Marek metinn ósakhæfur og sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins

Dómur liggur fyrir í einu stærsta mann­dráps­máli sem komið hefur fyrir íslenska dóm­stóla þar sem tvær konur og einn karl­maður lét­ust í elds­voð­anum á Bræðra­borg­ar­stíg 1 síð­ast­liðið sumar.

Marek Moszczynski var í dag sýkn­aður af refsi­kröfu ákæru­valds­ins fyrir brennu, til­raun til mann­dráps og þrefalt mann­dráp. Hann var met­inn ósak­hæfur og skal sæta vistun á við­eig­andi rétt­ar­gæslu­stofnun. Barbara Björns­dóttir hér­aðs­dóm­ari kvað upp dóm­inn í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur klukkan 15:00 í dag.

Ákærða er gert að greiða fyrr­ver­andi íbúum á Bræðra­borg­ar­stíg bætur, sem nema allt frá 500 þús­und krónum upp í 11 millj­ónir. Allur sak­ar­kostn­aður verður greiddur upp úr rík­is­sjóði. Hægt er að lesa dóm­inn hér.

Þetta er í fyrsta skipti sem maður er ákærður fyrir að bana þremur en tvær konur og einn karl­maður lét­ust í elds­voð­anum. Þetta er því stærsta mann­dráps­mál sem komið hefur fyrir íslenska dóm­stóla.

Í dómnum segir að ákærði hafi „verið fund­inn sekur um mjög alvar­leg brot sem höfðu hrika­legar afleið­ingar“. Þá sé hafið yfir skyn­sam­legan vafa að nokkur annar en ákærði hafi getað verið valdur að brun­anum.

Jafn­framt kemur fram að úti­lokað sé að segja fyrir um það með vissu hvernig and­legri heilsu ákærða verði háttað til fram­tíðar. „Það liggur því fyrir að nauð­syn­legt er að fylgj­ast náið með geð­rænu ástandi hans, meta ein­kenni hans og þróun þeirra, stilla af lyfja­með­ferð og gera áhættu­mat. Telur dóm­ur­inn, sem skip­aður er sér­fróðum með­dóms­manni, að nauð­syn­legt sé vegna réttar­ör­yggis að ákærði sæti örygg­is­gæslu á við­eig­andi stofnun. Þá þykir rétt að á þeim tíma gang­ist ákærði undir við­eig­andi með­ferð vegna veik­inda sinna.“

Niðurstaðan kom varahéraðssaksóknara ekki á óvart

Kolbrún Bene­dikts­dóttir vara­hér­aðs­sak­sókn­ari sagði við blaða­menn eftir dóms­upp­kvaðn­ingu að nið­ur­staðan kæmi sér ekki á óvart og nú yrði dóm­ur­inn skoð­aður og staðan metin. Ekki lægi fyrir hvort dómnum yrði áfrýjað.

Stefán Karl Krist­jáns­son, verj­andi Mareks Moszczynski, sagði í sam­tali við blaða­menn að dóm­ur­inn um sýknu hefði verið nið­ur­staðan sem þeir bjugg­ust við. „Hann er met­inn ósak­hæfur og á ég eftir að skoða for­sendur dóms­ins betur og fara yfir hann. Við hreyfðum við ákveðnum sjón­ar­miðum sem kalla á skýr­ari svör við en það er manía af völdum lyfja sem er mjög fátítt en eins og ég hef sagt áður þá er alltaf ein­hver sem veik­ist af sjald­gæfu sjúk­dómunum.“

Hann sagð­ist ætla að heyra í skjól­stæð­ingi sínum í dag, fara yfir dóm­inn og taka ákvarð­anir um næstu skref. „Mér finnst grund­völlur fyrir því að skoða áfrýjun í ljósi þess að hann hefur ætíð haldið fram sak­leysi sínu. Það kæmi mér á óvart ef ekki væri skoðað alvar­lega að fara með málið áfram.“

Rétt­ar­höldin hófust í lok apríl en ákæru­valdið fór fram á ævi­langt fang­elsi en örygg­is­vistun yrði hann dæmdur ósak­hæfur. Marek sagð­ist sak­laus og verj­andi hans lagði meðal ann­ars áherslu á að eng­inn hefði séð hann kveikja í og að á honum og fötum hans hefði ekki fund­ist ummerki á borð við bensín- eða reykj­ar­lykt við hand­töku.

Stefán Karl beindi sjónum að pari sem bjó á jarð­hæð húss­ins og því að svo kynni að vera að Marek hefði verið í maníu vegna sýkla­lyfja dag­inn sem brun­inn varð. Því ætti ekki að vista hann í örygg­is­gæslu, yrði hann fund­inn sekur.

Neitaði alltaf sök

Marek Moszczynski er fæddur í Póllandi í des­em­ber árið 1957. Hann flutti til Íslands fyrir nokkrum árum til að vinna en í lok júní­mán­aðar síð­asta sumar bár­ust tvær alvar­legar til­kynn­ingar til neyð­ar­lín­unnar nær sam­tímis: Það var mik­ill eldur í húsi á Bræðra­borg­ar­stíg og karl­maður lét ófrið­lega við rúss­neska sendi­ráðið í Garða­stræti. Fljót­lega var ljóst að atburð­irnir tveir tengd­ust. Sá sem lög­reglan hand­tók við sendi­ráðið bjó að Bræðra­borg­ar­stíg – í hús­inu sem stóð í björtu báli að því er virt­ist á örskots­stundu.

Hinn hand­tekni var Marek. Þegar vakn­aði grunur um að hann hefði kveikt eld í hús­inu og notað til þess bensín, yfir­gefið það svo strax og lagt leið sína að sendi­ráð­inu í Garða­stræti.

Hann hefur verið í varð­haldi síðan en hér­aðs­sak­sókn­ari ákærði hann í haust fyrir brennu, mann­dráp og til­raun til mann­dráps sem og fyrir brot gegn vald­stjórn­inni. Þá neit­aði hann sök.

Glíma enn við afleiðingar áfallsins

Kjarninn hefur ítar­lega fjallað um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg en í þeirri umfjöllun kom meðal ann­ars fram að brun­inn hefði afhjúpað þær slæmu aðstæður sem útlend­ingar búa hér oft við. Í umfjöll­un­inni var fjallað um húsið sjálft, eig­endur þess og sögu og við­brögð opin­berra stofn­anna og ann­arra við atburði sem á sér enga hlið­stæðu á síð­ari tímum. Varpað var ljósi á fram­lag erlends verka­fólks í auk­inni hag­sæld íslensku þjóð­ar­innar, á kjör þess og þær aðstæður sem það er látið búa við og hvernig þær aðstæður gátu skap­ast.

[links]Fjallað var um sam­fé­lagið í Gamla Vest­ur­bænum sem stóð þétt saman og reyndi eftir fremsta megni að rétta fórn­ar­lömbunum, sem mörg hver hafa lítið tengsla­net hér á landi, hjálp­ar­hönd og sagðar sögur þeirra sem komu fyrst á vett­vang brun­ans.

Þunga­miðja umfjöll­un­ar­innar voru frá­sagnir þeirra sem lifðu af. Fólks sem kom til Íslands í leit að betra lífi en glímir nú við afleið­ingar áfalls­ins sem á eftir að fylgja því alla ævi. „Ég hugsa stundum um það hvort að ég hefði getað leikið ofur­hetju og bjargað þeim,“ sagði Vasile Tibor Andor sem komst út úr brenn­andi hús­inu á síð­ustu stundu. „En ég veit innst inni að ég gat það ekki. Að þegar ég vissi af eld­inum var það orðið of seint.“

Til stendur að rífa húsið í vikunni

RÚV greindi frá því í gær að rífa ætti það sem eftir stendur af hús­inu við Bræðra­borg­ar­stíg 1 annað hvort í dag eða á morgun. Íbúar í hverf­inu væru orðnir lang­þreyttir á að hafa rúst­irnar fyrir aug­unum.

„Þorpið vist­fé­lag keypti húsið af félag­inu HD verk sem var eig­andi húss­ins þegar kvikn­aði í. Sigurður Smári Gylfason fram­kvæmda­stjóri Þorpsins segir í sam­tali við frétta­stofu að öll leyfi séu komin í hús til að hefja nið­ur­rif og und­ir­bún­ingur sé á loka­metr­unum,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár