„Þessir strákar höfðu allt valdið í höndum sér“

Í skýrslu vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í karla­lands­liðum Íslands er birt bréf frá fyrr­ver­andi vin­konu tveggja lands­liðs­manna í fót­bolta, þar sem hún biður konu afsök­unar á að hafa ekki staðið með henni á sínum tíma en þegar frétt­ist að hún ætl­aði að kæra hafi vina­hópur lands­liðs­mann­anna farið á fullt að reyna að koma í veg fyrir það til að verja mann­orð þeirra. Tengda­móðir brota­þola vinnur hjá KSÍ og sendi stjórn og starfs­fólki bréfið ásamt lýs­ingu tengda­dóttur sinnar á atburð­inum fyrir ell­efu árum.

„Þessir strákar höfðu allt valdið í höndum sér“
Baðst afsök­unar á að hafa tekið afstöðu með þeim Í bréfi sem fyrr­ver­andi vin­kona Arons Einars og Eggerts skrif­aði er því lýst hvernig þeir hvöttu vina­hóp­inn gegn kon­unni í til­raun til að verja mann­orð sitt. Segir vin­konan að þeir hafi haft allt vald í höndum sér, verið ríkir og frægir, um leið og hún biðst afsök­unar á að hafa tekið afstöðu með þeim. Mynd: Stundin / JIS

„Ég er búin að skrifa þessi skila­boð cirka 100 sinnum og stroka út því ég veit í raun­inni ekk­ert hvað ég get sagt. Ég trúi samt á það að við­ur­kenna mis­tök sín og taka ábyrgð og ætla þess vegna að henda þessu til þín. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég fékk sím­tal frá vini mínum út af þessu atviki sem þú lentir í 2010.“

Þannig hefst bréf sem barst konu sem kærði þá Aron Einar Gunn­ars­son lands­liðs­fyr­ir­liða og Eggert Gunnþór Jónsson, fyrr­ver­andi lands­liðs­mann, fyrir kyn­ferð­is­brot. Þar segir fyrr­ver­andi vin­kona lands­liðs­mann­anna að þeir hafi att vina­hópnum gegn kon­unni með það að marki að koma í veg fyrir kæruna og verja mann­orð sitt. 

Þar segir: „Þetta voru vinir mínir sem gerðu þér þetta. Það hafði spurst út að þú ætl­aðir að kæra þá og vina­hóp­ur­inn átti að fara á fullt að reyna að koma …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það ætti að mega gera því skóna að landsliðferli Arons Einar Gunnarssonar sé lokið með skömm.
    0
  • Katrin Eyjólfsdóttir skrifaði
    Ég er áskrifandi að netblaðinu og hef verið það lengi, svo ég skil ekki hversvegna það virðist breytt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár