Rakel hættir sem fréttastjóri um áramót

Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, mun láta af störfum um ára­mót. Starfs­mönnum frétta­stof­unnar var til­kynnt um þetta í morgun.

Rakel hættir sem fréttastjóri um áramót
Hættir Rakel hefur leitt frétta­stofu RÚV und­an­farin ár en sjálf hefur hún unnið á frétta­stofu stofn­un­ar­innar í meira en tvo ára­tugi. Mynd: RÚV

Rakel Þor­bergs­dóttir hefur sagt upp störfum sem frétta­stjóri Rík­is­út­varps­ins. Hún hefur gegnt starf­inu síðan 2014 en áður starf­aði hún sem frétta­maður hjá stofn­un­inni. Starfs­mönnum var til­kynnt þetta í morgun og var til­kynn­ing send fjöl­miðlum nú fyrir skömmu. 

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son vara­f­rétta­stjóri mun gegna starfi Rakelar frá ára­mótum en það verður aug­lýst laust til umsóknar á næsta ári. 

Í til­kynn­ingu frá RÚV er haft eftir Rakel að árin á RÚV hafi verið lær­dóms­rík, krefj­andi og skemmti­leg. „Ákvörðun mín var því ekki auð­veld, frétta­stofan er frá­bær vinnu­staður en það er öllum hollt að breyta til og takast á við nýjar áskor­anir,“ segir hún í til­kynn­ing­unni.

„Allar mæl­ingar stað­festa að frétta­stofa RÚV er sá mið­ill sem þjóðin reiðir sig á, treystir og leitar til, sér­stak­lega þegar mikið liggur við. Ég er gríð­ar­lega stolt af frammi­stöðu okkar fólks og það hefur verið heiður að fá að stýra þess­ari öfl­ugu og rót­grónu frétta­stofu síð­ustu ár. Ég kveð með sökn­uði og hlýju í garð minna góðu félaga á RÚV.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Almáttugur. Hún er svo ákveðin og réttsýn og lætur engan vaða yfir sig. Nú munu Sjálfstæðismenn eyðileggja endanlega RUV frettastofu. Hefur einhver þrýstingur verið á Rakel bak við tjöldin?
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Er Bogi Ágústsson ekki líka að hætta á næsta ári ?

    Fróðlegt verður að sjá hverja sjálfstæðisflokkurinn velur í störfin ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár