Vinstri græn enn með varann á sér vegna samstarfsins

Á annan tug félaga í Vinstri grænum sem voru á fundi flokks­ins þar sem greidd voru atkvæði um stjórn­ar­sátt­mál­ann lýsa áhyggjum af því að umhverf­is­málin séu nú á for­ræði Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þau segja að mörgum hafi brugðið illa á fund­inum þegar það var til­kynnt. „Ég ótt­ast mjög mikið að nú verði farið af stað með nýjar meng­andi virkj­anir,“ sagði ein. Nokkur segj­ast hafa sam­þykkt sátt­mál­ann með sem­ingi.

Vinstri græn enn með varann á sér vegna samstarfsins
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son afhendir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni lykla­völdin í umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu Mynd: Heiða Helgadóttir

Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna kynntu stjórn­ar­sátt­mál­ann fyrir flokks­fé­lögum sínum um helg­ina og að því loknu var haldin atkvæða­greiðsla um sátt­mál­ann. Rétt tæp­lega 99 pró­sent þeirra sem höfðu atkvæð­is­rétt hjá Fram­sókn­ar­flokknum sam­þykktu sátt­mál­ann og hlut­fallið var svipað hjá Sjálf­stæð­is­flokki. Stjórn­ar­sátt­mál­inn var sumsé sam­þykktur af nær öllum sem greiddu atkvæði. Hlut­fallið var 80 pró­sent hjá Vinstri grænum. Á annað hund­rað manns sótti fund­inn og þar af voru tæp­lega hund­rað með at­kvæðis­rétt sem flokks­ráðs­full­trú­ar. Það er svipað hlut­fall og sam­þykktu síð­ustu rík­is­stjórn. 

Stundin hefur síð­ustu daga rætt við hóp fólks sem var á fundi Vinstri grænna um síð­ast­liðna helgi. Á annan tug félaga í hreyf­ing­unni vildi tjá sig um það sem fram fór á fund­inum en ekki undir nafni. „Það voru mjög opin­skáar umræður um sátt­mál­ann og skipt­ingu ráðu­neyta en fólk staldr­aði við þá stað­reynd að umhverf­is­ráðu­neytið færi til Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ sagði einn við­mæl­enda Stund­ar­innar en Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er umhverfis-, orku og lofts­lags­mála­ráð­herra í nýju …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Hansson skrifaði
    Að éta skít úr lófa íhaldsins þykir Katrínu og félögum gott.!
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    ....en samþykkja samninginn "með semingi" alltaf sami aumingjaskapurinn og meðvirknin! Fólk á að stappa niður færi og segja NEI!
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Er ekki fylgjandi þessari ríkisstjórn.
    0
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Snobbið er dýrt
    0
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Samkvæmt því sem haft er eftir félagsmönnum í VG í þessari grein, er augljóst að þar fer afar skoðanadauft fólk með lítilfjörlegar og yfirborðskenndar pólitískar hugsjónir. Þá er enn fremur auðsjánlegt af lestri greinarinnar að VG er orðinn hægri flokkur, að vísu hægfara, eins og Sjálfstæðisflokkurinn var fyrir fjörutíu árum, með einhverskonar loftslagagsáherslum, sem aldrei verða kapítalismananum fötur um fót.

    Ekki veit ég hvort félögum í VG sé yfirleitt sjálfrátt, þegar kemur að pólitík, ég held ekki. Og mat þess á pólitík og forustufólki VG er í meira lagi brenglað og ruglingslegt, eins og eftirfarandi ummæli gefa ótvírætt til kynna: ,,og Við erum með forsætisráðuneytið og Katrín Jakobsdóttir er gríðarlega hæfur leiðtogi og ég treysti henni til að stýra landinu,“ sagði kona sem var á fundinum". Það er alveg óhætt fyrir þetta vesalings fólk sem er á mála hjá VG að fara að tygja sig til og flytja sig um set inn í Sjálfstæðisflokkinn, - það væri best fyrir það sjálf og það væri heiðarlegt af því.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "og Katrín Jakobsdóttir er gríðarlega hæfur leiðtogi" ???
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár