Ríkissaksóknari ætlar ekki áfrýja dómi í Bræðraborgarstígsmálinu

Marek Moszczynski var met­inn ósak­hæfur og sýkn­aður af refsi­kröfu ákæru­valds­ins í síð­ustu viku. Nú liggur fyrir ákvörðun rík­is­sak­sókn­ara um áfrýjun.

Rík­is­sak­sókn­ari mun ekki áfrýja dómi hér­aðs­dóms í máli ákæru­valds­ins á hendur Marek Moszczynki. Þetta kemur fram í svari emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Marek var sýkn­aður af refsi­kröfu ákæru­valds­ins fyrir brennu, til­raun til mann­dráps og þrefalt mann­dráp síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Hann var met­inn ósak­hæfur og gert að sæta vistun á við­eig­andi rétt­ar­gæslu­stofnun. Þetta var í fyrsta skipti sem maður er ákærður fyrir að bana þremur en tvær konur og einn karl­maður lét­ust í elds­voð­anum á Bræðra­borg­ar­stíg 1 síð­asta sumar.

Ákærða var gert að greiða fyrr­ver­andi íbúum á Bræðra­borg­ar­stíg bætur, sem nema allt frá 500 þús­und krónum upp í 11 millj­ónir. Allur sak­ar­kostn­aður verður greiddur upp úr rík­is­sjóði.

Hafið yfir skynsamlegan vafa að nokkur annar hafi getað verið valdur að brunanum

Í dómnum segir að ákærði hafi „verið fund­inn sekur um mjög alvar­leg brot sem höfðu hrika­legar afleið­ingar“. Þá sé hafið yfir skyn­sam­legan vafa að nokkur annar en ákærði hafi getað verið valdur að brun­anum.

[links]Jafn­framt kemur fram að úti­lokað sé að segja fyrir um það með vissu hvernig and­legri heilsu ákærða verði háttað til fram­tíðar. „Það liggur því fyrir að nauð­syn­legt er að fylgj­ast náið með geð­rænu ástandi hans, meta ein­kenni hans og þróun þeirra, stilla af lyfja­með­ferð og gera áhættu­mat. Telur dóm­ur­inn, sem skip­aður er sér­fróðum með­dóms­manni, að nauð­syn­legt sé vegna réttar­ör­yggis að ákærði sæti örygg­is­gæslu á við­eig­andi stofnun. Þá þykir rétt að á þeim tíma gang­ist ákærði undir við­eig­andi með­ferð vegna veik­inda sinna.“

Kolbrún Bene­dikts­dóttir vara­hér­aðs­sak­sókn­ari sagði við blaða­menn eftir dóms­upp­kvaðn­ingu í síð­ustu viku að nið­ur­staðan kæmi henni ekki á óvart.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár