heim og viljað vera ein. „En fljót­lega eftir að ég kom heim hringdi dóttir mín í mig og bað mig að koma og vera hjá sér, mann­inum sínum og börnum þeirra um helg­ina. Ég var mjög langt niðri and­lega og vildi helst vera ein en svo lang­aði mig líka til að sjá barna­börnin.  Ég fór því til þeirra og gisti þar,“ segir Erla.

„Dreng­ur­inn frels­aði mig með þess­ari spurn­ingu og ég sá að lífið var meira en þessi bar­átta en að ég ætl­aði að halda henni áfram“

Hún segir að börnin hafi fengið skýr fyr­ir­mæli um að vekja hana ekki um morg­un­inn. „Þeim var sagt að ég væri að hvíla mig af því að ég væri dálítið leið. En þegar ég vakn­aði um morg­un­inn voru þau öll þrjú komin uppí og sátu til fóta í rúm­inu. Ég sé þessi kríli þrjú horf­andi á mig og ég tár­ast og þá spyr sú elsta sem þá var átta ára af hverju ég sé að gráta og ég seg­ist nú bara vera með smá tár í aug­unum. Þá segir strák­ur­inn sem var sex ára: „Amma áttu tyggjó?“ Og við það gerð­ist eitt­hvað innra með mér. Dreng­ur­inn frels­aði mig með þess­ari spurn­ingu og ég sá að lífið var meira en þessi bar­átta en að ég ætl­aði að halda henni áfram. Lífið getur líka verið tyggjó,“ segir Erla og hlær. „Ég var að bug­ast og barna­börnin reistu mig upp og ég vildi halda áfram vegna þeirra og kom­andi kyn­slóða. Það hljómar kannski dramat­ískt en þannig er það bara þetta er mikið atriði fyrir alla Íslend­inga, þannig hef ég alltaf hugsað þetta mál. Að þetta sé mál allra, ekki bara mitt en það stendur upp á mig að gera eitt­hvað í því og þegar lesið var upp dóms­orð í hér­aðs­dómi í morgun sá ég loks fyrir end­ann á því,“ segir Erla Bolla­dóttir.

Löng bar­áttaErla ræðir hér við lög­mann sinn, Ragnar Aðal­steins­son.

starétt­ar­máls­ins nr. 214/1978, 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár