Stéttamunur á upplifun ofbeldismanna á eigin brotum

Það er mik­ill munur á hvernig ein­stak­lingar upp­lifa brot sín eftir því hver sam­fé­lags­staða þeirra er, segir dokt­or­snemi sem rann­sakar við­horf þeirra sem hafa beitt ofbeldi til eigin brota.

Stéttamunur á upplifun ofbeldismanna á eigin brotum
Rann­sakar Katrín Ólafs­dóttir, dokt­or­snemi við Háskóla Íslands, hefur fram­kvæmt við­tals­rann­sókn við þá sem sjálfir hafa geng­ist við að hafa beitt ofbeldi. Mynd: HÍ

Mikill munur er á hvernig ger­endur ofbeldis upp­lifa og skýra brot sín eftir því hvaða stétt þeir til­heyra. Þetta sýnir rann­sókn sem er hluti af dokt­ors­verk­efni Katrínar Ólafs­dóttur. Rann­sóknin byggir á við­tölum við ein­stak­linga sem sjálfir skil­greina sig sem ger­endur ofbeldis. Í rann­sókn­inni greinir Katrín þeirra sögu og sjálfs­mynd og hvernig þeir stað­setja sig með til­liti til ofbeld­is­ins. 

„Það er mik­ill munur á hvernig ein­stak­lingar upp­lifa brot sín eftir því hver sam­fé­lags­staða þeirra er. Það er alveg skýr stétta­munur á hvað þessir ein­stak­lingar draga fram, hvað þeim finnst mik­il­vægt þegar þeir eru að skýra sín brot. Ein­stak­lingar af verka­stétt eru meira að hugsa um karl­mennsku­hug­myndir og hvernig þeir máta sig við þær á meðan ein­stak­lingar af mið­stétt eru meira að hugsa um hvort rétt sé að kalla brotin því nafni sem hefur verið lagt á þau: „Eru mín brot ofbeld­is­brot eða eru þau kannski eitt­hvað annað?““ segir Katrín.

„Ef maður setur þetta í sam­hengi við enn þá fræg­ari ein­stak­linga sem við sjáum sögur af í dag, hvernig við sjáum þetta end­ur­spegl­ast í frá­sögnum þekktra manna sem er verið að nefna sem ger­endur og þeirra við­brögð við því, þá finnst þeim þetta kannski erfitt vegna þess að þeir hafa notið frægðar og frama og eiga erf­ið­ara með það að staða þeirra sé mögu­lega að breyt­ast. Þá fara þeir í vörn.“

Katrín kynnir nið­ur­stöður sínar á Kynja­þingi Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands sem fram fer laug­ar­dag­inn 13. nóv­em­ber næst­kom­andi. Þar seg­ist Katrín ætla að setja nið­ur­stöður sínar í sam­hengi við nýj­ustu bylgju #metoo frá­sagna. Hvernig á að bregð­ast við henni og hvernig er hægt að læra. 

„Eru mín brot ofbeld­is­brot eða eru þau kannski eitt­hvað annað?“

Katrín segir að það sé áskorun að finna ein­stak­linga til að taka þátt í rann­sókn eins og þess­ari, þar sem for­senda er að ein­stak­ling­arnir hafi við­ur­kennt og geng­ist við því að vera ger­endur ofbeldis. Þeir ein­stak­lingar eru ekki á hverju strái. „Þeir eru það ekki. Það er mjög flókið að finna við­mæl­endur fyrir verk­efni eins og þetta en hins vegar kemur það á óvart þegar farið er af stað að það eru ein­stak­lingar sem gang­ast við sínum brotum og vilja að þeirra frá­sögn geti hjálpað ein­hverjum, svo ekki fleiri ein­stak­lingar gangi þennan veg. Flestir eru að hugsa um for­varn­ar­gildið,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár