Útgerðarfélagið Samherji birtir upplýsingar úr ársreikningi félags sem það á ekki

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji birtir upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingi félags­ins Samherji Holding ehf. inni á heima­síðu þess þrátt fyrir að félagið hafi hætt að til­heyra sam­stæðu Samherja árið 2018. Samherji á ekki Samherja Holding lengur heldur er eign­ar­haldið á síð­ar­nefnda félag­inu hjá stofn­endum Samherja, Þor­steini Má Bald­vins­syni og Krist­jáni Vil­helms­syni á meðan eign­ar­haldið á íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu er nú hjá börnum þeirra.

Útgerðarfélagið Samherji birtir upplýsingar úr ársreikningi félags sem það á ekki
Birta upp­lýs­ingar um félag sem er ekki í sam­stæð­unni Samherji birtir í dag upp­lýs­ingar upp úr árs­reikn­ingum erlends útgerð­ar­fé­lags sem ekki lengur er hluti af sam­stæðu útgerð­ar­innar. Þor­steinn Már Bald­vins­son er hins vegar for­stjóri beggja félag­anna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Íslenska útgerð­ar­fé­lagið Samherji á Akureyri birtir upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingum félags sem útgerðin á ekki og er ekki hluti af sam­stæðu þess. Upp­lýs­ing­arnar eru birtar á heima­síðu íslenska útgerð­ar­fé­lags­ins.  Árs­reikn­ing­arnir sem upp­lýs­ing­arnar eru birtar upp úr eru fyrir árin 2019 og 2020. 

Um er að ræða félagið Samherja Holding ehf. sem heldur utan um erlendan útgerð­ar­rekstur sem áður var hluti af Sam­herj­a­sam­stæð­unni, meðal ann­ars rekstur á Kýpur, í Þýska­landi, Banda­ríkj­unum, Englandi og Afríku. Félagið á einnig hluti í Eim­skipa­fé­lagi Íslands. Rekstri Samherja á Íslandi og rekstri Samherja erlendis var skipt upp í tvennt árið 2018. Samherji Holding hagn­að­ist um 4,3 millj­arða króna í fyrra.

Þessara reikn­inga hefur verið beðið með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu þar sem skila hefði átt árs­reikn­ingi Samherja Holding fyrir árið 2019 í síð­asta lagi ágúst í fyrra og reikn­ingum fyrir árið 2020 í ágúst á þessu ári. 

Í fyrra gerð­ist það svo að börn eig­enda stofn­enda Samherja, þeirra Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar, eign­uð­ust inn­lendan hluta Samherja, og rekst­ur­inn í Færeyjum, á meðan for­eldrar þeirra eiga áfram þann rekstur sem er inni í Samherja Holding ehf. Þetta var gert með sölu á hluta­bréfum í Samherja á Íslandi til barna þeirra Þor­steins Más og Krist­jáns. Við­skiptin með hluta­bréfin vöktu mikla athygli vorið 2020.  Meðal þess sem skipti um hendur í við­skipt­unum var umráða­réttur, meðal ann­ars sölu- og veð­setn­inga­réttur, á fisk­veiði­kvóta Samherja á Íslandi. 

„Eins og árs­reikn­ing­arnir sýna er Samherji Holding ehf. sterkt félag með mikla mögu­leika til fram­tíðar litið.“
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja

Reksturinn og eignarhaldið aðskilinn

Eftir þetta er bæði inn­lendur og erlendur rekstur sem áður var hluti af Sam­herj­a­sam­stæð­unni aðskil­inn, sem og eign­ar­haldið á þessum tveimur rekstr­ar­ein­ingum. Þrátt fyrir þetta er það útgerð­ar­fé­lagið Samherji á Íslandi sem birtir til­kynn­ingu um rekstur Samherja Holding ehf. fyrir árin 2019 og 2020 en íslenska félagið á í dag ekki nema 0,1 pró­sent af hlutafé þessa félags. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son er hins vegar for­stjóri beggja félag­anna og birtir Samherji til­vitnun í for­stjór­ann á heima­síðu sinni þar sem hann seg­ist líta björtum augum til fram­tíðar.  „Eins og árs­reikn­ing­arnir sýna er Samherji Holding ehf. sterkt félag með mikla mögu­leika til fram­tíðar litið. Efnahags- og lausa­fjár­staðan er góð og sú vinna sem ráð­ist hefur verið í á und­an­förnum mán­uðum mun skila árangri. Þrátt fyrir áföll í rekstr­inum er ég bjart­sýnn á fram­tíð­ina því hjá okkur starfar gott fólk. Samherji Holding er alþjóð­legt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki með starf­semi víða um heim. Íslend­ingar eiga að vera ófeimnir við að taka þátt í atvinnu­rekstri erlendis. Við eigum að nýta hátt mennt­un­ar­stig, þekk­ingu okkar og reynslu í fyr­ir­tækja­rekstri á erlendum vett­vangi.“ 

Af hverju Samherji velur að birta þessar upp­lýs­ingar um rekstur Samherja Holding ehf. á heima­síðu sinni, þegar fyrir liggur að félögin til­heyra ekki sömu fyr­ir­tækja­sam­stæðu lengur, liggur ekki fyrir. Stundin bíður eftir svörum um þetta frá upp­lýs­inga­full­trúa Samherja, Karli Eskli Pálssyni. 

Ekki minnst á Samherja HoldingÍ sam­stæðu­reikn­ingi Samherja er ekk­ert minnst á Samherja Holding enda hætti félagið að vera hluti af sam­stæðu Samherja árið 2018 þrátt fyrir að sama eign­ar­hald hafi verið á félög­unum þar til í fyrra. Samt birtir Samherji yfir­lit úr árs­reikn­ingum Samherja Holding.

Dráttur á skilum vegna Namibíurekstrar

Í árs­reikn­ingi Samherja Holding ehf. er rakið af hverju þessi mikli dráttur hafi orðið á skilum á árs­reikn­ingum félags­ins. Þar kemur fram að þetta sé vegna þess að rekstur félags­ins í Namibíu hafi verið til skoð­unar í kjöl­far frétta­flutn­ings um að lög­brot hafi átt sér þar stað. Um er að ræða frétta­flutn­ing Kveiks, Wikileaks, Stund­ar­innar og Al Jazeera um mútu­greiðslur Samherja og tengdra félaga til stjórn­mála­manna í Namibíu í skiptum fyrir fisk­veiði­kvóta.  Þessi Namib­íu­rekstur Samherja var hluti af sam­stæðu Samherja þar til árið 2018 þegar rekstr­inum á Íslandi og erlenda rekst­ur­inum, nema útgerð­inni í Færeyjum, var skipt í tvennt árið 2018. 

Í árs­reikn­ing­inum stendur orð­rétt um þessar tafir: „Ekki hefur enn tek­ist að stað­reyna nægi­lega vel gögn vegna útgerðar í Namibíu sem nú hefur verið aflögð og flokkuð sem slík í árs­reikn­ing­unum. Þá ríkir enn óvissa um mála­rekstur vegna fjár­hags­legra upp­gjöra sem tengj­ast rekstr­inum í Namibíu. Af þessum ástæðum gerir stjórn Samherja Holding ehf. í skýrslu sinni fyr­ir­vara um upp­gjör þess félags sem ann­að­ist starf­sem­ina þar í landi. Sama fyr­ir­vara gera end­ur­skoð­endur félags­ins í áritun sinni. Að öðru leyti er áritun á reikn­ing­ana fyr­ir­vara­laus. Fram­an­greind óvissa hefur valdið þeim drætti sem orðið hefur á gerð árs­reikn­ing­anna en stjórnin taldi mik­il­vægt að freista þess að fá sem gleggstar upp­lýs­ingar um þessa þætti áður en gengið yrði frá frá reikn­ing­unum.“ 

Átta núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja eru nú með rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna rann­sóknar emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á þessu Namib­íu­máli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár