Fjölskyldan missti af vélinni til Íslands og er í felum í Kabúl

Hjón ásamt tveimur ungum börnum sínum sem ekki komust að flug­vél­inni sem átti að flytja fjöl­skyld­una frá Afganistan til Íslands í lok ágúst, nokkrum dögum eftir að Talí­banar tóku völdin í Kabúl, hafa að mestu verið í felum síðan. Konan segir í sam­tali við Stundina að hún hafi ótt­ast um líf barna sinna í mann­mergð­inni á flug­vell­inum og þurft að taka ákvörðun upp á líf og dauða þennan dag. Hún er læknir sem bjó á Íslandi fyrir rúmum ára­tug og segir ástandið í Kabúl verra en orð fái lýst, örvænt­ingin sé alls­ráð­andi.

Eftir að Talí­banar tóku völdin í Kabúl þann 15. ágúst síð­ast­lið­inn ákváðu íslensk stjórn­völd að bjóða um 120 afgönskum flótta­mönnum hæli hér á landi. Sérstök áhersla var lögð á að ná til fólks með tengsl við íslenskt sam­fé­lag en fyr­ir­séð var að erfitt gæti verið að koma fólki frá Afganistan þar sem aðstæður væru erf­iðar meðal ann­ars á flug­vell­inum í Kabúl. Þangað fór konan sem Stundin ræddi við ásamt eig­in­manni sínum og börnum nokkrum dögum eftir að Talí­banar tóku völdin í Kabúl. „Ég var hrædd um að týna börn­unum mínum í mann­fjöld­anum á flug­vell­inum. Ég var hrædd um að þau myndu detta og troð­ast undir. Við þurftum að taka erf­iðar ákvarð­anir og þær voru upp á líf og dauða,“ segir konan í sam­tali við Stundina. 

Bjó á Íslandi og er í hættu vegna jafnréttisbaráttu

Í sam­tal­inu lýsir konan aðstæðum í Afganistan og til­raun til að flýja í skjól …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár