Byggt verði af virðingu við fórnarlömb brunans og húsin í kring

Íbúar í Vesturbæ skora á borg­ar­yf­ir­völd að eign­ast lóð­ina við Bræðra­borg­ar­stíg 1 og 3. Þeir segja reit­inn ekki bera áformað bygg­ing­ar­magn og vilja að þar verði reistur minn­is­varði um fórn­ar­lömb elds­voð­ans og byggt í takti við timb­ur­húsin í nágrenn­inu.

Fjöl­mennur hópur nágranna Bræðra­borg­ar­stígs 1-3 hefur sent áskorun á borg­ar­stjóra, borg­ar­stjórn og eig­endur bygg­ing­ar­reits­ins þar sem skorað er á yfir­völd að útvega eig­and­anum aðra lóð sem þolir meira bygg­ing­ar­magn. Reykja­vík­ur­borg taki síðan við lóð­inni og þrói hana með íbúum og nærum­hverfi.

Fyrir um átján mán­uðum varð mann­skæð­asti elds­voði i sögu höf­uð­borg­ar­innar í hús­inu að Bræðra­borg­ar­stíg 1. Þrír lét­ust, allt ungt fólk. Nágrannar vilja að á lóð­inni verði minn­is­varði um brun­ann og reit­ur­inn byggður upp af virð­ingu við fórn­ar­lömbin og þá mik­il­vægu menn­ing­ar­arf­leifð sem felist í einu elsta byggða­mynstri borg­ar­innar. Hópurinn leggur m.a. til að gömul hús sem áður stóðu á þessum slóðum verði flutt á reit­inn og hann verði sam­komu­staður fólks­ins í Gamla Vest­ur­bænum.

„Þetta er hápólítískt mál sem snýst um menn­ingu okkar og sögu. Nú gefst borg­ar­yf­ir­völdum tæki­færi til að sýna í verki stefnu sína gagn­vart elsta hluta borg­ar­innar,“ segir Frið­björg Ingi­mars­dóttir, sem búið hefur á svæð­inu í þrjá ára­tugi og er meðal þeirra rúm­lega fimm­tíu nágranna sem sendu áskor­un­ina. Hún segir að allt frá hinum skelfi­lega elds­voða hafi það blundað í nágrönn­unum að á reitnum yrði fórn­ar­lamba elds­voð­ans minnst. „Ástvinir þeirra sem lét­ust og þeirra sem misstu allt sitt í elds­voð­anum komu hingað svo mán­uðum skipti og lögðu blóm við bruna­rúst­irnar,“ segir Frið­björg en hún býr að Vest­ur­götu 45, við hlið hús­anna sem ýmist brunnu eða skemmd­ust í elds­voð­anum.

Nágrannar höfðu verið áhyggju­fullir vegna ástands Bræðra­borg­ar­stígs 1 í ára­tug og ítrekað vakið athygli yfir­valda á því. Þeir sem svo urðu vitni að elds­voð­anum urðu fyrir miklu áfalli sem þeir glímdu við lengi. „Það er því rétt hægt að ímynda sér áfallið og sorg­ina sem ást­vinir þeirra sem lét­ust hafa þurft að ganga í gegnum.“

Núver­andi eig­endur lóð­ar­innar, Þorpið vist­fé­lag, létu rífa bruna­rúst­irnar, Bræðra­borg­ar­stíg 1 og Vest­ur­götu 47, nýverið og áforma að byggja á reitnum hús með 26 íbúðum fyrir eldri, ein­stæðar konur. Hin fem­iníska hug­mynda­fræði er fal­leg, segir Frið­björg, en bygg­ing­ar­magnið er hins vegar „óheyri­legt“.

Að hennar mati var horn­húsið að Bræðra­borg­ar­stíg 1 eitt af glæsi­legri og reisu­leg­ustu húsum Vest­ur­bæjar. Við­bygg­ingin sem seinna kom og stóð við Vest­ur­götu 47 hafi aldrei átt þar heima heldur stungið í stúf í götu­mynd­inni sem nýtur nú sér­stakrar verndar Minja­stofn­unar. Karakter horn­húss­ins hafi hins vegar verið mik­ill og ekki síður saga þess.

Á síð­ustu ára­tugum 19. aldar og og á önd­verðri tutt­ug­ustu öld­inni voru timb­ur- og stein­hús tekin að rísa í stað torf­bæja á þeim slóðum sem í dag kall­ast Gamli Vest­ur­bær­inn. Á þessu fyrsta vaxt­ar­skeiði Reykja­víkur reis ný byggð við Bræðra­borg­ar­stíg og Fram­nes­veg í vest­urbæ og í norður- og vest­ur­hluta Skóla­vörðu­holts í aust­urbæ. Þessi byggð reis fyrst í stað án skipu­lags og sökum þess er yfir­bragð hennar óvenju marg­breyti­legt með ýmis konar hús­gerðum, stíl­brigðum og götu­myndum. Fjöl­breytni í efn­isvali setur ein­kenn­andi svip á útlit hús­anna, sem eiga það sam­merkt að vera áþekk að stærð, ýmist tví- eða þrí­lyft og fremur lítil um sig.

Eitt þeirra, Bræðra­borg­ar­stíg 1, byggði Otti Guð­munds­son árið 1906. Húsið átti síðar eftir að hýsa bak­arí og verslun sem urðu mið­stöð hverf­is­ins í ára­tugi. En þetta var líka fjöl­skyldu­hús þar sem atorku­mikið og hjálp­samt fólk bjó, elskaði, missti og sakn­að­i, líkt og rakið var í ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans fyrir tæpu ári. Horn­húsið hans Otta á Bræðra­borg­ar­stíg og Vest­ur­götu stóð í heila öld og fjórtán ár til, eða þar til það stóð í ljósum logum á júnídegi árið 2020.

Rústir hornhússins á Bræðraborgarstíg 1 stóðu mánuðum saman.
Rústir horn­húss­ins á Bræðra­borg­ar­stíg 1 stóðu mán­uðum saman.
Búið er að rífa brunarústirnar.
Búið er að rífa bruna­rúst­irnar.

„Vest­ur­gatan og næsta nágrenni er best varð­veitta götu­mynd Reykja­víkur með þessum gömlu timb­ur­húsum,“ segir Frið­björg, „og okkur ber að vernda þessa ásýnd.“ Hún segir að „því miður“ hafi nokkur hús við Vest­ur­göt­una verið rifin á sínum tíma og önnur byggð í stað­inn sem hefðu mátt passa betur inn í þetta ein­staka umhverfi. Af þeirri reynslu verði að læra og því ætti að staldra við þegar upp koma hug­myndir um að byggja stórt fjöl­býl­is­hús „í allt öðrum stíl“ á hinu sögu­fræga horni Vest­ur­götu og Bræðra­borg­ar­stígs. „Þetta gengur of langt,“ segir hún. „Svona ótrú­lega mikið bygg­ing­ar­magn myndi rjúfa þá stemn­ingu sem hér er og er ein­stök, hvernig sem á það er litið.“

Frið­björg segir að vissu­lega hafi timb­ur­húsin í gamla Vest­ur­bænum þró­ast og breyst hvert með sínum hætti í tím­ans rás en að þau beri þó öll enn merki þess að vera frá þeim tíma er þetta fyrsta úthverfi Reykja­víkur varð til. Húsin sem liggja að Bræðra­borg­ar­stíg séu til að mynda flest vel yfir hund­rað ára gömul. „Í þessu fel­ast gríð­ar­leg menn­ing­ar­leg verð­mæti,“ segir hún og þess vegna hvetji íbú­arnir borg­ar­yf­ir­völd til að eign­ast bygg­ing­ar­reit­inn, annað hvort með kaupum eða með því að bjóða fjár­fest­unum aðra lóð í stað­inn.

Hér má sjá fyrstu hugmyndir Þorpsins vistfélags að grófu skipulagi byggingareitsins.
Hér má sjá fyrstu hug­myndir Þorpsins vist­fé­lags að grófu skipu­lagi bygg­ing­areits­ins.

Íbúa­hóp­ur­inn sér til dæmis fyrir sér að hægt verði að flytja eldri timb­ur­hús annað hvort af Árbæj­ar­safni eða ann­ars staðar frá á reit­inn, „hús sem myndu varpa ljósi á þennan gamla tíma og falla vel að þess­ari sér­stæðu götu­mynd. Það er ekki þar með sagt að það mætti ekki end­ur­byggja það glæsi­lega hús sem þarna stóð“.

Í áskorun íbú­anna eru raktar átta ástæður fyrir því að þeir telji að borgin ætti að ganga til samn­inga við lóð­ar­hafa með það að mark­miði að eign­ast lóð­irnar að Bræðra­borg­ar­stíg 1 og 3:

● Mik­il­vægi menn­ing­ar­arf­leifðar

● Varð­veisla eins elsta byggða­mynsturs borg­ar­innar

● Mögu­leika á að end­ur­heimta í hverfið horfið hús.

● Vöntun á grænu svæði fyrir íbúa

● Vöntun á leik­svæði fyrir börnin

● Tenging opinna svæða við þró­un­ar­svæði við höfn­ina

● Virðing við fórn­ar­lömb brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg 1

● Minn­is­varði fyrir mann­skæð­asta bruna í sögu Reykja­víkur

Svona leit Bræðraborgarstígur 1 út árið 1920.
Svona leit Bræðra­borg­ar­stígur 1 út árið 1920.

„Áskor­unin er komin til vegna þess að margir íbúar hér hafa áhyggjur af þróun hverf­is­ins,“ segir sagn­fræð­ing­ur­inn Astrid Lelarge sem eins og Frið­björg býr við Vest­ur­göt­una. Hún hefur sér­hæft sig í skipu­lags­sögu og þekkir því vel til þess­ara mála. „Hér eru flest húsin úr timbri og mik­ill sam­hljómur í húsa­gerð­inni. Þess vegna hefur götu­myndin hlotið vernd Minja­stofn­unar.“

Núna eru hins vegar blikur á lofti að mati íbú­anna sem telja að með áform­aðri upp­bygg­ingu á reitnum yrði gríð­ar­leg breyt­ing á götu­mynd­inni sem er að sögn Astrid hluti af menn­ing­ar­arf­leifð Reykja­víkur og lands­ins alls.

Ef hægt að færa burt er hægt að færa til baka

Til­hneig­ing er að hennar sögn fyrir því í Reykja­vík að færa gömul hús í stað þess að varð­veita þau þar sem þau eru byggð til að rýma fyrir nýrri bygg­ingum. Þannig hafi vissu­lega tek­ist að varð­veita mörg eldri hús en ekki að sama skapi götu­myndir þar sem litið er á hlut­ina í stærra sam­hengi. „Það góða er að ef það var hægt að færa til gömul hús þá ætti að vera hægt að færa þau aftur á sama stað eða svip­aðar slóðir.“

Þess vegna er lagt til í til­lögu íbúa­hóps­ins að það verði gert og fundin verði hús sem passi vel við götu­mynd Gamla Vest­ur­bæj­ar­ins. Telja þeir m.a. upp­lagt að flytja Ívarssel, hús sem byggt var 1869 og stóð við Vest­ur­götu 66b en er nú á Árbæj­ar­safni, „aftur heim á Vest­ur­göt­una þar sem Vest­ur­gata 47 stóð“. Þar gætu fleiri fengið að njóta þess og það myndi auk þess styrkja götu­mynd­ina og gamla byggða­mynstrið.

Ívarssel stóð við Vesturgötu en var flutt á Árbæjarsafnið þar sem það er enn.
Ívarssel stóð við Vest­ur­götu en var flutt á Árbæj­ar­safnið þar sem það er enn.

„Þegar við tölum um götu­mynd erum við ekki aðeins að tala um varð­veislu hvers húss fyrir sig heldur lands­lags og umhverfis sem hefur mikla sögu þeirra sem þar bjuggu og unnu,“ minnir Astrid á. Hugmynd íbú­anna gangi út á að standa vörð um sög­una og hennar gildi til fram­tíðar. „Mér finnst þær hug­myndir sem settar hafa verið fram um upp­bygg­ing­una á bygg­ing­ar­reitnum ekki vera við­eig­andi á þessum stað og að þær myndu eyði­leggja götu­mynd­ina.“

Eftir elds­voð­ann vill sam­fé­lagið í Gamla Vest­ur­bænum fá að taka þátt í að móta fram­tíð­ina í hjarta hverf­is­ins. Það er þeirra vilji að þarna verði sam­komu­staður, grænt svæði, leik­svæði og lítið sam­komu­hús, sem allir geti notið. „Og það ætti að hlusta á raddir íbú­anna og hvað þeir hafa til mál­anna að leggja.“

Framkvæmdir á vegum borgarinnar við lóðina þar sem hornhúsið stóð að Bræðraborgarstíg 1.
Fram­kvæmdir á vegum borg­ar­innar við lóð­ina þar sem horn­húsið stóð að Bræðra­borg­ar­stíg 1.
Lágreist hús og há tré við lóðina að Bræðraborgarstíg.
Lágreist hús og há tré við lóð­ina að Bræðra­borg­ar­stíg.

Gefa þarf fólki tíma til að syrgja

Astrid segir að íbú­arnir og þeir sem misstu ást­vini sína í brun­anum þurfi líka að fá tíma til að syrgja og fyrir sárin að gróa. „Þetta var áfall fyrir marga, fyrst og fremst fyrir þá sem bjuggu þarna og ást­vini þeirra.“

Hún segir líka erfitt fyrir marga nágranna að horfa upp á það sem gerð­ist, sér­stak­lega eftir að ítrekað var varað við ástandi húss­ins. Sumir þeirra hafi svo orðið vitni að elds­voð­anum. „Það sem er byggt upp í stað­inn, eftir svona áföll, skiptir miklu máli og hefur líka áhrif á fólk. Það verður að taka það með í reikn­ing­inn þegar farið er að huga að upp­bygg­ingu á ný á þessum stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið undanfarið ár