Byggingin „lík virki“ og skýringarmyndir „fráhrindandi“

Skipu­lags­full­trúi fellst ekki á að færa og snúa gömlu húsi á Bræðra­borg­ar­stíg, segir gólf­síða glugga áform­aðrar nýbygg­ingar „ein­hæfa“, „stór­eflis“ kvisti eins og hús­hlið að ryðj­ast upp á þak og fram­komnar skýr­ing­ar­myndir „frá­hrind­andi og kaldar“.

Horft frá bakgarði til vesturs.
Horft frá bak­garði til vest­urs. Mynd: Yrki arkitektar

Tillaga sem Yrki arki­tektar ehf. unnu fyrir Þorpið vist­fé­lag um upp­bygg­ingu á Bræðra­borg­ar­stíg 1 og 3 dregur upp mynd af „inn­hverfri“ bygg­ingu sem er „lík virki sem hrindir frá sér umhverf­inu“. Útfærsla bygg­inga er bæði „umfangs­mikil og nokkuð fram­andi“ með til­liti til byggða­mynsturs í gamla Vest­ur­bænum og þyrfti að opna sig mun betur út í umhverfið og sam­fé­lagið. Ekki er aug­ljóst að fall­ast á sam­ein­ingu lóð­anna tveggja og nauð­syn­legt er að vinna heild­ar­deiliskipu­lag yfir reit­inn á kostnað fram­kvæmda­að­ila.

[adspot]

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn skipu­lags­full­trúa Reykja­víkur frá því um miðjan júní vegna fyr­ir­spurnar fram­kvæmda­að­ila um áform­aða upp­bygg­ingu á reitnum. Kveikt var í horn­hús­inu að Bræðra­borg­ar­stíg 1 í fyrra­sumar með þeim afleið­ingum að þrjár ungar mann­eskjur sem þar bjuggu lét­ust. Um mann­skæð­asta elds­voða í sögu höf­uð­borg­ar­innar er að ræða.

[links]Þá var húsið sem og Bræðra­borg­ar­stígur 3 í eigu fyr­ir­tæk­is­ins HD verks en um síð­ustu ára­mót keypti Þorpið vist­fé­lag þau með fyr­ir­ætl­unum um að sam­eina lóð­irnar og þróa innan þeirra BabaYaga-systra­fjöl­býli að erlendri fyr­ir­mynd – sam­býli eldri kvenna sem vilja minnka við sig og sækja styrk í félags­legt sam­lag.

Þorpið hefur tví­vegis kynnt til­lögur að upp­bygg­ing­unni í formi fyr­ir­spurna til skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar, fyrst í des­em­ber í fyrra og aftur síð­asta vor. Í þeirri fyrri var kynnt áætlun um 26 íbúðir en í þeirri seinni 23 auk stórrar sam­eignar. Gert er ráð fyrir þyrp­ingu sam­fastra húsa á tveimur til fjórum hæðum auk ris­hæða á sam­einaðri lóð með lok­uðum bak­garði. Bygg­ing­ar­magn yrði aukið umtals­vert frá því sem var. Í síð­ustu viku sendu yfir 50 nágrannar sam­eig­in­lega áskorun til yfir­valda um að borgin eign­ist lóð­irnar og útvegi fram­kvæmda­að­ila aðra í stað­inn sem hæfi svo miklu bygg­ing­ar­magni. Vilja nágrann­arnir að byggt verði á lóð­unum af virð­ingu við fórn­ar­lömb brun­ans og í takti við hin sér­stæðu timb­ur­hús á svæð­inu. Vegna þeirra frétta óskaði Kjarninn eftir að fá sendar umsagnir skipu­lags­full­trúa um hina áform­uðu upp­bygg­ingu á lóð­unum.

Í seinni umsögn skipu­lags­full­trúa um til­lög­urnar, sem Ingvar Jón Bates Gíslason arki­tekt vann fyrir hönd emb­ætt­is­ins, er farið yfir fjöl­mörg atriði sem þarf að hafa í huga við upp­bygg­ingu í gömlu og grónu hverfi sem auk þess nýtur verndar í aðal­skipu­lagi. Ígrunda þurfi slík áform út frá byggð­ar­mynstri, sér­kennum jafnt sem fag­ur­fræði­legum ein­kennum og jafn­framt hug­leiða mögu­legt for­dæm­is­gildi til­lög­unnar. „Almennt er mik­il­vægt að farið sé var­lega í breyt­ingar á hverri lóð svo sátt sé um í hverf­inu.“

Þá eru gerðar fjöl­margar athuga­semdir við útlit hús­anna eins og það birt­ist í til­lög­unni, m.a. að ný tengi­bygg­ing með fram Bræðra­borg­ar­stígnum sé það stór að vart megi sjá upp­brot mis­mun­andi húsa og að skýr­ing­ar­myndir virki „fremur kaldar og frá­hrind­andi“.

Einnig er bent á að þrátt fyrir lít­il­lega fækkun íbúða­ein­inga frá fyrri til­lögu, sem skipu­lags­full­trúi gaf umsögn um í jan­úar, séu „núver­andi hug­myndir um upp­bygg­ingu innan lóð­anna full umfangs­miklar að teknu til­liti til nágrenn­is­ins og byggða­mynsturs“.

Tillaga Yrkis arki­tekta fyrir Þorpið vist­fé­lag gerir ráð fyrir nýrri horn­bygg­ingu á lóð Bræðra­borg­ar­stígs 1 í sam­felldu L-laga formi. „Ekki er að sjá að ætl­unin sé að byggja upp fyrrum tví­lyft timb­ur­hús með risi frá 1906 með horn­sneið­ingu, á horni Vest­ur­götu og Bræðra­borg­ar­stígs þrátt fyrir ábend­ingu skipu­lags­full­trúa þar um í fyrri umsögn, heldur byggja nútíma­legt hús, í raun eina nýbygg­ingu,“ segir í umsögn skipu­lags­full­trúa. Samkvæmt til­lög­unni skarti nýbygg­ingin „stór­eflis kvistum sem skera sig mjög úr umhverf­inu og má með nokkrum rétti spyrja hvort um kvisti sé að ræða eða hvort sjálfar hús­hlið­arnar ryðj­ist upp á þak. Gólf­síðir gluggar í reglu­legri end­ur­tekn­ingu auka mjög á fram­and­leika við ríkj­andi byggða­mynstur á reitnum og hús gegnt nýbygg­ing­unni.“

Ekki er fall­ist á slíka ein­hæfni og lagt til að glugga­form taki mið af eldri byggð – að þau sýni til­breyt­ingu bæði í stærð og gerð. Stærð og form ein­stak­lings­í­búða taki mið af sér­hverju upp­broti hús­hliða „í stað fjöl­föld­unar íbúð­anna líkt og um nýja íbúða­blokk í nýju hverfi væri að ræða“.

Að mati skipu­lags­full­trúa verða hönn­uðir að rýna betur í leið­bein­ingar hans varð­andi stærðir og útlit nýbygg­inga með til­liti til stærðar og ald­urs húsa í næsta nágrenni.

Þá gera til­lög­urnar ráð fyrir að húsið á Bræðra­borg­ar­stíg 3 verði „fært nær upp­runa­legu horfi” og hækkað um eina hæð. Í seinni til­lög­unni er að auki gert ráð fyrir að snúa hús­inu og flytja það innan lóðar, þétt að lóða­mörkum húss­ins að Bræðra­borg­ar­stíg 5.

Skipu­lags­full­trúi tekur jákvætt í hug­myndir hönn­uða að end­ur­byggja húsið í upp­runa­legri mynd með alda­móta­gluggum og hækka það með bygg­ingu kjall­ara. Hann fellst hins vegar ekki á að það verði fært innan lóð­ar­innar og því snúið. Hann segir það enn fremur verða að telj­ast „djarfa hug­mynd“ að bjóða upp á færslu húss og leggja við lóða­mörk nágranna að því er virð­ist án sam­ráðs við þá.

Á skýr­ing­ar­myndum hönn­uða má sjá að í lok­uðum bak­garði er gert ráð fyrir tölu­verðri notkun vænt­an­legra íbúa sam­lags­ins, svo sem aðstöðu undir útisnúrur frá þvotta­húsi, græn­met­is­garð og sól­ar­svæði, auk heits pottar, sem eru allt áhuga­verðar hug­myndir að mati skipu­lags­full­trúa.

Útfærsla á stærð bak­garðs­ins er hins vegar „nokkuð tak­mörkuð og aflokuð“ segir í umsögn skipu­lags­full­trúa sem helgist af því bygg­ing­ar­magni sem til­lagan geri ráð fyrir. Huga þurfi því „vel að því við frek­ari útfærslu bygg­ing­ar­reits­ins að draga úr bygg­ing­ar­magni“.

Innan reits­ins Stýri­manna­stígur – Vest­ur­gata – Bræðra­borg­ar­stígur – Rán­ar­gata, sem umræddar lóðir eru innan, eru þegar sam­tals 28 íbúðir á 14 lóðum. Núver­andi með­al­nýt­ing­ar­hlut­fall innan reits­ins er 0,8. Í fyrri til­lögu Yrki arki­tekta kom fram að nýt­ing­ar­hlut­fall innan lóð­anna tveggja yrði 1,9. Horfið var svo frá því að gera kjall­ara þar sem sprengja þyrfti klöpp og fór það þá upp í 2,32. Miðað við bygg­ing­ar­magn sam­kvæmt seinni til­lög­unni yrði hlut­fallið í 2,29.

Í umsögn­inni er bent á að af upp­færðri til­lögu höf­unda megi ráða að á meðal ávinn­ings við sam­ein­ingu lóða sé að upp­færa eina stór­bygg­ingu í sömu hæð frá til­teknum við­mið­un­arfleti þvert á lóð­irnar. Á þetta fellst skipu­lags­full­trúi ekki og bendir á að í dag „stall­ist“ húsin milli lóð­anna eftir lands­lag­inu „sem byggir með afger­andi hætti undir þá til­finn­ingu að húsin, sam­kvæmt núver­andi horfi, aðlag­ast umhverf­inu með áreynslu­lausum hætti“.

Skipu­lags­full­trúi bendir á að borg­ar­vernd­ar­stefna gild­andi aðal­skipu­lags geri götum og torgum hátt undir höfði, m.a. við end­ur­reisn eða end­ur­gerð þeirra. Vest­ur­gatan nr. 1 við Bræðra­borg­ar­stíg sé ein þeirra. „Almennt má segja að sá er mætir á reit sem þennan með fjöl­breyttu byggða­mynstri með það að mark­miði að byggja upp og bæta við, skal horfa til þess sem var og jafn­framt gæta þess að lofta um ef boðið er upp á aukið bygg­ing­ar­magn.“

Í umsögn hans um til­lögur að upp­bygg­ingu á lóðum 1 og 3 við Bræðra­borg­ar­stíg segir svo: „Hönnuðir eru hvattir til að sýna fram á meira sann­fær­andi nýja bygg­ing­ar­list sem bland­ast betur við það gamla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár