Bruninn á Bræðraborgarstíg

Elds­voð­inn á Bræðra­borg­ar­stíg í sumar afhjúpaði þær slæmu aðstæður sem útlend­ingar búa hér oft við. „Þetta end­ur­speglar hræði­legan veru­leika á Íslandi.“

Þær ganga þétt saman, pískra sín á milli og hlæja. Á bak við þær er rólu­völlur og þar er hávaxið tré með breiða krónu. Þetta er selja, víði­teg­und sem á ættir að rekja til meg­in­lands Evrópu og Asíu. Og líkt og mörg tré á þessum slóðum hefur hún staðið þarna styrkum rótum í ára­tugi. Þótt vetur sé geng­inn í garð sam­kvæmt alm­an­ak­inu hafa lægð­irnar sem honum fylgja verið mis­kunn­samar að mestu það sem af er og á selj­unni eru enn lauf á stangli.

Það skrjáfar í þeim blöðum sem hún þegar hefur fellt undir smáum fótum er þær nema staðar við gang­braut­ina, líta til beggja hliða og bíða þess að bíl­arnir stöðvi. Krækja svo saman höndum og allt að því val­hoppa yfir göt­una af áhyggju­leysi sem aðeins börnum er gefið. Þær eru á að giska níu ára. Vinkonur í Gamla Vest­ur­bænum.

Þegar göt­unni sleppir og bíl­arnir halda áfram stoppa þær og horfa upp. Á gang­braut­ar­merk­inu hangir hvít kerta­lukt og neðan þess liggja blóm. Húsið sem við þeim blasir er hulið gráu neti. Umhverfis það er járn­girð­ing og innan hennar liggja gler­brot og brunnar spýtur. Blár kað­all, sem not­aður er til að halda net­inu föstu, hefur losnað á einum stað. Hann lafir niður með norð­ur­hlið húss­ins og á enda hans er bundin stór lykkja. Þetta minnir óþægi­lega á heng­ing­ar­snöru.

Það er þó vart hægt að kalla þetta hús. Þetta eru rústir húss. Húss sem stóð á þessu götu­horni í 114 ár. Í því hafa mörg börn alist upp, setið yfir heima­lær­dómnum, lært að tefla. Horft út um glugg­ana á efri hæð­unum til fjall­anna í fjarska. Í það lögðu Vest­ur­bæ­ingar leið sína í ára­tugi til að kaupa brauð­meti af Sveini bak­ara eða nýlendu­vörur af Hirti bróður hans. Í þá daga lagði lokk­andi ilm af nýbök­uðu frá því. Nú liggur þung bruna­lykt í loft­inu.

For­vitnin hefur borið ein­hverja ofur­liði og járn­grind­urnar við suð­ur­gafl húss­ins hafa verið færðar í sundur, nógu mikið svo hægt sé að smeygja sér á milli þeirra. Gluggi á jarð­hæð­inni, sem í er enn heil rúða, hefur verið spenntur upp.

Það er greið leið inn.

Vin­kon­urnar ungu setur hljóðar á meðan þær virða fyrir sér rúst­irnar. Þetta er þó eflaust ekki í fyrsta skipti sem þær berja þær augum. Rúst­irnar hafa blasað við nágrönnum og öðrum veg­far­endum í tæpa fimm mán­uði. Kross­viðs­plötur eru fyrir sumum dyrum og gluggum. Í þeim sem enn eru heilir eru dökkar gard­ínur dregnar fyrir. Húsið var á þremur hæðum en nú standa aðeins sperr­urnar eftir af ris­hæð­inni.

Önnur stúlkn­anna lítur niður og bendir á blómin. Rekur svo augun í eitt­hvað smá­gert sem liggur á gang­stétt­inni. Tekur það upp, veltir því um í lóf­anum en festir það svo á járn­girð­ing­una. Að því búnu halda þær sína leið.

Þetta er hjarta. Smátt rautt hjarta úr plasti sem hefur eflaust dottið af girð­ing­unni. En nú er það komið aftur á sinn stað.

Elds­voð­inn á Bræðra­borg­ar­stíg 1 í sumar, í hjarta Reykja­víkur, er sá mann­skæð­asti sem orðið hefur í höf­uð­borg­inni. Þrjár ungar mann­eskjur fór­ust, fólk sem hafði komið til Íslands frá heima­land­inu Póllandi til að vinna. Það hafði séð hér tæki­færi til að bæta hag sinn til fram­tíðar.

„Við erum öll mann­eskjur,“ stendur á pappa­spjaldi sem fest er á járn­girð­ing­una. Ís-lend­ingur, út-lend­ingur – „tveggja stafa munur,“ er þar minnt á. „Við höfum nafn, eigum okkur menn­ingu, tón­list, ljóð, for­tíð, fjöl­skyldur, drauma og rétt­indi. Við erum brot­hætt. Við höfum hæfi­leika, sögur að segja. Við höfum þarfir. Við erum ein­stök.“

Fjöl­skyldur unga fólks­ins sem lést eru ekki til­búnar að segja sögur þeirra. Sárs­auk­inn er enn of mik­ill, segja þær. Fyrir því verður borin virð­ing í þess­ari umfjöllun og hvorki greint frá nöfnum þeirra né öðrum per­sónu­legum upp­lýs­ingum umfram það sem þegar hefur komið fram opin­ber­lega.

Frá fjölskylduhúsi til herbergjaútleigu

Horn­húsið sam­anstendur af tveimur bygg­ingum; tveggja hæða húsi við Vest­ur­götu og tví­lyftu timb­ur­húsi með risi við Bræðra­borg­ar­stíg.

Bræðra­borg­ar­stígur 1 var fjöl­skyldu­hús á árum áður. Á efri hæð­unum tveimur var búið en atvinnu­starf­semi fór fram á jarð­hæð­inni. Um ára­bil var það svo í útleigu og síð­ustu ár hafa her­bergi þess, hvert og eitt, verið leigð út, fyrst og fremst til erlendra verka­manna. Leigj­end­urnir á hvorri hæð fyrir sig deildu bað­her­bergi og eld­húsi og greiddu að minnsta kosti á bil­inu 75-90 þús­und krónur á mán­uði í leigu. Fæstir þeirra voru með þing­lýsta leigu­samn­inga og áttu því ekki rétt á húsa­leigu­bótum.

Fjórtán íbúar voru heima er eldur kom upp síð­degis fimmtu­dag­inn 25. júní. Heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar hafði sitt að segja um þann fjölda. Að minnsta kosti fjórir höfðu misst vinn­una og tveir voru heima í fjar­námi þar sem stað­nám hafði tíma­bundið verið lagt til hliðar. Aðrir voru í vakta­vinnu; höfðu ýmist lokið morg­un­vakt eða voru í vakta­fríi. 

Í þeim hluta húss­ins sem stendur við Vest­ur­götu var leigð út íbúð á efri hæð­inni. Þar bjuggu tveir ungir menn og voru þeir báðir heima er eld­ur­inn kom upp. Í atvinnu­hús­næði á jarð­hæðum bygg­ing­anna beggja bjó fólk en óvíst hversu margt. Að minnsta kosti tveir voru heima.

Á ris­hæð timb­ur­húss­ins við Bræðra­borg­ar­stíg bjuggu sex manns í fjórum her­bergjum. Fimm þeirra voru heima er eld­ur­inn kom upp.

Á 2. hæð­inni bjuggu að því er Kjarninn kemst næst um níu manns í fimm her­bergjum og um helm­ingur þeirra var heima er eld­ur­inn kom upp.

Einn þeirra var Marek Moszczynski.

Marek er rúm­lega sex­tugur. Hann er pólskur en hafði flutt til Íslands fyrir nokkrum árum og bjó á Bræðra­borg­ar­stígnum að minnsta kosti um hríð en með hléum. Hann hafði stundað hér vinnu en var orð­inn atvinnu­laus.

Fyrstu fréttir

„Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins berst nú við mik­inn eld í húsi á horni Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu í Vesturbæ Reykja­víkur,“ sagði í fyrstu fréttum Rík­is­út­varps­ins af elds­voð­anum. „Reyk leggur nú yfir stóran hluta borg­ar­innar.“

Fyrsta til­kynn­ing um brun­ann barst neyð­ar­línu klukkan 15.15. Á sömu mín­útu barst aðstoð­ar­beiðni frá sendi­ráði Rúss­lands í Garða­stræti vegna manns sem léti ófrið­lega við húsið. Lög­reglan fór þegar á vett­vang og hand­tók mann­inn. Fljót­lega var ljóst að hann var íbúi í hús­inu sem var að brenna skammt frá. Á milli Bræðra­borg­ar­stígs 1 og Garða­strætis 33, þar sem sendi­ráð Rúss­lands er til húsa, eru 500 metrar. Það tekur um 6 mín­útur að ganga þessa leið og um 2 til 3 að aka. Á hlaupum er hægt að kom­ast vega­lengd­ina á um þremur mín­útum.

Sá hand­tekni var Marek Moszczynski. Þegar vakn­aði grunur um að hann væri valdur að brun­anum og um miðjan sept­em­ber var hann ákærður fyrir brennu, mann­dráp og til­raun til mann­dráps. Í ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara er hann sak­aður um að hafa kveikt eld á gólfi her­bergis síns á annarri hæð­inni og undir stiga á sömu hæð, stiga sem lá upp á ris­hæð­ina.

Talið er að bensín hafi verið notað til íkveikj­unnar. Eldurinn er í ákæru sagður hafa breiðst hratt út um aðra og þriðju hæð­ina og að húsið hafi verið „nán­ast alelda“ er slökkvi­starf hófst.

Sáu manneskjur í gluggunum

Þeir sem fyrstir komu á vett­vang brun­ans, nágrannar og sjúkra­flutn­inga­menn, sáu fimm mann­eskjur í gluggum ris­hæð­ar­innar. Þær voru fastar inni. Stiginn, eina útgöngu­leiðin af hæð­inni, stóð í ljósum logum og reyk­ur­inn sveið í augu og háls. Og eld­ur­inn hélt áfram að magn­ast allt í kring. Reyk­ur­inn að þykkna. „Það var mik­ill eldur. Við heyrðum spreng­ingar og sáum þrjár slas­aðar mann­eskjur fyrir utan,“ lýsir sjúkra­flutn­inga­maður aðkom­unni. „Við litum upp og sáum mann­eskju í glugg­anum.“

Í örvænt­ingu brugðu tvær þeirra á það ráð að brjóta glugga í her­bergjum sínum og stökkva út. Önnur þeirra, ung kona, lést skömmu síðar. „Ég gat ekki beðið,“ segir karl­mað­ur­inn sem einnig stökk. „Ég vissi að ég myndi bráð­lega missa með­vit­und ef ég kæm­ist ekki út.“ Hann hlaut alvar­lega áverka. En hann lifði.

Hlaut alvarleg brunasár

Sjúkra­flutn­inga- og slökkvi­liðs­mönnum tókst að bjarga karl­manni sem bjó í næsta her­bergi við hann út um glugga. Karl­maður sem bjó á annarri hæð­inni, þeirri hæð sem eld­ur­inn kvikn­aði, hlaut þriðja stigs bruna­sár á stórum hluta lík­am­ans og gekkst vik­urnar á eftir undir nokkrar aðgerðir. Hann var dögum saman á gjör­gæslu­deild og ekki útskrif­aður af Land­spít­alnum fyrr en eftir miðjan ágúst. Maðurinn, sem er á sex­tugs­aldri, á frek­ari aðgerðir fyrir höndum.

Tvær mann­eskjur á ris­hæð­inni, karl og kona, komust ekki út í tæka tíð og létu lífið í elds­voð­anum.

Marek neitar sök. Samkvæmt mati geð­læknis var hann ósak­hæfur á verkn­að­ar­stundu. Verjandi hans hefur farið fram á að þing­haldið verði lokað. Tveir geð­læknar til við­bótar, svo­kall­aðir yfir­mats­menn, voru fengnir til að fara yfir geð­matið. Þeir hafa ekki lokið þeirri vinnu og ákvörðun um hvort þing­haldið verður lokað hefur enn ekki verið tekin.

Óháð því hvort að kveikt var vilj­andi í voru fyrir hendi í hús­inu að Bræðra­borg­ar­stíg 1 fleiri sam­verk­andi þættir sem höfðu áhrif á elds­voð­ann og urðu til þess að hann varð jafn mann­skæður og raun ber vitni.

Húsið er gam­alt og úr timbri. Ein­angrun var að mestu leyti brenn­an­leg sem auð­veld­aði útbreiðslu elds­ins á milli hæða og her­bergja. Að innan var húsið almennt klætt með timbri á veggjum og í lofti. Búið var að mála mörgum sinnum, ýmist með olíu- eða plast­máln­ingu. Allt jók þetta á bruna­á­lagið.

Átján herbergi og ein íbúð

Þá var búið að breyta notkun húss­ins. Á efri hæð­unum tveimur var hvert ein­asta her­bergi leigt út. Milli 15 og 20 manns bjuggu í þessum rýmum þegar mest lét. Á jarð­hæð­inni, sem er skráð sem atvinnu­hús­næði, hafð­ist einnig fólk við og svaf. Í fast­eigna­aug­lýs­ingu í upp­hafi árs kom fram að húsið væri „leigt út sem átján her­bergi og ein tveggja her­bergja íbúð“.

Á þeim hluta húss­ins sem brann voru engar svalir. Engir bruna­stigar. Aðeins ein flótta­leið var af ris­hæð­inni. Opnanleg fög á gluggum voru lítil og í her­bergjum var eng­inn hamar til að brjóta glerið. Á göngum voru slökkvi­tæki en þau höfðu ekki verið tekin út í lengri tíma. Engar bruna­æf­ingar höfðu farið fram í hús­inu í að minnsta kosti sex ár.

Heyrðu aldrei í reykskynjara

„Hefði verið hægt að slökkva í þessu með slökkvi­tæki?“ spyr einn við­mæl­andi Kjarnans sem kom að rann­sókn brun­ans. „Á ein­hverju augna­bliki hefði það verið hægt.“

Ein­hverjir reyk­skynjarar voru í sam­eig­in­legum rýmum að Bræðra­borg­ar­stíg 1. En þeir eft­ir­lif­endur elds­voð­ans sem Kjarninn hefur rætt við og þeir sem skýrsla var tekin af hjá lög­reglu eftir brun­ann, heyrðu aldrei í þeim. „Það fór eng­inn reyk­skynj­ari í gang,“ segir einn íbú­inn. „Ég er alveg viss.“

Þeir átt­uðu sig ekki á því að kviknað væri í fyrr en þeir heyrðu skelf­ing­aróp sam­býl­inga sinna fram á gangi.

Óháð lög­reglu­rann­sókn­inni sem þegar hefur leitt til ákæru á hendur Marek Moszczynski, hefur Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun rann­sakað elds­voð­ann þar sem sjónum er beint að hús­inu sjálfu, slökkvi­starf­inu og fleiri þáttum. Sú skýrsla verður kynnt slökkvi­liðs­stjórum á næstu dögum og í kjöl­farið verða helstu nið­ur­stöður hennar birtar opin­ber­lega.

„Ef ein­hver segir að ekk­ert hefði verið hægt að gera til að bjarga lífum í brun­anum á Bræðra­borg­ar­stíg þá er það óábyrgt og hættu­legt,“ segir Benjamin Julian, starfs­maður stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar. Flestir sem bjuggu í hús­inu voru í því félagi og nokkrir þeirra leit­uðu þangað eftir aðstoð. „Harm­leik­ur­inn á Bræðra­borg­ar­stíg getur farið á tvo vegu: Hann getur orðið harka­leg lexía fyrir okkur um að taka á rót vand­ans eða að við yppum öxlum og segjum: Það er aldrei hægt að stoppa íkveikjur.“

Vandinn sem Benjamin bendir á er sá oft á tíðum slæmi aðbún­aður sem erlent verka­fólk þarf að búa við í íslensku sam­fé­lagi. Tæpur ára­tugur er lið­inn síðan að afhjúpað var að mik­ill fjöldi fólks, mörg hund­ruð manns, byggi í iðn­að­ar­hús­næði og öðru óleyf­is­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þannig var staðan árið 2014, áður en ferða­þjón­ustan sprakk út af krafti og bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn fór sam­tímis á flug. Starfs­manna­leigum óx fiskur um hrygg, milli­liðnum milli fyr­ir­tækja og vinnu­afls, þar sem dæmi er um að litið var á fólk sem „vörur“ og þær ítrekað orðið upp­vísar að því að brjóta á rétt­indum starfs­manna sinna.

Rifu sig upp með rótum

Íslend­ingar hafa á síð­ustu árum upp­lifað mesta góð­ær­is­skeið allra tíma. Vöxtur í ferða­þjón­ustu var hraður og hann útheimti mikið vinnu­afl. Þetta vinnu­afl var ekki á lausu og því þurfti að sækja það að utan. Inn­flytj­endur voru því aflið sem knúði góð­ær­is­vél­ina. „Fjöldinn allur af erlendu verka­fólki reif sig upp með rótum í heima­löndum sínum til þess að hlaupa undir bagga með okkur í upp­sveifl­unni,“ segir Anna Gunn­hildur Ólafs­dóttir, sviðs­stjóri félags- og þró­un­ar­sviðs Eflingar.

Þetta er svo sá sam­fé­lags­hópur sem sam­dráttur í ferða­þjón­ustu á síð­asta ári kom einna verst niður á og einnig það fólk sem orðið hefur hvað harð­ast úti í efna­hag­skrepp­unni sem hófst með kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og sér ekki fyrir end­ann á.

„Yfir­maður minn öskr­aði á mig og spurði mig hvort ég vildi þéna pen­inga eða borga skatta,“ segir kona sem starf­aði fyrir eig­endur Bræðra­borg­ar­stígs 1 fyrir nokkrum árum. Hún fékk aldrei neina launa­seðla, þekkti ekki rétt­indi sín og hafði ekki hug­mynd um að hún gæti gengið í stétt­ar­fé­lag. „Ég veit það aftur á móti núna, en því miður ekki þá.“

Gluggi á jarðhæðinni, sem í er enn heil rúða, hefur verið spenntur upp.
Gluggi á jarð­hæð­inni, sem í er enn heil rúða, hefur verið spenntur upp.

Ekki allra hagur að bæta úr

Mikil umræða skap­að­ist eftir elds­voð­ann á Bræðra­borg­ar­stíg og þess var kraf­ist að aðbún­aður erlends verka­fólks yrði bættur. Lausnin felst í því að auka aðgengi að ódýru og öruggu hús­næði. Það er ekki til staðar og því þarf að byggja. Mál voru sett í nefnd og umræðan koðn­aði niður að mestu. „Ef það væri hagur allra að laga þetta yrði það gert,“ segir Benjamin. „En það er ekki allra hagur. Lykill máls­ins er sá að það er fólk hér á landi sem græðir á þessu fyr­ir­komu­lagi.“

Fyr­ir­komu­lagi sem gengur út á að fá hingað til starfa fólk sem er til­búið að vinna fyrir lægri laun en flestir Íslend­ingar, til­búið að sinna störfum sem Íslend­ingar hafa fæstir áhuga á. Og til að þessi for­múla gangi upp, svo að útlend­ing­arnir beri eitt­hvað úr býtum, þurfa þeir ódýrt hús­næði. Það hús­næði sem þeim býðst í dag á við­ráð­an­legu verði er meðal ann­ars iðn­að­ar­hús­næði eða lítil leigu­her­bergi eins og þau sem var að finna á Bræðra­borg­ar­stíg 1. Húsnæði sem upp­fyllir ekki alltaf kröfur um eld­varnir, þar sem margir ótengdir aðilar búa saman og deila eld­húsi og sal­ernum og nú á sama tíma og far­aldur bráðsmit­andi og hættu­legrar veiru gengur yfir heims­byggð­ina.

Vilja ekki rífa húsið

Bruna­rúst­irnar standa enn á horni Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu. Bygg­ing­ar­full­trúi Reykja­víkur sendi eig­and­anum bréf í lok októ­ber þar sem honum var gert að sækja um nið­ur­rif og fjar­lægja það sem eftir stæði af hús­inu innan þrjá­tíu daga. Var honum gef­inn fimmtán daga frestur til að gera athuga­semd við ákvörð­un­ina.

Hún barst bygg­ing­ar­full­trúa í síð­ustu viku. Í henni kemur fram að eig­and­inn vilji ekki að húsið verði rifið strax. Það sé sönn­un­ar­gagn í vátrygg­inga­máli sem geti dreg­ist í marga mán­uði, jafn­vel ár. Ákveði yfir­völd engu að síður að rífa það verði farið í mál og þau krafin bóta. Lög­fræð­ingur bygg­ing­ar­full­trúa fer nú yfir málið og ákvörðun um næstu skref verður tekin í fram­hald­inu.

Í ítar­legri umfjöllun Kjarnans um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg verður fjallað um húsið sjálft, eig­endur þess og sögu og við­brögð opin­berra stofn­anna og ann­arra við atburði sem á sér enga hlið­stæðu á síð­ari tímum. Varpað er ljósi á fram­lag erlends verka­fólks í auk­inni hag­sæld íslensku þjóð­ar­innar, á kjör þess og þær aðstæður sem það er látið búa við og hvernig þær aðstæður gátu skap­ast.

Fjallað er um sam­fé­lagið í Gamla Vest­ur­bænum sem stóð þétt saman og reyndi eftir fremsta megni að rétta fórn­ar­lömbunum, sem mörg hver hafa lítið tengsla­net hér á landi, hjálp­ar­hönd og sagðar sögur þeirra sem komu fyrst á vett­vang brun­ans.

Þunga­miðja umfjöll­un­ar­innar er frá­sagnir þeirra sem lifðu af. Fólks sem kom til Íslands í leit að betra lífi en glímir nú við afleið­ingar áfalls­ins sem á eftir að fylgja því alla ævi. „Ég hugsa stundum um það hvort að ég hefði getað leikið ofur­hetju og bjargað þeim,“ segir Vasile Tibor Andor sem komst út úr brenn­andi hús­inu á síð­ustu stundu. „En ég veit innst inni að ég gat það ekki. Að þegar ég vissi af eld­inum var það orðið of seint.“

Myndband: Golli. Myndir: Golli og Bára Huld Beck

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið undanfarið ár