Nýja ríkisstjórnin: Umhverfismálin færast frá Vinstri grænum til Sjálfstæðisflokks

Menn­ing­ar­mál og við­skipti fara í sama ráðu­neyti, og mennta­málin klofna í tvö ráðu­neyti. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son úr Sjálf­stæð­is­flokki verður umhverf­is­ráð­herra í stað Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar úr Vinstri grænum. Orku­málin verða færð undir umhverf­is­ráð­herra.

Nýja ríkisstjórnin: Umhverfismálin færast frá Vinstri grænum til Sjálfstæðisflokks
Ný rík­is­stjórn Stillir sér upp fyrir mynda­töku við Bessa­staði eftir fyrsta rík­is­stjórn­ar­fund­inn. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég vil segja ykkur það líka að það verða tölu­verðar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi Stjórn­ar­ráðs­ins. Það er ekki alltaf svo þegar ný rík­is­stjórn er stofnuð,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir við kynn­ingu á nýrri rík­is­stjórn rétt í þessu. 

Miklar til­færslur verða gerðar á mála­flokkum milli ráðu­neyta. Nánar er fjallað um nýja stjórn­ar­sátt­mál­ann hér.

Bæði heil­brigð­is­ráðu­neytið og umhverf­is­ráðu­neytið fær­ast frá Vinstri grænum í nýrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, sem telur fimm konur og sjö karl­menn.

Ásmundur Einar DaðasonNýr ráð­herra skóla- og barna­mála.

Vinstri græn hafa verið með umhverf­is­ráðu­neytið síð­ustu fjögur ár og var fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, skip­aður ráð­herra utan þings. Hans í stað kemur nú Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, einn reynslu­mesti ráð­herra lands­ins, en hann hefur verið utan­rík­is­ráð­herra.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er gerður að félags- og vinnu­mála­ráð­herra, í stað Ásmundar Einars Daða­sonar fram­sókn­ar­manns, sem tekur við nýju ráðu­neyti skóla- og barna­mála.

Þannig verða mál­efni barna klofin frá mennta­málum og félags­málum og flutt yfir í nýtt ráðu­neyti Ásmundar. Mennta­málin munu að öðru leyti flytj­ast yfir í nýtt nýsköp­unar- og mennta­mála­ráðu­neyti Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur. Nýsköp­un­ar­málin voru áður í ráðu­neyti Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, sem var þá ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­unar.

Vinstri græn munu á móti fá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið, sem mun inni­fela mála­flokkin mat­væla­mál. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem VG hefur sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­málin, því Stein­grímur J. Sig­fús­son stýrði á tíma­bili málal­fokknum í vinstri stjórn með Sam­fylk­ing­unni áður en Jón Bjarna­son tók við af honum.

Kátir ráð­herrarRáð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks gleðj­ast á tröpp­unum á Bessa­stöðum.

Viðskipti og menning í sama ráðuneyti

Rétt eins og ráðu­neyti um mál­efni barna virð­ist sniðið að áherslum Ásmundar Einars Daða­sonar fær Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, nýtt, blandað ráðu­neyti menn­ing­ar­mála, ferða­þjón­ustu og við­skipta. Lilja var áður mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, en sem fyrr segir fóru mennta­málin í tvö önnur ráðu­neyti: Annars vegar nýsköp­un­ar­mál og hins vegar skóla- og barna­mála.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, verður ráð­herra inn­viða­mála, sem er annað nafn yfir sam­göngu­ráðu­neytið.

Áfram verður Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Nýr dóms­mála­ráð­herraJón Gunn­ars­son tekur við inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu af Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur.

Nýir ráðherrar: Willum og Jón

Í stað Áslaugar Örnu, sem verður nýsköp­unar- og mennta­mála­ráð­herra, verður Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra í 18 mán­uði, en ráðu­neytið mun aftur verða kallað inn­an­rík­is­ráðu­neyti. Jón var sam­göngu­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar árið 2016.

Frá­far­andi rík­is­stjórn mun funda klukkan 3 í dag. Við svo búið yfir­gefa þeir ráð­herrar sem hætta fund og ný rík­is­stjórn kemur saman, þar sem Willum Þór Þórsson, Jón Gunn­ars­son bæt­ast í hóp­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Haraldsson skrifaði
    Bless fagra Ísland ég vildi þér vel en þjóðin valdi.
    0
  • Axel Axelsson skrifaði
    umboðslausir ólögmætir gjörningar valdstjórnarinnar hafa ekkert gildi enda trúðarnir patt úti í skurði . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár