„Óeðlilegt“ að maður á fertugsaldri hafi kynferðislegan áhuga á 16 ára unglingi

Það er tals­vert algengt að konur sem á ung­lings­árum áttu í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við miklu eldri menn leiti til Stíga­móta því upp­lifun þeirra er að þær hafi orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, segir tals­kona sam­tak­anna. Umboðs­maður barna segir að það auki hætt­una á ójafn­ræði í sam­böndum ef annar aðil­inn hefur yfir­burði vegna ald­urs, þroska og lífs­reynslu.

„Óeðlilegt“ að maður á fertugsaldri hafi kynferðislegan áhuga á 16 ára unglingi
Lög setja hömlur Lagalega séð eru ung­lingar börn fram að 18 ára aldri. Til sextán ára ald­urs er börnum ekki heim­ilt að vera lengur úti en til 22 á kvöldin. Myndin er svið­sett. Mynd: Shutterstock

Jófríður Ísdís Skafta­dóttir steig fram í síð­ustu viku og sagði frá því að hún hefði, fyrir sjö árum, þá 16 ára gömul, stundað kyn­líf með Þóri Sæmunds­syni, fyrr­ver­andi leik­ara, sem þá var 34 ára gam­all. Jófríður sagð­ist í sam­tali við Stundina hafa ákveðið að segja frá þessu eftir að við­tal við Þóri var sýnt í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik. Viðtalið vakti mikla athygli en yfir­skrift þess var: „Hreins­un­ar­eldur Þóris Sæmunds­sonar“ og í kynn­ingu þátt­ar­ins var sagt að Þórir hafi verið rísandi stjarna á íslensku leik­sviði en eftir að kyn­ferð­is­leg mynda­send­ing hans hafi kom­ist í hámæli árið 2017 hafi hann verið utan­garðs og fái hvergi vinnu.

Þórir Sæmunds­son í við­tali í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV.

Nokkrar konur greindu eftir þátt­inn frá sam­skiptum sínum við Þóri á sam­fé­lags­miðlum. Sam­skiptum sem þær segja að hafi átt sér stað þegar þær voru á aldr­inum 16 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár