Eignir eiganda hússins á Bræðraborgarstíg sem brann verða kyrrsettar

Eignir fyr­ir­tæk­is­ins HD verks sem átti húsið að Bræðra­borg­ar­stíg sem brann sum­arið 2020 með þeim afleið­ingum að þrír lét­ust og tveir slös­uð­ust alvar­lega verða kyrr­settar. Hæsti­réttur stað­festi í dag úrskurð Lands­réttar um kyrr­setn­ingu eign­anna.

Eignir eiganda hússins á Bræðraborgarstíg sem brann verða kyrrsettar

Eignir HD verks, eig­anda húss sem brann við Bræðra­borg­ar­stíg árið 2020, verða kyrr­settar. Það voru íbúar sem sluppu úr elds­voð­anum á og aðstand­endur þeirra sem lét­ust í brun­anum, alls sautján manns sem fóru fram á að eignir fyr­ir­tæk­is­ins yrðu kyrr­settar sem trygg­ing á kröfu þeirra um skaða­bætur. Fólkið reisir mála­til­bún­ing sinn á því að fyr­ir­tækið beri ábyrgð á að eignin hafi ekki full­nægt lög­bundnum kröfum um bruna­varnir.

Í skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar um elds­voð­ann á Bræðra­borg­ar­stíg sem gerð var opin­ber 18. des­em­ber í fyrra segir meðal ann­ars að eig­andi húss­ins á hverjum tíma hafi borið ábyrgð á ástandi þess. Honum hafi verið skylt að sækja um til­skilin leyfi vegna breyt­inga á hús­næð­inu og að tryggja við­un­andi bruna­varnir. Í skýrsl­unni kemur fram að notkun húss­ins hafi verið önnur en teikn­ingar gerðu ráð fyrir og for­sendur allt aðrar gagn­vart bruna­ör­yggi. „Húsið var í raun notað til útleigu á her­bergjum en ekki sem tvær íbúðir. Breytt notkun kall­aði á auknar bruna­varnir og eld­varn­ar­eft­ir­lit,“ segir í skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar.  

Sama dag og skýrsla HMS var birt, það er 18. des­em­ber í fyrra, fóru íbúar húss­ins og aðstand­endur þeirra sem lét­ust fram á það við sýslu­mann að eign­irnar yrðu kyrr­settar en í byrjun þessa árs synj­aði sýslu­maður þeirri kröfu fólks­ins. Málið var sent til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur til úrlausnar og þar var ákvörðun sýslu­manns felld úr gildi. Í byrjun sept­em­ber var úrskurður Hér­aðs­dóms stað­festur í Lands­rétti.

Hæsti­réttur stað­festi sem fyrr segir úrskurð Lands­réttar og lagði fyrir sýslu­mann­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að gera kyrr­setn­ingu hjá fyr­ir­tæk­inu HD verk fyrir skaða­bóta­kröfu hvers íbúa sem komst lífs af úr brun­anum og hvers og eins aðstand­enda þeirra sem lét­ust í elds­voð­anum.

Skaða­bótakrafa þeirra nemur tæp­lega 80 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár