Fyrrverandi hæstaréttardómari ráðleggur konum að drekka minna til að forðast nauðganir

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttar­lögmaður segir að áfengis- og vímu­efnanotkun sé ástæða langflestra kynferðis­brota. Eigi það við um bæði brotamenn og brotaþola, sem Jón Steinar segir að hvorir tveggja upplifi „dapurlega lífs­reynslu“. Stígamót leggja áherslu á ekkert réttlætir naugun og að nauðgari er einn ábyrgur gerða sinna. Í rannsókn á dómum Hæstaréttar í nauðgunar­málum kom fram að greina megi það viðhorf í dómum réttarins að „réttur karla sé verð­mætari en réttur kvenna“.

Segir bæði gerendur og brotaþola upplifa „dapurlega lífsreynslu“
Segir bæði ger­endur og brota­þola upp­lifa „dap­ur­lega lífs­reynslu“ Jón Steinar segir að vímu­efna­neysla sé helsti orsaka­valdur kyn­ferð­is­brota en illa sé tekið í það ef konur séu var­aðar við að neyta vímu­efna á skemmti­stöðum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttar­lögmaður og fyrr­verandi dómari við Hæstarétt, telur að besta leiðin til að sporna gegn kynferðis­brotum sé sú að fólk, ekki síst konur, hætti eða dragi í það minnsta verulega úr notkun áfengis og vímuefna.

„Ráðið er sem sagt að hætta eða draga verulega úr notkun áfengis- og  vímuefna hvort sem er á skemmtistöðum eða bara heima fyrir. Slíkt er til þess fallið að draga úr hættu á þessum brotum, þó að þau yrðu seint alveg úr sögunni,“ segir Jón Steinar. Þá úrskurðar hann um þau sem ekki hlíða ráði hans: „Þeir sem ekki geta nýtt sér þetta ráð eru líklega háðir vímu­gjöfunum með þeim hætti að þeir ættu að leita sér hjálpar,“ segir hann í grein í Morgun­blaðinu í dag.

Jón Steinar segir að því sé því illa tekið þegar bent sé á slíkt. „Í raun er verið að segja að ekki megi benda fólki á að reyna að gæta sín sjálft. Það er samt  vafalaust besta vörnin gegn svona brotum að gæta sín sjálfur. Þetta jafnast t.d. á við að gæta sín í umferðinni til að forðast slys.“

Fræðsluefni í aðra átt

Í fræðslu­efni Stígamóta um nauðganir kemur hins vegar fram að enginn annar en nauðgarinn sjálfur beri ábyrgð á nauðguninni. „Án tillits til aðstæðna á kona rétt á því að segja nei hvenær sem er. Það sama gildir ef konan er ekki fær um að segja nei vegna ölvunar, svefnástands eða annarra aðstæðna. Nauðgun er fyrst og fremst ofbeldis­verk, kynferðislegar athafnir eru sá farvegur sem ofbeldis­maðurinn velur ofbeldi sínu.“

Þá kemur fram í grein Þórhildar Sæmunds­dóttur, kynja­fræðings og meistara­nema í lögfræði, og Þorgerðar J. Einars­dóttur, prófessors í kynja­fræði frá árinu 2018, þar sem þær skrifa um rannsókn sína á dómum í naugðunarmálum í Hæstarétti, að viðhorf sem „litast af nauðgunar­mýtum eru til staðar meðal dómara í Hæstarétti.“ Sömuleiðis segir að viðhorf þar sem þolendum sé sýndur skilningur vegna ölvunar þegar brotið hafi verið á þeim „heyra til undan­tekninga“. 

Tilgreinir ofbeldisbrot og framhjáhöld sem afleiðingar 

Grein Jóns SteinarsMorg­un­blaðið birtir grein fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara í dag um sjálfs­á­byrgð nauð­gana.

Í grein sinni fjallar Jón Steinar um að umræða um kynferðis­brot hafi verið talsverð að undan­förnu og í því samhengi hafi því verið haldið á lofti að brotamenn sleppi við refsingar sökum þess að erfitt reynist að sanna á þá sakir. Þó hafi nokkuð verið um að slíkir menn séu engu að síður nafn­greindir á opinberum vettvangi. „Veldur þetta þeim stundum velferðar­missi, brott­rekstri úr vinnu eða útskúfun frá þátttöku í íþróttum svo dæmi séu nefnd,“ skrifar Jón Steinar.

Í fram­haldinu rekur Jón Steinar svo þá skoðun að ein hlið sé þessum málum sem lítið hafi verið rædd og sumir telji að helst megi ekki minnast á. „Þar á ég við áfengis- og vímu­efnanotkun langflestra sem þurfa að upplifa þá dapurlegu lífs­reynslu sem hér um ræðir, bæði brotamenn og brotaþola.“

Jón Steinar fullyrðir að áfengi og vímuefni orsaki kynferðis­brotin.

„Ég tel að áfengis- og vímu­efnanotkun sé ráðandi áhrifa­þáttur í langflestum þessara brota. Afleiðingar hennar geta auk nauðgana og annarra ofbeldis­brota verið ótíma­bærar þunganir, vanræksla og jafnvel misnotkun barna, fóstur­eyðingar, forsjár­sviptingar, skaðleg andleg áhrif á börn, framhjáhöld,  slys og ótímabær andlát. Þó að enginn vafi sé á, að þessi neysla sé stærsti áhrifa­þátturinn í bölinu, heyrast þær skoðanir að á þetta megi helst ekki minnast. Til dæmis megi ekki vara, oftast konur, við vímu­efnanotkun á skemmtistöðum. Með því sé verið að réttlæta brot misindis­manna, sem á þeim brjóta. Þetta er auðvitað hálf­gerður þvættingur, sem á líklega rót sína að rekja til þess að svo margir vilja geta þjónað áfengis­nautn sinni í frið.“

Aðeins 13% mála enda með sakfellingu

Baráttu­fólk gegn kynferðis­ofbeldi hefur ítrekað og árum saman bent á að gerendur bera ábyrgð á brotum sínum en brota­þolar ekki. Það að fólk sé undir áhrifum vímugjafa hafi ekkert með þá ábyrgð að gera.

„Umfjöll­unin sýnir að við­horf sem lit­ast af nauðg­un­ar­mýtum eru til staðar meðal dóm­ara í Hæsta­rétti og innan hér­aðs­dóm­stóla“
Þór­hildur Sæmunds­dóttir og Þor­gerður J. Ein­ars­dóttir

Meðferð réttar­vörslu­kerfisins á málum er varða kynbundið ofbeldi hefur sætt gagnrýni um langt skeið. Tölur sýna að flestar tilkynningar um kynferðislegt ofbeldi til lögreglu fara ekki fyrir dóm. Aðeins um 17 prósent tilkynntra nauðgunar­mála eru tekin fyrir hjá dómstólum og þar af enduðu aðeins 13 prósent þeirra með sakfellingu.

Í grein Þórhildar Sæmunds­dóttur, kynja­fræðings og meistara­nema í lögfræði, og Þorgerðar J. Einars­dóttur, prófessors í kynja­fræði, „Hún reyndi ekki að kalla á hjálp...“ sem birtist í Ritinu árið 2018, eru niður­stöður Hæstaréttar í nauðgunar­málum greindar. Jón Steinar gengdi embætti dómara við Hæstarétt á árabilinu 2004 til 2012.  

Í grein þeirra Þórhildar og Þorgerðar kemur fram að 85 dómar Hæstaréttar í nauðgunar­málum á árabilinu 1992 til 2015 hafi verið greindir við rann­sóknina. „Umfjöllunin sýnir að viðhorf sem litast af nauðgunar­mýtum eru til staðar meðal dómara í Hæstarétti og innan héraðs­dómstóla. [...] Þrátt fyrir miklar breytingar á kynferðis­brota­kaflanum árið 2007 má enn greina viðhorf þar sem brotin virðast einungis skoðuð út frá sjónar­hóli geranda. Umfjöllunin gefur til kynna að „réttur karla sé verð­mætari en réttur kvenna.“

Meðal mála sem vitnað er til þar er dómur frá árinu 2013 þar sem Hæstiréttur sýknaði tvo menn af því að hafa nauðgað konu. Þar er tilgreint að meirihluti dómara hafi í dómnum sagt um vitnis­burð stúlkunnar að ekki hafi verið samræmi í vitnis­burði hennar hjá lögreglu og fyrir dómi. „Eins og sést að ofan telur Hæstiréttur það mikilvægt hvaða tegund og magn áfengis stúlkan drakk umrætt kvöld,“ segir í grein þeirra Þórhildar og Þorgerðar.

Vísað er til annars máls í greininni þar sem brotaþoli var mikið ölvuð þegar brotið átti sér stað. Ölvunin hafi í dómi héraðs­dóms, sem Hæstiréttur staðfesti árið 2008, verið metin konunni til hagsbóta við vitnis­burð hennar og henni sýndur skilningur þegar fram­burður hennar var metinn. „Slík viðhorf heyra til undan­tekninga í þeim dómum sem rann­sakaðir voru,“ skrifa þær Þórhildur og Þorgerður.

Gengið gegn vilja löggjafans við rannsókn kynferðisbrota

Í mars síðastliðnum kærðu níu konur íslenska ríkið til Mann­réttinda­dómsstóls Evrópu fyrir að hafa brotið á rétti þeirra til rétt­látrar máls­meðferðar. Konurnar áttu það sameiginlegt að vera brota­þolar sem kært höfðu nauðganir, heimilsofbeldi og kynferðis­lega áreitni til lögreglu en mál þeirra voru felld niður af ákæru­valdinu.

Í kynningu þrettán kvenna- og jafnréttis­samtaka í mars síðastliðnum vegna kæru kvennanna níu kom meðal annars fram að auk ýmissa alvarlegra annmarka við rannsókn lögreglu almennt þegar kæmi að rannsókn kynferðis­brota gegn konum þá væri einnig gengið gegn vilja löggjafans, Alþingis, þegar kæmi að túlkun laganna þegar væru dómtekin. Þannig hefði í mörgum málum verið einblínt á „hvort að sakborningur hefði mátt gera sér grein fyrir því að brotaþoli hafi ekki veitt samþykki, t.d. sökum ölvunar­ástands, fermur en á það hvort hann hafi fengið samþykki, eins og lögin kveða á um.“

Umrædd kvenna- og jafnréttis­samtök, sem eru Aflið, Druslu­gangan, Femínista­félag Háskóla Íslands, Flóra, Kven­félaga­samband Íslands, Kvenna­athvarfið, Kvenna­hreyfing ÖBÍ, Kvenna­ráðgjöfin Kven­réttinda­félag Íslands, Rótin, Stígamót, W.O.M.E.N. og UN Women á Íslandi, krefja ríkið um að ráðast í ýmsar umbætur í mála­flokknum. Meðal þeirra er „að dómurum, saksóknurum, og lögreglu sé veitt fræðsla um vilja löggjafans varðandi þau ákvæði sem snúa að kynferðis­brotum og ofbeldi í nánum samböndum, og þá sérstak­lega nauðgunar­ákvæðið sem byggir nú á samþykki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár