„Hér er ekki um leikaraskap, slysni eða eitthvað grín að ræða“

Það er mat ákæru­valds­ins að Marek sé ekki að segja nákvæm­lega allt sem hann muni frá deg­inum sem brun­inn á Bræðra­borg­ar­stíg varð. Verjandi fer fram á að ef hann verði fund­inn sekur og ósak­hæfur verði hann ekki dæmdur til örygg­is­gæslu.

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari í dómsal í dag.
Kolbrún Bene­dikts­dóttir vara­hér­aðs­sak­sókn­ari í dóm­sal í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Svart­þrestir syngja. Hátt og snjallt eins og þeim einum er lagið. Það er glaða­sól­skin líkt og und­an­farna daga og trén í borg­inni eru óðum að vakna eftir vetr­ar­dvala, mörg farin að springa út og und­ir­búa sig fyrir að mynda enn einn árhring­inn.

Vorinu fylgir von. Og vor­inu fylgir líf.

Fyrir tíu mán­uðum týndu þrjár ungar mann­eskjur lífi í mann­skæð­asta elds­voða sem orðið hefur í höf­uð­borg­inni Reykja­vík. Marek Moszczynski, sem leigði her­bergi líkt og þau í horn­hús­inu á Bræðra­borg­ar­stíg og Vest­ur­götu, er sak­aður um að hafa kveikt í því og valdið þannig dauða þeirra.

[adspot]

Ákæru­valdið fer fram á ævi­langt fang­elsi en örygg­is­vistun verði hann dæmdur ósak­hæfur. Marek seg­ist sak­laus og verj­andi hans leggur m.a. áherslu á að eng­inn hafi séð hann kveikja í og að á honum og fötum hans hafi ekki fund­ist ummerki á borð við bensín- eða reykj­ar­lykt við hand­töku. Hann hefur beint sjónum að pari sem bjó á jarð­hæð húss­ins og því að svo kunni að vera að Marek hafi verið í maníu vegna sýkla­lyfja dag­inn sem brun­inn varð. Því eigi ekki að vista hann í örygg­is­gæslu, verði hann fund­inn sekur.

5. maí 2021 – síðasti dagur aðalmeðferðar

Stefán Karl Krist­jáns­son, verj­andi Mareks mætir fyrstur í dóm­sal­inn. Biðst afsök­unar á „ves­en­inu á sér“ á föstu­dag­inn þegar fresta varð rétt­ar­höld­unum vegna veik­inda hans. Fimm dögum síðar heldur aðal­með­ferðin áfram og í dag lýkur henni með mál­flutn­ingi allra aðila; sækj­anda, verj­anda og rétt­ar­gæslu­manns þeirra íbúa sem voru inni í hús­inu er eld­ur­inn kvikn­aði. Fólks sem missti margt hvert allt sitt. Sumir heils­una tíma­bundið. Aðrir glíma enn við eft­ir­köst atburð­anna. Hrökkva upp á nótt­unni og halda að eldur sé kvikn­aður. Eru kvíðnir. Daprir. Ástvinir þeirra sem lét­ust eru í sárum. Misstu ungt fólk í blóma lífs­ins.

Verj­and­inn byrjar á að dreifa ein­tökum af ítar­legri sam­an­tekt til dóm­ara og sækj­anda sem hann hefur tekið saman um ástand sem nefn­ist anti­biom­ania. Um er að ræða afar fágæta auka­verkun sýkla­lyfja sem hann og lík­lega flestir í dóm­sal heyrðu fyrst af í máli eins geð­læknis sem mætti fyrir dóm­inn í síð­ustu viku. Stefán Karl vill að tek­inn verði til greina sá mögu­leiki að sjúk­legt ástand Mareks um það leyti sem brun­inn varð hafi verið vegna sýkla­lyfja sem hann tók við alvar­legu maga­sári.

Marek er ekki við­staddur rétt­ar­höldin í dag líkt og hann hefur gert hingað til. Frétta­menn tín­ast hins vegar inn í sal­inn einn af öðrum. Full­trúar sex fjöl­miðla eru mættir. Sak­sókn­ar­inn Kolbrún Bene­dikts­dóttir er líka komin. Hún kemur sér fyrir við borð vinstra megin í salnum. Guð­brandur Jóhann­es­son rétt­ar­gæslu­maður mætir með kassa fullan af möppum í fang­inu. Leggur hann frá sér á borðið við hlið Kol­brúnar áður en hann fer ofan í tösku og sækir skikkj­una. Fær sér vatn í glas. Möppunum er var­lega raðað á borðið. Pappa­kass­inn fer undir það.

Allir við­staddir standa upp er dóm­ar­arnir þrír ganga í sal­inn. Barbara Björns­dóttir for­maður dóms­ins til­kynnir að þing­hald sé sett.

Bensínkaup rannsökuð

Fyrsta og eina vitni dags­ins er lög­reglu­maður sem kom að einum anga rann­sókn­ar­innar á sínum tíma sem fólst í öflun upp­lýs­inga um kaup á bens­íni í litlu magni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skömmu áður en brun­inn varð á Bræðra­borg­ar­stíg. Þar sem þetta var um hásumar var ljóst að margir væru að kaupa bensín á brúsa, t.d. á sláttu­vélar, á vespur eða mót­or­hjól.

Farið var í þetta í kjöl­farið á því að plast­flaska fannst á vett­vangi elds­voð­ans og grunur vakn­aði um að í henni hefði verið eld­fimur vökvi, mögu­lega bensín. Slíkt var ekki sannað í rann­sókn máls­ins.

Stefán Karl vill vita hvaða fyr­ir­mæli lög­reglu­mað­ur­inn fékk við öflun gagna, m.a. efnis úr eft­ir­lits­mynda­vélum. Var verið að leita sér­stak­lega að Marek á myndefn­inu eða „voru mynd­irnar skoð­aðar með til­liti til að ein­hver annar hafi keypt bensín?“

Lög­reglu­mað­ur­inn svarar að það hafi „klár­lega“ verið gert. Í upp­hafi voru settar fram til­gátur og með úti­lok­un­ar­að­ferðum standi svo eftir ein. „Það er hún sem er hér,“ segir hann úr vitna­stúkunni fyrir miðju dóm­sal­ar­ins.

Íslenska parið

„Þú lýsir þessu sem til­gátu,“ segir Stefán Karl þá. „Nú er ég að setja fram til­gátu. Nú var par sem bjó þarna, sem lög­reglan hafði haft afskipti af um nótt­ina og áður vegna ein­hverrar lyfja­neyslu og fleira. Þetta par var hand­tekið í tengslum við brun­ann. [...] Mér finnst þetta eins og til­gáta til rann­sóknar. Var þetta par rann­sakað sér­stak­lega?“

Lög­reglu­mað­ur­inn svarar spurn­ing­unni ját­andi og segir það einmitt hafa verið eina af til­gát­unum sem svo voru úti­lok­aðar ein af annarri.

Myndbandsupptökurnar

Það er komið að því að sýna upp­tökur úr eft­ir­lits­mynda­vélum og búk­mynda­vélum lög­reglu­manna fyrir og eftir að eld­ur­inn kvikn­aði á Bræðra­borg­ar­stíg. Myndefnið snýst um Marek. Það er meðal þeirra gagna sem yfir­mats­menn nýttu til að meta and­legt ástand hans en allir þrír komust að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði verið í geð­rofi.

Á mynd­bönd­unum, sem tekin voru á nokkrum stöðum, sést Marek ganga um mið­borg­ina og dreifa pen­inga­seðlum í kringum sig. Ögra fólki með lát­bragði og orðum. Veg­far­endur taka sveig fram hjá honum.

Þetta er áður en elds­voð­inn verður.

[links]Næst eru sýndar upp­tökur úr eft­ir­lits­mynda­vélum í nágrenni rúss­neska sendi­ráðs­ins í Garða­stræti. Er Marek kemur fyrir hornið er hann með föt í fang­inu og á herða­trjám á bak­inu. Hann leggur hluta þeirra frá sér. Öðrum kastar hann frá sér. Sum rífur hann og öðrum stappar hann á. Hann fer úr jakk­anum. Grefur eftir rauðum fána með mynd af Pútín á sem hann breiðir svo yfir grind­verkið. „Hann er að kasta pen­ingum sýn­ist mér,“ segir Kolbrún á meðan myndefnið rúllar áfram. Marek sést berja í bíl. Sparka í hann.

Næst eru sýndar upp­tökur úr búk­mynda­vélum lög­reglu­mann­anna tveggja sem komu að sendi­ráð­inu vegna útkalls um mann sem léti þar ófrið­lega. Þá er Marek kom­inn inn fyrir hliðið, ýtir við þeim og slær þá með gúmmí­mottu.

„Leggstu niður,“ heyr­ist annar lög­reglu­mann­anna segja. Hann bætir svo við á ensku: „Get down.“ Þetta er sagt ákveðið en ekki á háu tón­unum.

Marek er ber­fættur. Hann er hand­járn­aður og á mynd­band­inu sést að hann heldur á kveikjara í öðrum lóf­anum og sígar­ettu­pakka í hinum.

Hann segir ekk­ert.

„Ok, stattu upp,“ segir lög­reglu­mað­ur­inn.

Næst er sýnt efni úr mynda­vélum innan úr lög­reglu­bílnum. Þá liggur Marek og sönglar stans­laust.

„What‘s your name?“ spyr ein­hver.

„Dimitry [ætt­ar­nafn],“ svarar hann.

„Your name is Dimitry? Where do you live?“

Marek fer að söngla aftur.

„Ég ætla ekki að sýna meira,“ segir Kolbrún þegar hún slekkur á upp­tök­unni. „Þetta er bara til að gefa inn­sýn í ástand hans.“

Það er komið að munn­legum mál­flutn­ingi. Kolbrún færir stól frá borð­inu sem tugir vitna í mál­inu hafa setið við og setur lítið púlt upp á það. Hún opnar tölv­una sína. Ræskir sig.

„Virðu­legi dómur,“ byrjar hún á að segja og fer því næst yfir dóm­kröfur ákæru­valds­ins. Að Marek verði dæmdur til refs­ingar og greiðslu alls sak­ar­kostn­aðar en til vara að hann verði dæmdur til að sæta örygg­is­ráð­stöf­unum.

Hún fer yfir ákæru­efnið, að Marek sé gefið að sök brenna, mann­dráp og til­raun til mann­dráps með því að hafa kveikt í á Bræðra­borg­ar­stíg 1 þann 25. júní í fyrra. „Þegar upp var staðið lét­ust þrír í brun­anum. Tveir brunnu inni, ungt par, og ung kona lést af höf­uð­á­verkum þegar hún reyndi að bjarga sér út um glugga og féll niður sjö og hálfan metra.“

Fjórir íbúar slös­uð­ust í elds­voð­anum.

Þar sem brann lengst og mest

Hún rifjar upp að strax á vett­vangi vakn­aði grunur um íkveikju sem beind­ist að ákærða á grund­velli fram­burðar vitna.

„Það má segja þegar kemur að sönnun að álita­efnin séu tvö. Hvernig eld­ur­inn kviknar og hvar og hver var að verki,“ segir hún. „Ákæru­valdið byggir á því að það hafi verið ákærði sem kveikti í með ásetn­ingi á tveimur stöðum.“

Sækj­and­inn segir það afger­andi nið­ur­stöðu tækni­deildar lög­regl­unnar að elds­upp­tökin séu í her­bergi Mareks á annarri hæð húss­ins og frammi á stiga­palli. Við rann­sókn­ina hafi rann­sak­endur séð „bletti sem hafa brunnið lengst – og mest,“ segir hún með áherslu. „Þetta skiptir öllu. Hvar hefur eld­ur­inn brunnið lengst og mest. Það er upp­taka­stað­ur­inn.“

Með úti­lokn­un­ar­að­ferð, ef svo megi segja, sé svo fundið út hvernig eld­ur­inn kvikn­aði. Það sé úti­lokað að það hafi gerst út frá raf­magni. Ekkert bendi til sjálfsíkveikju. „Eftir stendur að það er kveikt í.“

[adspot]

Slíkt sé hægt að gera af ásetn­ingi eða gáleysi. En þar sem upp­taka­stað­irnir séu tveir og að á milli þeirra séu nokkrir metrar, úti­loki tækni­deildin að um slys hafi verið að ræða. „Og,“ segir hún með áherslu, „eldur á öðrum staðnum getur ekki skýrt eld á hinum.“ Upp­taka­stað­irnir séu mikið brunnir en á milli þeirra sé minna brunnið. „Ákæru­valdið byggir á því að það hafi verið ákærði sem kveikti í þrátt fyrir neitun hans þar að lút­andi.“

Hún segir tíma­lín­una, sem fengin er með ýmsum gögnum sem og fram­burðum vitna, vera það sem skipti máli og gefi skýra mynd.

Skreið út úr húsinu

Kona sem bjó í næsta her­bergi við Marek kom heim kl. 15 þennan dag. Hún hitti hann á gang­inum og sagði hann hafa verið í mjög skrítnu ástandi. Hann hafi verið æstur og reiður, tekið í hana og talað sam­heng­is­laust. Hún varð hrædd og fór inn í her­bergi. Hann bank­aði og hún heyrir hann banka hjá fleirum. Stuttu síðar heyrði hún læti frá her­berg­inu hans og sá svo á ein­hverjum tíma­punkti að hann var að henda hlutum út um glugg­ann. Hún fór svo að finna reykj­ar­lykt, opn­aði fram á gang og sá þá reyk. „Hún í raun skríður út úr hús­inu,“ segir Kolbrún.

Símagögn styðji þennan fram­burð. Hún hringdi í eig­in­mann sinn þrisvar sinnum. Fyrsta sím­talið var kl. 14.58. Það næsta kl. 15.04 og það þriðja kl. 15.16 en þá var hún komin út. Maður sem staddur var í hús­inu á móti var þá búinn að hringja í Neyð­ar­lín­una eftir að hafa séð reyk koma út um glugga á her­bergi Mareks. Sá maður sem og eig­andi húss­ins á móti, sá Marek skömmu áður labba út með föt á bak­inu, „strunsa upp Bræðra­borg­ar­stíg, einmitt í átt­ina að rúss­neska sendi­ráð­inu,“ segir Kolbrún.

Upptökur úr eft­ir­lits­mynda­vélum sem og fram­burðir vitna styðja einnig þessa tíma­línu. „Þetta sýnir það að það er engum öðrum til að dreifa sem gátu kveikt eld þarna.“ Kolbrún segir það „algjör­lega frá­leitt“ að halda því fram að fólk, par sem bjó á neðri hæð­inni sem engan aðgang hafði að hæð­inni sem eld­ur­inn kvikn­aði á, hafi komið að máli. Það sé úti­lokað miðað við tímara­mmann. „Ekki neitt, ekk­ert, bendlar þetta fólk við elds­voð­ann.“

Þvínæst víkur hún máli sínu að fram­burði Mareks sem hún segir „nátt­úr­lega mjög sér­stakan“. Loksins þegar náð­ist að taka skýrslu af honum hjá lög­reglu var kom­inn 17. júlí. Þá sagð­ist hann muna ágæt­lega atvik þessa dags. Lýsti ítar­lega því sem hann gerði fyrir brun­ann og heim­sókn sinni í sendi­ráðið. Fram­burður hans sé þó ekki í sam­ræmi við það sem gögnin sýni. Hann sagð­ist hafa verið rólegur og glaður þennan dag en það sjá­ist „mjög vel á hans lík­ams­tján­ingu að hann er æstur“.

Kolbrún segir þetta „svo­lítið sér­stakt“ en hins vegar verði að meta fram­burð hans með hlið­sjón af því ástandi sem hann var í. „En hvað ger­ist þarna á milli? Frá því í mið­bænum og þar til í sendi­ráð­inu?“ Kolbrún segir frá­sögn Mareks um þann tíma vera miklu óljós­ari. Þá muni hann allt í einu ekki hvað hann gerði. Fyrst hafi hann ekki sagst vera með það á hreinu hvort að hann hafi farið heim að Bræðra­borg­ar­stíg en svo að hann hafi farið heim en aðeins í stutta stund. Í fyrstu minnt­ist hann þess ekki að hafa hitt nágranna­konu sína en svo fór hann að ráma í það. Um ver­una á Bræðra­borg­ar­stíg sé fram­burður hans mjög rugl­ings­legur. „Þarna er það mat ákæru­valds­ins að hann sé ekki að segja nákvæm­lega allt sem hann muni.“

Marek ekki að segja satt

Kolbrún segir því ekki hægt að byggja á fram­burði Mareks. „Hann er ekki að segja satt – það sést á gögnum,“ segir hún og heldur áfram: „Þegar þetta er allt skoðað í sam­hengi þá tel ég það sannað að ákærði hafi kveikt í hús­inu með þeim afleið­ingum sem lýst er í ákæru.“

Með íkveikj­unni hafi hann lokað einu útgöngu­leið­inni af 2. og 3. hæð húss­ins. Það sé afleið­ing sem honum hafi mátt vera full­ljós. „Hér er ekki um leik­ara­skap, slysni eða eitt­hvað grín að ræða. Það er kveikt í á tveimur stöðum.“

Síðasta álita­efni máls­ins segir Kolbrún vera hvort Marek hafi verið sak­hæfur á verkn­að­ar­stundu sem skipti máli þegar komi að refs­ingu hans. Nið­ur­stöður þriggja mats­manna um að Marek hafi verið „algjör­lega ófær um að stjórna aðgerðum sínum“ á þessum tíma, séu mjög ákveðnar og vel rök­studdar. Og undir þetta taki ákæru­valdið. Geð­lækn­arnir telji hann hafa verið í geð­rofi og í oflæt­is­á­standi (maníu) sem þeir úti­loki að stafi af lík­am­legum þáttum. „Auðvitað er þetta sér­stakt, að maður á sjö­tugs­aldri, sem er með óljósa geð­sögu, fari í svona geð­rof,“ segir hún. Svo virð­ist sem hann hafi gert það í kjöl­far mik­ils áfalls eftir að hafa fengið þær upp­lýs­ingar, sem reynd­ust svo ekki réttar, að hann væri með krabba­mein. „Það virð­ist vera þessi, svo ég sletti aðeins, trig­ger.“

[adspot]

Hún minnir á að ástæðan fyrir því að hann fór í geð­rof skipti aðeins máli varð­andi fram­haldið. Hvort ástæða sé til að hann sæti örygg­is­gæslu. Afar sjald­gæf auka­verkun sýkla­lyfja, anti­biom­ania, sem verj­andi hefur lagt áherslu á að gæti hafa valdið geð­rofi, sé að hennar mati úti­lokuð þar sem dæmin sýni að slíkt ástand vari aðeins í stuttan tíma eftir að sýkla­lyfja­inn­töku sé hætt. Marek hafi hins vegar enn sýnt geð­rofsein­kenni rúm­lega tveimur vikum eftir brun­ann.

„Ákæru­valdið telur að það liggi fyrir að ákærði hafi verið ósak­hæfur á verkn­að­ar­stundu og það þurfi að taka til greina vara­kröfu um örygg­is­vistun,“ segir Kolbrún og tekur undir þá skoðun yfir­mats­manna, tveggja geð­lækna, að það sé ástæða til að hann sæti ítr­ustu örygg­is­ráð­stöf­unum og verði vistaður á rétt­ar­geð­deild.

Ef dóm­ur­inn telji hann hins vegar sak­hæfan fari ákæru­valdið fram á, með hlið­sjón af alvar­leika brot­anna, að Marek verði dæmdur til ævi­langrar fang­els­is­vistar.

Áttu allt lífið framundan

Næst er komið að Guð­brandi rétt­ar­gæslu­manni fórn­ar­lamba og aðstand­enda þeirra sem lét­ust. Hann setur fram, fyrir hönd hinna sautján brota­þola, kröfu um miska­bætur. Málið er ekki ein­falt því ef hinn „virðu­legi dómur kemst að því að ákærði sé ósak­hæfur“ skal að hans mati beita ákvæðum Jóns­bókar frá árinu 1281 um „óðs manns víg“ líkt og í þeim laga­texta standi.

Guð­brandur rekur líðan umbjóð­enda sinna og segir elds­voð­ann hafa valdið þeim lík­am­legu, and­legu og fjár­hags­legu tjóni. Þá hafi lífi þeirra verið stefnt í aug­ljósa hættu. Fólkið búi við skerta sjálfs­mynd, mikla and­lega van­líðan, kvíða og ótta. Þá hafi það misst hús­næði sitt og allar eigur sínar. Einn umbjóð­and­inn, kona sem bjó á annarri hæð­inni, hafi kom­ist út og orðið vitni af því að kona á ris­hæð­inni féll niður og lést.

Annar umbjóð­andi Guð­brands var unnusti Isabelu Kukla. Þau höfðu verið trú­lofuð í fimm ár og ætl­uðu að gifta sig um miðjan sept­em­ber í fyrra. Til Íslands höfðu þau komið gagn­gert til að safna sér pen­ing til að halda veislu. Salurinn var bók­aður. Boðskortin höfðu verið send út. Hann var ekki heima er eld­ur­inn kom upp. „Þau áttu allt lífið framundan og var and­lát hennar honum gríð­ar­legt áfall,“ segir Guð­brandur. Ungi mað­ur­inn fékk tauga­á­fall, áfallastreituröskun og glímir við kvíða­röskun, hryggð, dap­ur­leika, reiði, sekt­ar­kennd og van­mátt­ar­til­finn­ingu. Þá upp­lifir hann ósjálf­ráðar minn­ingar um áfallið.

Sá íbúi sem slas­að­ist mest hlaut mjög alvar­leg bruna­sár á tæp­lega 20 pró­sent lík­am­ans. Honum var haldið sof­andi á sjúkra­húsi í mánuð og und­ir­gekkst margar aðgerðir, m.a. húð­á­græðslu. Hann þarf að lifa með stöð­ugum verkjum því bruna­sár og ágrædd húð hafa ekki sömu eig­in­leika og venju­leg húð.

Guð­brandur fer einnig fram á að Marek verði dæmdur til að greiða systk­inum þeirra sem lét­ust miska­bætur. Engin for­dæmi eru fyrir slíku en hann rök­studdi kröf­una m.a. í ljósi þess með hversu vofeig­legum hætti and­lát systk­ina þeirra bar að.

Harðduglegur einfari

„Eigum við að gera stutt hlé?“ spyr Barbara dóms­for­maður er Guð­brandur hefur lokið máli sínu.

„Já, endi­lega,“ segir Stefán Karl en næst er það hann sem mun flytja mál sitt. Fimmtán mín­útum síðar er hann mættur við borðið fyrir framan dóm­ar­ana. „Það er ábyrgð fólgin í því að taka þetta mál að sér,“ segir hann. „Það er álag“, heldur hann áfram og segir að búið sé að dæma Marek í fjöl­miðlum og að hann hafi m.a. verið kall­aður „fjöldamorð­ingi“. Máls­at­vik þann 25. júní í fyrra séu að mörgu leyti þekkt en „þessi saga sem hér er sögð byrjar fyrr“.

Marek hafi verið heilsu­hraustur maður, „ein­fari en harð­dug­legur“. En svo hafi hann skyndi­lega veikst. Hann hafi verið lagður inn á Land­spít­al­ann og mögu­lega vegna tungu­mála­örð­ug­leika vakni hjá honum spurn­ing hvort hann sé með maga­sár eða krabba­mein. Þegar hann kom út af sjúkra­hús­inu var hann gjör­breyttur maður. Hegð­un­ar­breyt­ing­arnar ágerð­ust, og nótt­ina fyrir brun­ann svaf hann ekki. „Við horfðum á það hvernig hann gekk um mið­bæ­inn,“ segir Stefán og vís­aði til upp­taka úr eft­ir­lits­mynd­vélum. „Hegðun hans var stór­und­ar­leg.“ Hann var vistaður á geð­deild eftir hand­tök­una við sendi­ráðið og þegar af honum bráði og hann útskrif­aður þaðan „er hann aftur orð­inn sá Marek sem hann var“.

Staðreyndir og getgátur

„Þá veltir maður fyrir sér hvað ger­ist á Bræðra­borg­ar­stígnum,“ segir Stefán Karl og vitnar því næst í amer­íska kvik­mynda­gerð­ar­mann­inn Blake Edwards, sem eitt sinn hafi sagt um rann­sókn­ar­lög­regl­una að „það sé ekk­ert sem skipti meira máli en stað­reyndir, annað eru get­gátur.“

Stefán full­yrðir að málið hafi aldrei verið rann­sakað „með neitt annað í huga“ en að Marek hafi kveikt í. Þær for­sendur hafi verið gefnar að það hafi verið „rugl­aði kall­inn sem labb­aði frá hús­inu“.

Kannski væri það hins vegar þannig að eng­inn hefði kveikt í. „Ég hef oft sagt að sak­sókn­ari sem hér er sé svo góð í sínu starfi að hún geti sagt mér að svart sé hvítt,“ heldur Stefán Karl áfram og á þar við Kolbrúnu Bene­dikts­dóttur, vara­hér­aðs­sak­sókn­ara. „En þetta er ekki svona, það þarf að rann­saka þetta. Þetta þarf að vera afdrátt­ar­laust.“

Því hafi verið „fleygt fram“ að Marek hafi verið með kveikjara í hend­inni þegar hann var hand­tek­inn. Gerði það hann að brennu­vargi? Var hann „grip­inn glóð­volgur?“

Á mynd­bönd­unum við sendi­ráðið sjá­ist að Marek hafi tæmt úr vösum sínum. Þegar lög­reglan kom hafi hann svo verið með kveikjara og sígar­ettu­pakka í hönd­unum. „Er ekki auð­veld­ara að draga þá ályktun að hann sé reyk­inga­maður, frekar en brennu­vargur?“

Blóraböggull og bullandi vafi

Stefán seg­ist hafa gengið fram hjá horn­hús­inu á Bræðra­borg­ar­stíg á hverjum ein­asta degi á leið sinni til vinnu alla tíð. „Þetta hús er ein stór eld­spýta.“ Hann segir „auð­velt að kenna klikk­aða mann­inum“ um en „það er í raun eng­inn sem sér hann kveikja í.“ Að mati Stefáns hafi rann­sókn máls­ins verið léleg. „Bara afskap­lega léleg.“ Frá fyrstu stundu hafi málið verið rann­sakað með það í huga að færa sönnur á sekt Mareks. „Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun ekki vinna nein verð­laun fyrir þessa rann­sókn.“

Hann segir „bull­andi“ vafa í mál­inu og að þörfin til að finna blóra­böggul þegar svona hræði­legur atburður eigi sér stað sé „kannski und­ir­liggj­andi í mál­inu“.

Þá telur hann að til­laga yfir­mats­manna um örygg­is­vistun byggi á því að Marek hafi framið hinn refsi­verða verknað. Annar geð­læknir sem kom fyrir dóm­inn hafi hins vegar sagt, og þeir reyndar allir, að engin hætta staf­aði af Marek í dag. Engin geð­saga sé í hans for­tíð. Stefán Karl vekur enn og aftur athygli á anti­biom­aniu, tíma­bundnu man­íukasti vegna sýkla­lyfja­notk­unar, sem er alvar­leg en sjald­gæf auka­verkun. Hann fjallar því næst um eitt slíkt mál, „case study“ um mann sem var á „nákvæm­lega sömu lyfjum og Marek“ og varð mjög veikur á geði. „Söku­dólgur“ veik­ind­anna var sýkla­lyfið, segir Stefán. „Ég er ekki læknir en þegar eitt­hvað labbar eins og önd og kvakar eins og önd þá hlýtur það að vera önd.“

[adspot]

En af hverju skiptir þetta máli, spyr Stefán Karl og heldur áfram: Vegna kröfu ákæru­valds­ins um vistun á stofnun. Hafi lyfin valdið maníu þá sé lyk­il­at­riðið að hann noti þessi sýkla­lyf ekki aftur. „Þetta er eitt­hvað sem er ekki bara hægt að vísa frá.“

Hafið sé yfir allan vafa að Marek glímdi við afbrigði­leg frá­vik í hegðun um það leyti sem elds­voð­inn varð. Í fang­els­inu, þar sem hann hefur verið vistaður í frá því í júlí, hafi engin vanda­mál komið upp. Marek seg­ist sjálfur hafa hætt að taka geð­lyfin fyrir hálfu ári.

„Afstaða mín er sú að hann hafi ekki kveikt í. Að hans sé sak­laus.“ Átak­an­legt hafi verið að hlusta á fram­burð vitna og að harmur margra sé mik­ill. En skaða­bóta­kröf­unum sé ekki beint gegn réttum aðilum. „Ákæru­valdið talar fyrir örygg­is­vistun eða langri fang­els­is­vist. Ég tala fyrir sýknu.“

Málið er að loknum mál­flutn­ingi lagt til dóms og dóm­þingi slitið. Dóms má vænta innan fjög­urra vikna.

Nöfn þeirra sem lét­ust í brun­anum hafa verið fjar­lægð úr umfjöll­un­inni að ósk ætt­ingja þeirra. Nöfnin voru birt opin­ber­lega í ákæru­skjali í mál­inu og komu ítrekað fram við opna máls­með­ferð fyrir dómi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár