Bakgrunnur Brynjars: Líkir femínistum við nasista og efast um byrlanir

Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, kenn­ari og akti­visti, segir skipun Jóns Gunn­ars­sonar sem inn­an­rík­is­ráð­herra og ráðn­ingu Brynjars Níels­sonar sem aðstoð­ar­manns hans vera stríðs­yf­ir­lýs­ingu við bar­áttu­fólk gegn kyn­ferð­is­of­beldi.

Bakgrunnur Brynjars: Líkir femínistum við nasista og efast um byrlanir
Áreitni ekki kyn­bundin Brynjar Níelsson hefur verið ráð­inn sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar inn­an­rík­is­ráð­herra. Brynjar hefur sagt að dóms­kerfið eigi ekki að eiga við öll mál og á þar við áreitni og þar að auki segir hann áreitni ekki vera kyn­bundna. Mynd: xd.is

Yfir 2.600 manns hafa skrifað undir áskorun á Katrínu Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra um að víkja Jóni Gunn­ars­syni úr emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra, eða það sem áður hét dóms­mála­ráð­herra. „Eftir að hafa séð tekin skref síð­ast­liðin ár í dóms­mála­ráðu­neyt­inu til að bæta kerfið fyrir þolendur ofbeldis er sorg­legt að sjá nýja rík­is­stjórn skipa mann eins og Jón Gunn­ars­son í sæti dóms­mála­ráð­herra,“ segir í yfir­lýs­ing­unni sem fylgir und­ir­skrifta­söfn­un­inni. 

Í áskor­un­inni er ráðn­ing Brynjars Níels­sonar einnig ávörpuð. Hann var nýlega ráð­inn aðstoð­ar­maður Jóns ásamt Hreini Lofts­syni. „Til að bæta gráu ofan á svart þá velur Jón Gunn­ars­son sér Brynjar Níelsson til aðstoðar. Brynjar sem hleypur til í hvert skipti sem ein­hver ýtir við eða bara rétt kitlar feðra­veldið.“

Katrín Jak­obs­dóttir sagði síðar í við­tali við RÚV að hún treysti Jóni til að vinna af heil­indum þegar kæmi að kyn­bundnu ofbeldi. „Stjórn­ar­sátt­mál­inn er algjör­lega skýr í þessum efnum, þar stendur til meðal ann­ars að gera úrbætur á rétt­ar­stöðu brota­þola og halda áfram að vinna í þeim málum, sem hefur verið unnið mjög ötul­lega að,“ sagði hún. 

Að því loknu var Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spurður út í afstöðu sinnar varð­andi skipan Jóns og ráðn­ingu Brynjars. Hann sagði að lýð­ræð­is­legar kosn­ingar hefðu sýnt það umboð sem Jón hefði frá almenn­ingi. Bjarni sagði jafn­ramt að spurn­ing frétta­manns um það hvort Brynjar væri hæfur til að sinna starfi aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra væri út í hött. „Og mér er sömu­leiðis ómögu­legt að skilja hvað átt er við með því að Brynjar Níelsson sé ekki hæfur, ég bara átta mig ekki á því… Mér finnst þessi spurn­ing þín algjör­lega út í hött,“ sagði hann við frétta­konu RÚV.

Sömu­leiðis sagði Bjarni þá sem mót­mæltu ráðn­ingu Brynjars vera hluta af „litlum minni­hluta­hópi“.

Jóni og Brynjari muni vera veitt aðhald

Flokks­systur Katrínar, Jódís Skúla­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttir, voru á sitt hvorum vett­vang­inum spurðar út í ráðn­ingu Brynjars, Jódís í Silfri Egils og Svandís í Viku­lok­unum.

Aðspurð hvort hún treysti þessum tveimur mönnum sagði Jódís að hún hefði „ekk­ert endi­lega valið þessa tvo“. 

„Ég er mik­ill fem­inisti og mér var alveg brugðið. Ég verð að trúa því og stóla á það að það sem fram kemur í stjórn­ar­sátt­mála, starfs­fólk ráðu­neyta og annað standi sína plikt. Við skulum bara sjá hvernig þessir átján mán­uðir verða og auð­vitað verður mikið aðhald, bæði utan úr sam­fé­lag­inu en ekki síður frá öðrum flokkum.“

„Ég er mik­ill fem­inisti og mér var alveg brugðið.“
Jódís Skúla­dóttir, nýr þing­maður VG

Svandís dró upp svip­aða mynd í Viku­lok­unum þegar hún var spurð út í ráðn­ingu Brynjars.  „Þetta dregur upp ákveðna mynd og við verðum að vera til­búin að ræða þá mynd.“ Sömu­leiðis tal­aði hún um að þeim yrði veitt aðhald svo að þau mál sem undir þá falla í stjórn­ar­sátt­mála yrðu kláruð og að Katrín myndi til að mynda veita það aðhald.

Sjálfur sat Jón í þætt­inum með Svandísi og var spurður út í þessa ráðn­ingu. Hann sagði Brynjar hafa yfir­burða­þekk­ingu og reynslu af mörgum mála­sviðum ráðu­neyt­is­ins.

 „Brynjar er hæsta­rétt­ar­lög­maður og hefur ára­tuga reynslu alveg eins og Hreinn Loftsson (...) grund­vall­ar­at­riði og gríð­ar­lega mik­il­vægt í svona sam­starfi að það ríki mikið traust á milli aðstoð­ar­manna og ráð­herra og það er fyrir hendi nú þegar. Ég þarf ekk­ert að kynn­ast þessum mönnum.“

„Hefði ekki þurft ein­hvern sem ríkir meiri sátt um út á við?“, spurði þátta­stjórn­andi þá.

„Ég velti þessu ekk­ert fyrir mér. Þetta var ákvörðun tekin á fag­legum nótum og ég hef engar áhyggjur af þess­ari umræðu, hún bara truflar mig ekk­ert,“ svar­aði Jón. 

Aðför að dómstólum hættuleg

Brynjar Níelsson mætti Þórarni Hjart­ar­syni í hlað­varpi þess síð­ar­nefnda, Ein pæl­ing, þann 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, skömmu áður en hann var ráð­inn aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar.  

Brynjar NíelssonFyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Brynjar Níelsson, hefur verið ráð­inn aðstoða­maður Jóns Gunn­arsssonar inn­an­rík­is­ráð­herra.

Í þætt­inum fer Brynjar yfir 25 ára reynslu sína sem lög­maður í dóm­sal fyrir Þórarni. Hann nefnir sem dæmi venju­legt fólk í venju­legum einka­málum sem deila um stað­reyndir. „Menn segja bara það sem þeim sýn­ist eftir því hvar hags­munir þeirra liggja og það er ekk­ert nýtt. Ég horfi á fólk í for­sjár­deilum lýsa því hvað ger­ist í þeirra sam­búð og menn segja bara sitt hvorn hlut­inn. Ég get aldrei sett mig í ein­hvert dóm­ara­sæti í því hverjir eru að ljúga og hverjir eru ekki að ljúga. Sumir bara upp­lifa veru­leik­ann með mjög mis­mun­andi hætti.“

Þá segir hann að það eigi ekki að beita við­ur­lögum við því ein­göngu sem fólk segir en það sé orðin krafa rétt­inda­bar­átt­unnar. „Dómsalur myndi aldrei sæta sig við þetta með núver­andi stjórn­ar­skrá. Þess vegna er aðförin að dóm­stól­unum, þeir eru orðnir ómögu­legir og menn sjá ekki hvað þetta er hættu­leg þróun og það er full ástæða til að hafa miklar áhyggjur.“

„Þessi fem­in­ismi núna, þau eru að breyta þessu í ofstæk­is­hópa sem taka þetta yfir. Eins og ger­ist bara með þessi vinstri þjóð­ernis rót­tækni, þetta er bara ofstæk­is­fólk“
Brynjar Níelsson

Þórarinn bendir Brynjari þá hóp kvenna sem segir dóms­kerfið brotið og fólki sem sé þeim sam­mála. Hann spyr Brynjar hvort ekki sé hægt að kom­ast til móts við þennan hóp og hvort það sé ekki eitt­hvað í þessum mála­flokki sem hægt sé að bæta. Brynjar segir hins vegar gagn­rýn­in­ina vera byggða á mis­skiln­ingi. 

„Það er mik­ill mis­skiln­ingur að kerfið taki ekki á móti þessu eða sinni þessu ekki. Menn verða að átta sig á því að menn kvarta stundum yfir því hvað þetta tekur langan tíma, þeir sem kvarta eru þeir sem kærðu ekk­ert og þekkja það ekk­ert. Það eru auð­vitað fullt af málum sem eru kærð sem falla niður, þau falla niður af ýmsum ástæðum, bara vegna þess að þetta er ekki brot eftir lýs­ingu þol­and­ans, innan gæsalappa. Málin tefj­ast oft því hlut­irnir passa ekki, stand­ast ekki, það sem sagt er og hægt er að upp­lýsa, það stemmir ekki.“

Dómskerfið á ekki að eiga við allt

Brynjar segir mikið ákært í kyn­ferð­is­brota­málum og það hafi mynd­ast ákveð­inn þrýst­ingur að ákæra en dóm­stólar, „sem eru klett­ur­inn í haf­inu,“ sýkna og þá sé ráð­ist á dóm­stóla. Þar að auki segir hann máls­með­ferð slíkra mála á Íslandi vera styttri en í mörgum en það sem þó teppi dóms­kerfið sé vegna þess að „menn kæra öll mál, til dæmis ef menn lenda í ein­hverjum stymp­ingum í ein­hverju rifr­ildi.“

„Það dynur á dóms­kerfið alls­konar mál sem fólk á bara að leysa sjálf. Við eigum ekki að láta dóms­kerfið eiga við allt. Stundum er bara ein­föld fyr­ir­gefn­ing sem bara báðir aðilar bera ábyrgð á,“ segir hann og heldur áfram:

„Ég er bara almennt að tala um svona ofbeld­is­mál. Ég er ekki bara að tala um, ein­hver strýkur á læri, eða strýkur á öxl eða rass, er það dóms­kerfið sem þarf að eiga við þetta. Mér finnst að fólk eigi bara að eiga við þetta sjálft. Vissu­lega getur þetta verið stór­mál fyrir ein­hverjum, ég úti­loka það ekki. Ég held að nán­ast allir karl­menn hafa lent í því sama, ein­hverju svona,“ segir hann svo og útskýrir að áreitni sé ekki „kyn­bundið á annað kynið“. 

„Þetta er bara hluti af sam­skiptum sem auð­vitað geta verið klaufa­leg, sér­stak­lega ef fólk er undir áhrifum en það er svo­lítið mikið til þess ætl­ast að rétt­ar­vörslu­kerfið geti afgreitt þetta allt saman.“

„Þetta er ekki brot eftir lýs­ingu þol­and­ans, innan gæsalappa“
Brynjar Níelsson

Enn­fremur segir hann í því sam­hengi að „físískar nauðg­anir, þar sem er beitt lík­am­legu afli“ séu afar sjald­gæf vanda­málið sé iðu­lega í kringum fyll­erí. „Þetta snýst venju­lega um það að við­kom­andi er ölv­aður, það er mjög sjald­gæft að þú beitir físísku afli til að ná fram vilja þínum. Vanda­málið er í kringum þetta fyll­erí.“

Þá segir hann að í þeim málum sem hann kom að á sínum starfs­ferli sem lög­maður hafi „reglu­lega komið upp þar sem því hafi verið haldið fram að við­kom­andi hafi verið byrlað“ þegar „eitt­hvað fer úrskeiðis í lík­am­anum“. „Aldrei kom það út úr blóðpruf­unum í neinu ein­asta máli sem ég tengd­ist, það kom aldrei nein merki þess að það hafi verið byrlun.“

Réttindabarátta árás á vestræna lýðræðisríkið

Í þætt­inum ræddu þeir einnig rétt­inda­bar­áttu hreyf­inga á borð við Metoo- og Black lives matter hreyf­ing­una sem Brynjar vildi skil­greina sem póli­tíska. „Við erum öll sam­mála um það að berj­ast gegn hvers konar mis­rétti, kyn­þátta­mis­rétti eða „whatever,“ berj­ast gegn ofbeldi. En þessar bylt­ingar snú­ast um miklu meira en það. Þú sérð alveg hvaða póli­tísku öfl eru að taka þetta yfir. Black lives matter er ekki bara spurn­ing um kyn­þátta­mis­rétti, þetta er miklu stærri póli­tík heldur en bara það. Sama á við um Metoo bylt­ing­una og þessa fem­inísku bar­áttu, þetta er hluti af ákveð­inni póli­tík og þú getur séð þetta líka í umhverfis og nátt­úru­verndar bar­áttu.“

Því næst útskýrir Brynjar hvernig þessar hreyf­ingar hafa reynt að breyta „hinu frjálsa vest­ræna lýð­ræð­is­ríki sem mörgum er í nöp við“.

„Það ætla allir að hanna sitt rétt­láta sam­fé­lag og maður er alltaf að verja þetta. Ég er gam­all að því leyt­inu til að gamla vest­ræna lýð­ræð­is­ríkið er eina sam­fé­lagið sem við getum kallað sið­legar reglur rétt­ar­rík­is­ins. Þetta kerfi erum við búin að búa til og það mót­mælir því eng­inn en það er alltaf verið að reyna að vega að því með ein­hverjum hætti og allt þetta er hluti af því.“

Líkir aktivistum við nasista

Skömmu áður eða þann 16. sept­em­ber síð­ast­lið­inn hafði Brynjar einnig rætt við Þórarinn í hlað­varpi hans og enn var umræðu­efnið rétt­inda­bar­átta og þá sér­stak­lega rétt­inda­bar­átta brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis. Hanna Björg Vil­hálms­dóttir kom til tals í því sam­hengi.

Þórarinn benti Brynjari á atvik sem hafði komið upp í öðru hlað­varpi eða The Mike show, undir stjórn Huga Hall­dórs­sonar og Mikaels Niku­lás­sonar, þar sem annar þátta­stjórn­anda gagn­rýndi Hönnu fyrir að hafa skrifað pistil­inn Um KSÍ og kven­fyr­ir­litn­ingu, en pistil­inn er einmitt gagn­rýni á KSÍ fyrir að taka afstöðu með ger­endum innan hreyf­ing­ar­innar en pistil­inn varð síðar til þess að stjórna­menn KSÍ sögðu af sér fyrir að hafa tekið illa á kyn­ferð­is­brota­málum innan hreyf­ing­ar­innar og for­maður hennar, Guðni Bergsson, logið um að hafa ekki vit­neskju um þau í Kast­ljósi. 

Hugi segir KSÍ ekki hafa átt að svara Hönnu, hún væri „kona með lykla­borð sem viti ekk­ert um íþróttir.“ „Til hvers að svara þessu? Það eru margar rit­vélar rétt­læt­is­ins í dag,“ sagði Hugi svo í hlað­varp­inu. 

„Hvernig geta þau gert þetta? Hvernig geta hinir, sem eru ekki beinir aðilar að þessu, setið hjá og sagt ekk­ert?“
Hanna Björg

Þórarinn hafði hins vegar áhyggjur af því í sam­tali síns og Brynjars að Dominos hafi dregið sig til baka sem styrkt­ar­að­ili hlað­varps­ins í kjöl­far þess­ara ummæla. „Ég ætla bara að hætta versla við Dominos,“ sagði Þórarinn við Brynjar og Brynjar svarar um hæl:

„Hefði ég átt Dominos hefði ég bætt við stuðn­ing­inn. Mér finnst þetta svo aum­ingja­legt og ég held að þetta skaði þetta fyr­ir­tæki til lengri tíma.“

Í fram­hald­inu lýsir Brynjar því yfir að hann hafi engan húmor fyrir þessu að ráð­leggur fólki almennt að taka sér taki. „Við ætlum ekki að láta þetta ofstæk­is­fólk stjórna þessu íslenska sam­fé­lagi. Þetta er eins og gerð­ist á þriðja ára­tug síð­ustu aldar í Þýska­landi. Hvernig þessi ofstæk­is­öfl náðu völdum með því að „ter­ror-isera“ fyr­ir­tæki og fólk, það er það sem er verið að gera. Þetta er svo hættu­legt sam­fé­lag­inu. Þessi fem­in­ismi núna, þau eru að breyta þessu í ofstæk­is­hópa sem taka þetta yfir. Eins og ger­ist bara með þessi vinstri þjóð­ernis rót­tækni, þetta er bara ofstæk­is­fólk.“

Brynjar segir þá einnig að ofbeld­is­hug­takið sé notað yfir alla hegðun sem sé skelfi­leg þróun sem þurfi að standa í lapp­irnar gegn. „Við erum svo miklir aum­ingjar öll, hvort sem við heitum stjórn KSÍ eða fyr­ir­tæki. Það stendur eng­inn í lapp­irnar. Menn bara láta og leyfa fólki að finna að ofstækið virkar og þá gengur það á lagið og við erum allir sömu aum­ingj­arnir,“ sagði Brynjar við Þórarinn. 

Síðar sagði Brynjar í við­tali við Dagmál Morg­un­blaðs­ins að „aðförin að KSÍ er bara póli­tík“.

„Þetta er stríðsyfirlýsing“

„Mér finnst þetta eins og kjafts­högg,“ segir Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, í sam­tali við Stundina, um skipun á Jóni Gunn­ars­syni sem dóms­mála­ráð­herra og ákvörðun hans um að ráða Brynjar Níelsson þing­mann sem aðstoð­ar­mann sinn.

Þetta er eins og kjafts­högg

„Annað hvort eru menn algjör­lega úr tengslum við alla sam­fé­lags­lega umræðu um kyn­ferð­is­brot og við­brögðum við þeim eða þetta er bara stríðs­yf­ir­lýs­ing,“ segir hún.

Hún segir Jón og Brynjar vera „þær tvær raddir, með mikil form­leg völd, sem hafa staðið gegn kven­rétt­indum“:

„Jón var á móti breyttum lögum um þung­un­ar­rof, hann var fylgj­andi fleiri en einu frum­varpi um að refsa vegna tálm­unar. Hann var tals­maður þess að refsa. Þetta var til höf­uðs konum sem voru að vernda börnin sín fyrir ofbeldi. Það er alveg hægt að segja það þó frum­varps­fylgj­endur myndu ekki túlka það þannig.“

Hvað varðar Brynjar segir hún eft­ir­far­andi: „Brynjar hefur haft mjög hátt um og haldið uppi vörnum fyrir ger­endur eða meinta ger­endur. Hann hefur smættað þolendur og þeirra við­leitni í að tjá sig og gert lítið úr þeim. Hann hefur bara gert lítið úr konum. Það er eins og hann þrí­fist á því stundum að smætta konur og alla við­leitni þeirra til þess að auka jafn­rétti og rétt­læti.“

„Það á að lemja okkur niður“

Hanna segir Jón og Brynjar ekki ein­ungis hafa mikil völd í hönd­unum heldur einnig örlög þolenda. „Við erum í miðri Metoo-bylgju, það hefur sjaldan verið eins mikil og hávær umræða þar sem við erum að ná ákveðnum árangri. Við erum að afhjúpa ger­enda­með­virkni í sam­fé­lag­inu, sem er ákveð­inn árangur,“ segir hún og bætir við að skipan Jóns og ráðn­ing Brynjars upp­lifi hún eins og verið sé að „lemja okkur niður“. 

„Þegar ég segi okkur þá er ég að meina fólk sem er að berj­ast fyrir auknu rétt­læti fyrir brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis. Blaut tuska er van­mat á aðstæðum, þetta er bara stríð upp­lifi ég. Það á að lemja okkur niður, það á að lemja umræð­una niður, það á að þagga niður í okkur.“

Hún segir það form af því sem hún kallar félags­legt ofbeldi. „Það er verið að beita aðferðum í sam­skiptum og beita völdum með þeim hætti að það er verið að kæfa niður raddir rétt­lætis. Þetta er bara svo ofsa­fengið, þetta er ofsa­fengin ákvörðun um að láta þessa menn hafa þessi völd þegar við erum að sjá glitta í árangur. Þá er ég að meina að fá ein­hverjar laga­legar úrbætur um með­ferð mála, hvort sem það er hjá lög­regl­unni eða hjá þeim sem flytja mál hjá dóm­stólum.“

„Við látum ekki þagga niður í okkur“

Þrátt fyrir að upp­lifa að hún hafi verið „kýld í mag­ann“ eins og hún orðar það, seg­ist hún ekki ætla láta þetta stoppa sig. „Auðvitað læt ég ekki þessa karla stoppa mig. Auðvitað höldum við áfram, við látum ekki þagga niður í okkur, við látum ekki reka okkur ofan í ein­hverja and­lega holu þangað sem þessir menn vilja að við förum og höldum kjafti.“

„Þetta er bara stríð“
Hanna Björg

Þá seg­ist hún hafa fundið fyrir mik­illi reiði í kringum sig vegna þessa. „Ég finn fyrir reiði í kringum mig, heil­agri, rétt­látri reiði. Reiði yfir því að stjórn­völd komi svona fram við fólkið sitt. Hvernig geta þau gert þetta? Hvernig geta hinir, sem eru ekki beinir aðilar að þessu, setið hjá og sagt ekk­ert? Aðilar sem kenna sig við fem­in­isma. Þetta er nátt­úru­lega bara stríðs­yf­ir­lýs­ing, það er ekk­ert öðru­vísi, við bar­áttu­fólk gegn kyn­ferð­is­of­beldi, við við­brögðum stjórn­valda, dóm­stóla og yfir­valda við þeim.“

Tálmun eitt alvarlegasta sem hægt er að gera barni

Brynjar hefur fjallað um mál sem hann sjálfur skil­greinir sem ofbeldi á þingi. Hann lagði til dæmis fram frum­varp til breyt­inga á barna­lögum sem varða tálmun og lagði til fimm ára fang­els­is­vist við henni og Jón Gunn­ars­son var með­flutn­ings­maður frum­varps­ins.. Á þing­inu sagði Brynjar eft­ir­far­andi:

„Einhvern veg­inn hefur það verið svo und­ar­legt í með­ferð þessa máls áður á þing­inu að þeir sem hafa kannski talað hæst um mik­il­vægi rétt­inda barna, haldið margar ræð­urnar um rétt­indi barna, um ofbeldi gegn börnum, en svo þegar kemur að ofbeldi af þessu tagi, að svipta barn for­eldri sínu, umgengni við for­eldri sitt, sem er auð­vitað með því alvar­leg­asta sem hægt er að gera barni, það getur haft alvar­legar afleið­ingar, þá allt í einu kemur þögn í sal­inn, ótrú­leg þögn. Þeir fáu sem hafa kannski eitt­hvað mót­mælt þessu frum­varpi við­ur­kenna þó að þetta sé ákveðið ofbeldi, en þetta mál hefur meira og minna farið snú­ast um ein­hvers konar kynja­rétt­inda­mál eða kven­rétt­inda­mál eða ofbeldi gegn konum og svo fram­vegis. Þetta snýst ekk­ert um það. Þetta snýst um ótví­ræðan rétt barns­ins og mik­il­vægi þess að það fái að umgang­ast báða for­eldra.“

Brynjar kaus, eins og Jón Gunn­ars­son, gegn frum­varpi heil­brigð­is­ráð­herra um þung­un­ar­rof og gegn því að jafna hlut kynja í stjórn fyr­ir­tækja.  

Eins og Jón hefur Brynjar verið fjar­ver­andi með­ferð ýmissa mála á þingi, sum þeirra falla nú undir mál­efna­svið inn­an­rík­is­ráð­herra, eins og atkvæða­greiðslu um umsát­ursein­elti sem varðar almenn hegn­ing­ar­lög og kyn­ferð­is­lega frið­helgi. Þá var hann einnig fjar­ver­andi með­ferð þings­ins á afmörk­uðum hluta þess á aðgerðum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, þann anga sem snéri að rekstr­ar­að­ilum sér­hæfðra sjóða. Þá kaus hann gegn frum­varpi um sjálf­stætt eft­ir­lit með starf­semi og starfs­háttum lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Hvernig getum við viðurkent ráðgjafa í Dómsmálaráðuneti sem bar MÚTUR á fyrverandi Forsætisráðherra þótt svo það hafi verið Davíð .Ég ber virðingu fyrir embætti forsætisráðherra þót svo Katrín beri ekki virðingu fyrir þessu sama embætti.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Mér finnst hvorugur þessa tveggja vera traustvekjandi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár