Guðlaugi Þór eignuð menningarmál fyrir mistök

Mistök við birt­ingu for­seta­úr­skurðar um skipt­ingu mála­flokka á milli ráð­herra urðu til þess að Guð­laugur Þór Þórð­ars­son, nýskip­aður umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála­ráð­herra, var settur yfir menn­ing­ar­mál.

Guðlaugi Þór eignuð menningarmál fyrir mistök
Óvænt verk­efni Það kom fólki á óvart að Guð­laugur Þór hefði fengið menn­ing­ar­mál á sitt borð enda nýskip­aður umhverf­is­ráð­herra. Mynd: xd.is

Vegna mis­taka við birt­ingu for­seta­úr­skurðar um skipt­ingu starfa ráð­herra í Stjórn­ar­tíð­indum í gær­kvöldi virt­ist sem svo að Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, nýskip­uðum umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra hefði verið falin stjórn menn­ing­ar­mála. Var hann sagður fara fyrir mál­efnum bók­mennta, mynd­listar, list­skreyt­ingar opin­berra bygg­inga, Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands og Kvik­mynda­mið­stöðvar, starfs­launa lista­manna, Þjóð­leik­húss­ins og Íslenska dans­flokks­ins. 

    Svo er hins vegar ekki, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Róberti Marshall, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar. Mistök hafi verið gerð við birt­ingu úrskurð­ar­ins. Hin eig­in­legu skjöl hafi verið rétt og því hafi mis­tökin ekki haft áhrif á raun­veru­lega skipt­ingu verk­efna á milli ráð­herra. 

    Hið rétta er að Guð­laugur Þór fær á sitt borð verk­efni umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins að við­bættum mál­efnum tengdum menn­ing­arminjum, sem til­heyra mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Undir þeim mála­flokki er varð­veisla menn­ing­ar­arfs, skil menn­ing­ar­verð­mæta til ann­arra landa, vernd­ar­svæði í byggð og Minja­stofnun Íslands.

    Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, nýskip­aður ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, er sú sem fer með for­ræði yfir þeim menn­ingar- og lista­málum sem voru sögð á borði Guðlaugs Þórs. 

    Mistökin fólust í því að farið var línu­villt þegar vísað var til verk­efna umhverf­is­ráð­herr­ans en menn­ing­ar­mál er í næstu línu á eftir menn­ing­arminjum í öðrum for­seta­úr­skurði þar sem verk­efni hvers ráðu­neytis eru talin upp. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar er verið að upp­færa aug­lýs­ing­una í Stjórn­ar­tíð­indum. 

    Uppfært klukkan 11.32 til að árétta að mis­tök við birt­ingu for­seta­úr­skurðar höfðu ekki laga­leg áhrif á skipt­ingu mála­flokka á milli ráð­herra.

    Kjósa
    0
    Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

    Athugasemdir (3)

    Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

    Mest lesið

    Mest lesið

    Mest lesið í vikunni

    Mest lesið í mánuðinum

    Mest lesið í mánuðinum

    Nýtt efni

    Mest lesið undanfarið ár