„Ég þarf hjálp til að vinna úr þessu“

Eftir að hafa flúið Afganistan og sest að á Íslandi leigði Alisher Rahimi íbúð á Bræðra­borg­ar­stíg. Eitt síð­degið í sumar var hann heima að læra þegar hann heyrði hávaða og fann reykj­ar­lykt. Hann leit út um glugg­ann og sá hóp fólks standa á göt­unni.

Alisher Rahimi er frá Afganistan en þaðan flúði hann til Íslands einn síns liðs fyrir tveimur árum, þá sautján ára gam­all. Þegar hann var kom­inn með dval­ar­leyfi og íslenska kenni­tölu benti ráð­gjafi hjá félags­þjón­ust­unni honum á að hann yrði að finna sér sjálfur hús­næði. Hann fór þá leið, eins og flestir, að leita að íbúð á Facebook. Þar sá hann aug­lýsta tveggja her­bergja íbúð á annarri hæð á Bræðra­borg­ar­stíg 1, Vest­ur­götu megin, og hafði sam­band við leigusal­ann.

Hann fékk þær upp­lýs­ingar að leigan væri 200 þús­und á mán­uði og að greiða þyrfti 400 þús­und krónur í trygg­ingu. Hann og vinur hans, sem einnig er frá Afganistan, ákváðu að deila íbúð­inni og gerðu þing­lýstan leigu­samn­ing.

En fljót­lega fóru þeir að vera óró­legir og fannst þeir ekki öruggir. Reglu­lega mátti heyra læti af jarð­hæð­inni á næt­urnar, stundum tengd slags­málum, sem lög­reglan þurfti að hafa afskipti af. Þá var aðstaðan í íbúð­inni ekki ásætt­an­leg. Það vant­aði hurð á annað svefn­her­bergið og eig­and­inn svar­aði seint beiðni um úrbætur. Það sem hann lof­aði að tæki eina viku átti eftir að taka 2 til 3 mán­uði.

Þeir ákváðu að segja upp hús­næð­inu og finna sér annað. Aðeins nokkrum dögum áður en brun­inn mikli varð höfðu þeir til­kynnt eig­and­anum um ákvörðun sína og ætl­uðu að flytja út mán­uði síðar. Þar sem þeir voru með sér­inn­gang í íbúð­ina kynnt­ust þeir ekki öðrum í hús­inu. Enda höfðu þeir nóg að gera. Voru báðir í námi og vildu ein­beita sér að því. Það var lít­ill tími til ann­ars.

Alisher hóf nám í Tækni­skól­anum í byrjun síð­asta árs. „Ég er að læra íslensku,“ segir hann bros­andi – á íslensku. Honum finnst íslenskan svo­lítið strembin en gerir ekki mikið úr því. „Ég er dug­legur,“ segir hann – á íslensku – og bætir við að með því að leggja hart að sér upp­skeri maður ríku­lega. Síðustu mán­uði hefur hann einnig verið í öku­tímum. Á Íslandi hefur hann almennt kunnað vel við sig og hefur eign­ast nokkra góða vini.

25. júní 2020

Morg­un­matur er að venju fram­ar­lega á dag­skránni þegar Alisher vaknar þann 25. júní síð­ast­lið­inn. Að honum loknum sest hann við tölv­una sína. Fjar­kennslu­stund er að hefj­ast. Það er heims­far­aldur og stað­nám hefur verið lagt til hliðar um sinn. Eftir að kennslu­stundum dags­ins lýkur og hann hefur fengið sér að borða tekur heima­námið við. Um tveimur tímum síðar, er hann er enn nið­ur­sokk­inn í náms­efnið, hrekkur hann upp við hávaða. Í fyrstu heldur hann að ein­hver sé að brjót­ast inn. En í kjöl­farið finnur hann reykj­ar­lykt. Honum bregður, hraðar sér að glugg­anum og sér þá reyk leggja með fram hús­inu. Úti á göt­unni stendur hópur fólks og það er örvænt­ing í and­litum þess. Sumir hrópa. Hann fer út í ofboði, verður að kom­ast að því hvað gangi á. Lög­reglu­maður vindur sér strax upp að honum og spyr hvort ein­hver sé inni.

„Já, vinur minn er inni í her­bergi,“ segir hann við lög­reglu­mann­inn sem biður hann að fara ekki aftur inn í íbúð­ina. Það sé kviknað í hús­inu. Fólk hleypur um göt­una. Það eru sjúkra­bílar og slökkvi­bílar komnir á vett­vang. Hann sá reyk­inn um leið og hann kom út en nú sér hann líka eld­tung­urnar. Þær koma út úr gluggum hins hluta húss­ins, þess hluta þar sem leigð eru út her­bergi.

Allt í einu fer hann að skjálfa frá hvirfli til ilja. Hjartað ham­ast í brjósti hans og honum finnst eins og það sé að springa út úr brjóst­kass­anum. Er hann að fá hjarta­á­fall? „Ég hafði aldrei áður lent í aðstæðum sem þessum,“ rifjar hann upp. Skelf­ingin er ógur­leg. „Komdu út, komdu út!“ hrópar hann til vinar síns af göt­unni. „Það er kviknað í!“

Alisher sér fólk í glugg­unum á þriðju hæð­inni. Vinur hans kemur hlaup­andi út og sér þegar mann­eskja stekkur út um glugg­ann í örvænt­ingu sinni.

Íbúðin þeirra fyllt­ist af reyk en eld­ur­inn náði ekki að læsa sig í hana nema að litlu leyti. Þeir heyrðu aldrei í reyk­skynjara og efast reyndar um að slíkur hafi verið í íbúð­inni.

Alisher kom að hús­inu dag­inn eftir og sá lög­reglu­mann á vett­vangi. Hann bað um að fá að fara inn í íbúð­ina og sækja tölv­una sína, bækur og aðrar eigur sem hann og gerði. Þannig tókst honum að bjarga ýmsu en reykj­ar­lyktin fer ekki úr föt­unum þeirra. Svo megnið af þeim gátu þeir ekki notað áfram. Vinirnir bjuggu í íbúð­inni á Bræðra­borg­ar­stíg í nokkra mán­uði. Þeir vildu flytja þaðan en hefðu ekki getað ímyndað sér að sá flutn­ingur kæmi til með þeim hætti sem hann gerði.

Nú eru þeir fluttir í Breið­holtið. Þeir eru alsælir í íbúð­inni sinni og bera leigusal­anum sér­stak­lega vel sög­una. Og þar eru reyk­skynjarar.

Fær martraðir

Þrátt fyrir öryggið sem góðu hús­næði fylgir fær Alisher stundum martraðir. Í þeim er kviknað í eld­hús­inu eða ein­hvers staðar ann­ars staðar í íbúð­inni og hann hrekkur upp með and­fælum. Það tekur hann smá stund að átta sig – að þetta hafi aðeins verið vondur draumur – en til öryggis fer hann stundum á fætur og lit­ast um. Í sumar og snemma í haust, þegar fólk var enn að grilla undir berum himni, kippt­ist hann við er hann fann lykt­ina, spratt og fætur og fyrsta hugs­unin sem kom upp í hug­ann var: Hvernig kemst ég út?

Eftir brun­ann fengu þeir fjár­stuðn­ing frá borg­inni sem dugði fyrir leigu í einn mánuð. Þeir fengu trygg­ing­una, sem þeir höfðu greitt er þeir tóku íbúð­ina á Bræðra­borg­ar­stíg á leigu, end­ur­greidda. Svo fengu þeir miða til að kaupa föt í Rauða kross búð­inni en þeir hafa ekki enn notað þá.

Erfitt að einbeita sér

Þar sem þeir fluttu á milli hverfa innan Reykja­víkur flutt­ust þeir líka á milli þjón­ustu­mið­stöðva borg­ar­innar. Núna eiga þeir að leita til þjón­ustu­mið­stöðv­ar­innar í Mjódd. COVID-19 hefur sett strik í reikn­ing­inn í því sam­bandi. „Þegar ég hitti nýja félags­ráð­gjafann minn ætla ég að biðja um að fá að kom­ast til sál­fræð­ings,“ segir hann. „Ég þarf hjálp til að vinna úr þessu. Mér gekk mjög vel í skól­anum áður. Núna á ég stundum erfitt með að ein­beita mér. „Þetta var hræði­leg lífs­reynsla og atburð­irnir sitja enn í mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið undanfarið ár