Milljónir barna í Afganistan munu glíma við bráðavannæringu næstu vikur

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Unicef er áætlað að helm­ingur afganskra barna undir fimm ára aldri muni glíma við bráða­vannær­ingu á næstu vikum og mán­uðum. Yfirmenn Unicef, Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna og Mat­væla­á­ætl­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna í Afganistan segja skelf­ingar ástand ríkja í nær­ing­ar­málum barna og staða fæðu­ör­yggis sé veru­lega slæm um allt land.

Milljónir barna í Afganistan munu glíma við bráðavannæringu næstu vikur
Tví­burarnir Aisha og Youssef Tví­burarnir Aisha og Youssef, 4 mán­aða, fá með­höndlun við vannær­ingu á nýbura­deild í Herat sem nýtur stuðn­ings UNICEF. 90 nýburar fá nú með­höndlun á deild­inni þar sem pláss er fyrir 60. Mynd: UNICEF

Í Afganistan standa fjórtán milljón íbúar frammi fyrir alvar­legu fæðu­ó­ör­yggi og 95% heim­ila í þar í landi eiga ekki nóg að borða. Þá er einnig ljóst að 3,2 millj­ónir barna undir fimm ára aldri munu glíma við bráða vannær­ingu það sem eftir lifir þessa árs og ein milljón þeirra verður í bráðri lífs­hættu án með­höndl­unar. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu UNICEF. 

Hervé Ludovic De Lys, yfir­maður UNICEF í Afganistan og Mary Ellen McGroarty yfir­maður Mat­væla­á­ætl­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna, heim­sóttu borg­ina Herat í Afganistan sem nú er undir stjórn Talibana. Eftir tveggja daga heim­sókn ákváðu þau að senda frá sér sam­eig­in­legt neyðar ákall til heims­byggð­ar­innar vegna stöðu mála þar í borg sem og land­inu öllu. 

De Lys og McGroartyHerve Ludovic De Lys (UNICEF) og Mary-Ellen-McGroarty (WFP) heim­sækja dreif­ing­ar­mið­stöð Mat­væla­á­ætl­unar Sam­ein­uðu þjóð­ar­innar í Herat-borg þar sem rúm­lega þús­und heim­ili fá mat­ar­að­stoð.

Ófremdarástand í Herat 

Dag­blaðið The Washington Post fjall­aði í dag einnig um ástandið í borg­inni Herat undir stjórn Talibana. Þar segir að í þrjá daga og nætur hafa lík fjög­urra meintra mann­ræn­ingja hangið úr bygg­inga­krönum. Þrjú þeirra hafa verið látin hanga yfir fjöl­förnu umferð­ar­torgi fyrir alla borg­ar­búa að sjá. Talsmenn Talíbana í Herat hafa sagt gjörn­ing­inn vera skila­boð um ekk­ert umburð­ar­lyndi og skjóta rétt­vísi fyrir þá sem brjóta lögin.

Skilaboð TalibanaLík manna hafa verið hengd upp í bygg­ing­ar­krana í Herat borg í Afganist­arn sem skila­boð um að Tali­banar líða ekki lög­brjóta.

Síð­ast­lið­inn þriðju­dag var önnur óhugn­an­leg til­raun gerð til þess að sýna fram á afstöðu Talibana gegn glæpum í borg­inni Herat. Lík þriggja meintra ræn­ingja voru látin hanga úr bygg­ingar gröfum fyrir alla að sjá. Þessar refs­ingar Talibana hafa ekki verið til­kynntar í öðrum borgum lands­ins fram að þessu.

Gat ekki lengur haft barnið á brjósti

De Lys og McGroarty hittu í Herat móð­ur­ina Jahan Bibi sem á 18 mán­aða gamla dóttur sem nú liggur inni á sjúkra­húsi í borg­inni til að fá með­ferð við alvar­legri bráða­vannær­ingu. Jahan kom með dóttur sína vannærða á sjúkra­húsið því hún gat ekki lengur gefið henni brjóst vegna hung­urs. „Við eigum engan mat heima. Við erum að selja allt sem við eigum til að kaupa mat, en samt á ég ekk­ert að borða. Ég er veik­burða og fram­leiði ekki neina mjólk fyrir barnið mitt,“ sagði Jahan. 

Samkvæmt könnun sem Mat­væla­á­ætlun Sam­ein­uðu þjóð­anna lét fram­kvæma kom í ljós að 95% af heim­ilum í Afganistan fá ekki nóg að borða. Full­orðnir borði minna og sleppi mál­tíðum svo börn þeirra geti fengið meira. „Við höfum gríðar miklar áhyggjur af þessum fórnum sem fjöl­skyldur neyð­ast til að færa,“ segir McGroarty. 

„Ég er veik­burða og fram­leiði ekki neina mjólk fyrir barnið mitt“
Móðir í Herat
Jahan Bibi

„Ef Við gerum ekki meira núna mun vannær­ing aðeins verða stærra vanda­mál og alvar­legra. Alþjóða­sam­fé­lagið verður að láta af hendi fjár­magnið sem okkur var lofað fyrir nokkrum vikum. Ef ekki, gætu áhrifin orðið óaft­ur­kall­an­leg.“

Að sögn De Lys hrakar heilsu barna og mæðra í Afganistan mjög hratt meðal ann­ars vegna þess að þau hafa ekki aðgang að hreinu vatni. „Börn eru að veikj­ast og fjöl­skyldur geta ekki sótt nauð­syn­lega með­ferð. Faraldur misl­inga og nið­ur­gangs vegna óhreins vatns mun aðeins auka á þessa neyð,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár