Mynd: Golli

Deilur um peninga koma í veg fyrir að Bræðraborgarstígur 1 verði rifinn

Félagið sem á Bræðra­borg­ar­stíg 1 sættir sig ekki við mat VÍS á tjón­inu sem bruni þess olli. Það vill hærri fjár­hæð frá trygg­inga­fé­lag­inu. Nokkur ár gætu liðið þar til að rúst­irnar verði rifnar.

HD verk ehf. er félag sem á nokkrar fast­eignir. Meg­in­starf­semi þess felst í því að reka þær fast­eignir. Hafa af þeim tekjur vegna útleigu. Eigandi félags­ins er Kristinn Jón Gíslason.

Eignir félags­ins voru metnar á 1,3 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót og eigið fé HD verks var þá bók­fært á 137 millj­ónir króna. Tekjur af starf­sem­inni námu 101 milljón króna á árinu 2019, sam­kvæmt árs­reikn­ingi, og juk­ust lít­il­lega á milli ára. Um 30 milljón króna tap var á rekstr­inum á síð­asta ári, aðal­lega vegna mik­ils vaxta­kostn­aðar, en félagið skuldar hátt í 1,2 millj­arða króna. Stærstur hluti þeirra skulda er við lána­stofn­anir.

Stærstur hluti eigna HD verks eru fimm fast­eignir. Ein þeirra er Bræðra­borg­ar­stígur 1, sem brann í sumar. Auk þess á félagið Bræðra­borg­ar­stíg 3 í Reykja­vík, Dalveg 24 og 26, Kárs­nes­braut 96a og Hjalla­brekku 1 í Kópavogi. Virði fast­eign­anna var end­ur­metið á síð­asta ári í sam­ræmi við gild­andi fast­eigna­mat þeirra. Við það sér­staka end­ur­mat hækk­aði virði þeirra um 500 millj­ónir króna og var það bók­fært á 1.218 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót.

Bruna­bóta­mat þeirra fast­eigna sem HD verk á var 1.276 millj­ónir króna í lok árs 2019. Þar af var bruna­bóta­matið á Bræðra­borg­ar­stíg 1 alls 155,8 millj­ónir króna.

Buðu 109 milljónir

VÍS, trygg­inga­fé­lag HD verks, gerði mats­gerð á tjóni félags­ins í sumar þegar Bræðra­borg­ar­stígur 1 brann. Hún er dag­sett rúmum tveimur vikum eftir brun­ann, eða 10. júlí 2020.

Tjóna­mats­mats­menn trygg­inga­fé­lags­ins komust þar að þeirri nið­ur­stöðu að húsið sé ekki allt ónýtt. Í mats­gerð­inni segir: „Matsmenn líta svo á að yfir­bygg­ing húss­ins frá 1906 sé það mikið skemmd af eldi, hita og vatni að ekki verið við gert. Þeir lýsa þó þeirri skoðun að gólf­plata og und­ir­stöður húss­ins séu alls óskemmdar af eldi og hita og meta því þann hluta heilan, ásamt lögnum í grunni. Húsið frá 1944 er veru­lega sótað á neðri hæð­inni, en þar þarf að taka niður létta veggi og lausar inn­rétt­ingar en burð­ar­virki er óskemmt af eldi og hita. Hluti lagna­kerfis er óskemmdur af eldi og hita og er því ekki met­inn skemmdur af brun­anum. Skemmdir efri hæðar húss­ins frá 1944 eru að stærstum hluta af sóti, en þar er gert ráð fyrir að klæðn­ingar og inn­rétt­ingar verði að hluta til end­ur­nýj­aðar.“

Tekist er á um hversu stóran hluta af húsinu eldurinn skemmdi.
Tekist er á um hversu stóran hluta af hús­inu eld­ur­inn skemmdi.

Nið­ur­staðan sé sú að eld­ur­inn hafi skemmt 70 pró­sent af bygg­ing­unni, en að 30 pró­sent hennar sé enn heilt. Því vill VÍS meina að greiða eigi út 70 pró­sent af bruna­bóta­mati og bauð eig­anda HD verks alls 109 millj­ónir króna í greiðslu vegna tjóns, rifs og hreins­unar.

Borgin bregst við

Þrátt fyrir að trygg­inga­fé­lagið hafi metið tjónið hratt, og skilað áður­nefndri mats­gerð, þá hefur vinna við að rífa Bræðra­borg­ar­stíg 1 ekki haf­ist, tæpum fimm mán­uðum eftir að húsið brann.

Þann 27. októ­ber síð­ast­lið­inn, í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar um stöðu nið­ur­rifs á hús­inu, brást emb­ætti bygg­ing­ar­full­trúa í Reykja­vík við og sendi bréf á eig­anda húss­ins. Í bréf­inu kemur fram að húsið sé í „mjög slæmu ástandi eftir brun­ann og er veru­legt lýti á umhverf­inu og skapar hættu fyrir nágranna m.a. vegna mögu­legs foks úr rúst­unum.“

Þar skrif­aði bygg­ing­ar­full­trú­inn, Nikulás Úlfar Másson, að eig­and­inn hefði 30 daga til að sækja um nið­ur­rif á hús­inu frá útgáfu bréfs­ins. Verði hann ekki við því gæti emb­ætti bygg­ing­ar­full­trúa ráð­ist í úrbætur á kostnað eig­enda eða beitt hann dag­settum. Eiganda HD verks voru gefnir 15 dagar til að svara erind­inu. Það svar barst 8. nóv­em­ber.

Vilja hærri fjárhæð frá VÍS

Í bréfi lög­manns HD verks til borg­ar­innar, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir m.a.: „Í stuttu máli þá hefur umbj. minn, að svo stöddu, ekki tekið ákvörðun um nið­ur­rif húss­ins. Ástæða þess er að ágrein­ingur er milli umbj. míns og Vátrygg­ing­ar­fé­lags Íslands (VÍS), er bruna­tryggði húsið, um umfang tjóns og bætur fyrir það tjón sem orðið hefur. Full­trúar VÍS hafa skoðað tjónið og lagt mat á það fyrir sína hönd, sbr. fskj. nr. 3. Umbj. minn hefur marg­vís­legar athuga­semdir gert við þetta tjóna­mat VÍS, sem telja verður að sé aug­ljós­lega ekki unnið í sam­ræmi við þá vátrygg­ingu sem í gildi var um eign­ina (Lög­bundna bruna­trygg­ingu) á tjóns­degi.“

Með öðrum orðum þá er eig­andi HD verks ósáttur við þá upp­hæð sem VÍS er til­búið að greiða honum vegna brun­ans. Hann telur hlut­föllun tjóns­ins miðað við vátrygg­ing­ar­fjár­hæð – að 70 pró­sent húss­ins hafi eyði­lagst vegna brun­ans en að 30 pró­sent sé ekki ónýtt vegna hans – ekki vera í nokkru sam­ræði við „raun­veru­legt tjón og þá raun­veru­legan kostnað við end­ur­bygg­ingu húss­ins auk hreins­unar. Bent er sér­stak­lega á að vátrygg­ing­ar­fjár­hæðin sem slík er engin mæli­kvarði á tjónið sjálft eða raun­veru­legan kostnað við end­ur­bygg­ingu og hreinsun, heldur segir vátrygg­ing­ar­fjár­hæðin ein­ungis til um hvert hámark bóta getur verið.“

Málið á leið fyrir dómstóla

HD verk seg­ist hafa reynt að ná samn­ingum við VÍS um málið og að loka­til­raun til þess hafi verið gerð þriðju­dag­inn 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Á þeim fundi hafi HD verk boð­ist til að gefa eftir hluta af kröfu sinni gegn því að VÍS sam­þykkti að greiða það sem HD verk telur „eðli­legar og sann­gjarnar bætur fyrir það tjón sem orðið hefur“.

VÍS hafn­aði því að end­ur­skoða afstöðu sína og sam­kvæmt bréfi lög­manns HD verks til borg­ar­innar þá vill VÍS fremur láta reyna á málið fyrir dómi en að semja á þeim nótum.

Því ætlar HD verk að stefna VÍS og krefj­ast fullra bóta. Í bréfi lög­manns HD verks segir að í ljósi þess verði ekki unnt að rífa og fjar­lægja bruna­rúst­irnar sem enn standa að Bræðra­borg­ar­stíg 1 „fyrr en nið­ur­staða dóm­stóla liggur fyrir varð­andi þann ágrein­ing.“ Þær séu ein­fald­lega sönn­un­ar­gagn í mál­inu og nauð­syn­legt sem slíkt til að sýna fram á tjón HD verks.

Fyr­ir­liggj­andi er að slíkur mála­rekstur geti staðið í nokkur ár.

Borgin gæti verið krafin um bætur

Lögmaður HD verks, Skúli Sveins­son, stað­festir þann skiln­ing. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að húsið verði ekki rifið á næstu mán­uðum. „Við von­umst til þess að þetta ger­ist á næstu árum.“

Aðspurður hvað ger­ist ef bygg­ing­ar­full­trúi Reykja­víkur bregð­ist við þeirri afstöðu með því að rífa ein­fald­lega húsið segir Skúli að því verði þá mót­mælt. „Ef bygg­ing­ar­full­trúi rífur húsið og eyði­leggur sönn­un­ar­gögnin okkar þá munum við bara krefja borg­ina um bætur. Mis­mun­inn á því sem VÍS telur sér skylt að borga og því sem við teljum tjónið vera. Borgin verður þá bara að borga mis­mun­inn, ef þeir vilja fjar­lægja húsið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið undanfarið ár