Eigandi hússins sem brann tjáir sig: „Útlendingarnir borga en ekki Íslendingarnir“

Kristinn Jón Gíslason, eigandi HD verks ehf. sem á meðal annars Bræðr­ar­borg­ar­stíg 1, segist vera með sannanir fyrir því að einn leigjandinn hafi kveikt í húsinu. Hann segir brunann vera harmleik en vill ekki tjá sig frekar.

Kristinn Jón Gíslason
Kristinn Jón Gíslason Eigandi húss­ins sem brann seg­ist ekki hafa áhuga á að leigja Íslend­ingum. Mynd: Facebook

„Ég var bara að leigja sjálfur út herbergin. Og leigi yfirleitt útlendingum af því að ég hef ekki áhuga á því að leigja Íslendingum. Útlendingarnir borga en ekki Íslendingarnir.“ Þetta segir Kristinn Jón Gíslason í samtali við Stundina. Hann er eigandi HD verks ehf, sem á meðal annars eignina á Bræðrarborgarstíg 1 í Vesturbæ Reykja­víkur sem brann til kaldra kola í síðustu viku. Þrír létust í elds­voðanum, en talið er að um íkveikju hafi verið að ræða.

Kristinn hefur ekki viljað tjá sig við fjölmiðla um brunann hingað til, en hann segir að það sé von á frétta­tilkynningu eftir helgi þar sem hann útskýri sína hlið á málinu. Hann segist hafa undir höndum myndir og upptöku sem sýna að einn leigjandinn beri ábyrgð á elds­voðanum. „Það mætti kannski koma betur fram að því miður þá lítur allt út fyrir að maður sem greini­lega varð mjög veikur andlega kveikti í húsinu,“ segir Kristinn.

Þrír lét­ust í elds­boðaHús í Vesturbæ Reykja­víkur brann til kaldra kola 25. júní síð­ast­lið­inn. Þrír brunnu inni.

„Það er líklega staðan, að hann hafi bara kveikt í herberginu sínu og labbað út og fór upp á sendi­ráðinu, og ég er með myndband og allt sem er búið að senda mér. Þetta skal ég birta eftir helgina. Þetta er ansi órétt­látur frétta­flutningur sem er í gangi.“

Pólverjar „borga betur“

Alls eru 73 einstaklingar skráðir með lögheimili í húsinu. Aðspurður hvort fyrirtæki sæi um útleigu á herbergjum hússins svarar Kristinn neitandi. „Það var engin verkleiga eða neitt þarna, ég var bara að leigja á eigin vegum. Og ég yfirleitt leigi Pólverjum því að ég er búinn að vera að vinna með Pólverjum og flutti inn Pólverja hérna þegar ég var að byrja með staðina mína. Mér finnst þetta gott fólk til að vera og búa með. Og ástæðan fyrir því að ég leigi þeim miklu frekar en Íslendingum er bara því þeir koma betur fram, ganga betur um og borga betur.“

„Mér finnst þetta gott fólk til að vera og búa með“

Kristinn vill ekki tjá sig frekar um málið en segir að nýlegar myndir af innviðum húsins sýni hvernig það var endur­innrétt nýlega. „En eins og þetta er núna þá er mér ráðlagt af öllum að svara ekki frétta­mönnum,“ segir hann og bætir við að lokum: „En algjör harm­leikur.“

Annað hús félagsins rýmt í júní

Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðs­stjóri á höfuð­borgar­svæðinu, sagði að það hefði komið á óvart hversu ákáfur og útbreiddur eldurinn var þegar slökkviliðið mætti á staðinn. „Svo náttúru­lega þegar maður fer að rýna í þetta í dag þá kemur í ljós að húsið er einangrað með sagi að hluta til og það hefur töluvert að segja.“ Taldi hann eigendur hefðu ekki uppfyllt skyldur sínar.

Húsið að Bræðra­borgar­stíg 1 er í eigu félagsins HD verk ehf, sem aftur er í eigu félagsins H2o ehf. Það félag á Kristinn að fullu. HD verk á einnig húsið að Bræðra­borgar­stíg 3, þar sem rekið hefur verið gistiheimili sem áður hefur verið til umfjöllunar í Stundinni. Þess ber þó að geta að þegar Stundin fjallaði um gistiheimilið að Bræðra­borgar­stíg árið 2015 var félagið HD verk ehf í eigu annarra aðila en Kristins Jóns.

Þá á félagið HD verk ehf einnig fasteignir að Dalvegi 24 og 26, Hjalla­brekku 1 og Kárs­nesbraut 96-A. Í fréttum RÚV kemur fram að slökkvilið höfuð­borgar­svæðisins hafi látið rýma Dalveg 24 fyrir þremur vikum vegna ófullnægjandi bruna­varna. Efling stéttar­félag hefur haft húsið að Bræðra­borgar­stíg og einnig húsnæðið að Dalvegi til skoðunar en þar munu starfs­menn starfsmanna­leigu sem áður hét Menn í vinnu hafa haft búsetu. Hið sama á við um húsnæðið að Hjalla­brekku en þar bjuggu fjölmargir erlendir verkamenn, sem grunur lék á að væru hér á landi í vinnu­mansali hjá Mönnum í vinnu.

Auk einstaklinganna þriggja sem létust særðust þrír til viðbótar. Einn karlmaður á sjötugsaldri er í haldi lögreglu og var úrskurðaður fyrr í dag í sjö daga áfram­haldandi gæslu­varðhald á grund­velli almannahags­muna. Alþýðu­samband Íslands hefur kallað eftir ítarlegri rannsókn á málinu, en sambandið vill að atvinnu­rekendur séu kallaðir til ábyrgðar í málinu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bræðraborgarstígur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár