„Vanda þarf til verka á þessu mikilvæga og viðkvæma horni“

Borg­ar­stjóri segir að hvorki end­an­legar né ásætt­an­legar til­lögur séu komnar fram um upp­bygg­ingu á Bræðra­borg­ar­stíg þar sem mann­skæð­asti elds­voði í sögu Reykja­víkur varð í fyrra­sumar. Vanda þurfi til verka og gera megi ráð fyrir því að vinnan taki tíma.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Áskorun rúm­lega 50 nágranna Bræðra­borg­ar­stígs 1 og 3 þar sem borg­ar­yf­ir­völd eru m.a. hvött til að eign­ast lóð­irnar og byggja þar í takti við byggð á svæð­inu, hefur verið lögð fyrir und­ir­bún­ings­fund borg­ar­ráðs og send öllum borg­ar­full­trúum til upp­lýs­ingar og kynn­ingar.

Fyrir um átján mán­uðum varð mann­skæð­asti elds­voði i sögu höf­uð­borg­ar­innar í hús­inu að Bræðra­borg­ar­stíg 1. Þrír lét­ust, allt ungt fólk. Þá var húsið, sem og það sem stendur við Bræðra­borg­ar­stíg 3, í eigu félags­ins HD Verks.

[adspot]

Núver­andi eig­endur lóð­ar­innar, Þorpið vist­fé­lag, létu rífa bruna­rúst­irnar, Bræðra­borg­ar­stíg 1 og Vest­ur­götu 47, nýverið og áforma að byggja á reitnum hús með íbúðum fyrir eldri, ein­stæðar konur. Um veru­lega aukn­ingu bygg­ing­ar­magns á reitnum yrði að ræða sam­kvæmt fram­komnum frum­til­lögum. Verk­efnið er í far­vegi hjá emb­ætti skipu­lags­full­trúa sem hefur fengið tvær útfærslur að upp­bygg­ing­unni til umfjöll­unar.

Í umsögn skipu­lags­full­trúa í sumar sagði að nýjasta til­lagan, sem Yrki arki­tektar ehf. unnu fyrir Þorpið vist­fé­lag um upp­bygg­ingu á Bræðra­borg­ar­stíg 1 og 3, dragi upp mynd af „inn­hverfri“ bygg­ingu sem sé „lík virki sem hrindir frá sér umhverf­inu“. Útfærsla bygg­inga væri bæði „umfangs­mikil og nokkuð fram­andi“ með til­liti til byggða­mynsturs í gamla Vest­ur­bænum og þyrfti að opna sig mun betur út í umhverfið og sam­fé­lagið. Ekki væri aug­ljóst að fall­ast á sam­ein­ingu lóð­anna tveggja, líkt og Þorpið áformar, og nauð­syn­legt væri að vinna heild­ar­deiliskipu­lag yfir reit­inn á kostnað fram­kvæmda­að­ila.

[links]Ýmsar athuga­semdir hafa verið gerðar við fyr­ir­liggj­andi hug­myndir og er upp­bygg­ing­ar­að­ili að vinna að því að bregð­ast við þeim, segir í svari Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans um í hvaða far­veg áskorun íbú­anna fari. „Þar sem enn eru ekki komnar fram end­an­legar eða ásætt­an­legar til­lögur eru útfærslur ekki komnar til kasta skipu­lags- og sam­göngu­ráðs, né borg­ar­ráðs eða borg­ar­stjórnar,“ segir Dagur. „Vanda þarf til verka á þessu mik­il­væga og við­kvæma horni og má því gera ráð fyrir að vinnan taki nokkurn tíma.“

Nágrannar vilja að á lóð­inni verði minn­is­varði um brun­ann og reit­ur­inn byggður upp af virð­ingu við fórn­ar­lömbin og þá mik­il­vægu menn­ing­ar­arf­leifð sem felist í einu elsta byggða­mynstri borg­ar­innar. Hópurinn leggur m.a. til að gömul hús sem áður stóðu á þessum slóðum verði flutt á reit­inn og hann verði sam­komu­staður fólks­ins í Gamla Vest­ur­bænum.

Þurfa að fá tíma til að syrgja

Sam­fé­lagið í Gamla Vest­ur­bænum vill fá að taka þátt í að móta fram­tíð­ina í hjarta hverf­is­ins. „Og það ætti að hlusta á raddir íbú­anna og hvað þeir hafa til mál­anna að leggja.“ sagði sagn­fræð­ing­ur­inn Astrid Lelarge, sem hefur sér­hæft sig í skipu­lags­sögu og býr skammt frá Bræðra­borg­ar­stíg 1, í sam­tali við Kjarnann nýverið.

Astrid segir að íbú­arnir og þeir sem misstu ást­vini sína í brun­anum þurfi líka að fá tíma til að syrgja og fyrir sárin að gróa. „Þetta var áfall fyrir marga, fyrst og fremst fyrir þá sem bjuggu þarna og ást­vini þeirra.“

Hún segir líka hafa verið erfitt fyrir marga nágranna að horfa upp á það sem gerð­ist, sér­stak­lega eftir að ítrekað var varað við ástandi húss­ins. Sumir þeirra hafi svo orðið vitni að elds­voð­anum. „Það sem er byggt upp í stað­inn, eftir svona áföll, skiptir miklu máli og hefur líka áhrif á fólk. Það verður að taka það með í reikn­ing­inn þegar farið er að huga að upp­bygg­ingu á ný á þessum stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár