Siggi Hakkari kominn í síbrotagæslu

Sig­urð­ur Þórð­ar­son, eða Siggi hakk­ari eins og hann er kall­að­ur, hef­ur und­an­far­in ár náð að svíkja út tugi millj­óna úr ís­lensk­um fyr­ir­tækj­um. Sig­urð­ur er skráð­ur fyr­ir fjöld­ann af hluta­fé­lög­um og fé­laga­sam­tökum sem hann not­ast við. Í við­tali við Stund­ina, fyrr á árinu, ját­aði hann svik og skjala­fals­an­ir.

Siggi Hakkari kominn í síbrotagæslu

Sigurður Þórð­ar­son, eða Siggi hakk­ari eins og hann er betur þekktur, var dæmdur í síbrota­gæslu í þar­síð­ustu viku. Sigurður situr nú á Litla hrauni. Þetta stað­festir Húnbogi J. Andersen, lög­maður Sigurður, í sam­tali við Stundina. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var Sigurður hand­tek­inn þann 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sama dag og hann kom frá Spáni. Hann var svo dæmdur í síbrota­gæslu Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og sendur strax dag­inn eftir á Litla Hraun. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu óskaði eftir að Sigurður yrði settur í síbrota­gæslu.

Síbrota­gæsla er ekki algengt úrræði og er aðeins beitt að sér­stökum skil­yrðum upp­fylltum. Samkvæmt lögum er heim­ilt að úrskurða sak­born­ing sem er til rann­sóknar í síbrota­gæslu ef ástæða þykir til að ætla að hann muni halda áfram að fremja lög­brot á meðan við­kom­andi mál er til rann­sóknar. Tekið er mið af per­sónu­legum og félags­legum aðstæðum, sak­ar­feril og hót­unum um áfram­hald­andi brota­starf­semi. Ákvörð­unin á að byggja á heild­ar­mati  máls­at­vika hverju sinni. Lögunum er fyrst og fremst beitt þegar um síafbrota­menn er að ræða.

Heim­ildir Stund­ar­innar herma að ástæðan fyrir því að Sigurður var dæmdur í síbrota­gæslu sé fjöldi fjársvika­mála og til­rauna til fjársvika sem eru til rann­sóknar hjá lög­reglu. Þá er til rann­sóknar grunur um að hann hafi falsað und­ir­skrift eigin lög­manns til að láta líta út fyrir að greitt hafi verið fé inn á reikn­inga fyr­ir­ækis sem Sigurður er sjálfur hlut­hafi í.

Sigurður hefur not­ast við fjölda fyr­ir­tækja og félaga­sam­taka til að svíkja tugi millj­óna króna af ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum á und­an­förnum árum. Þá hefur hann áður verið dæmdur fyrir fjár­svik fyrir tugi millj­óna. 

Sveik fé af fjölda fyrirtækja

Meðal þeirra fyr­ir­tækja sem lög­reglan er að rann­saka í dag er ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Northern Tours, en það var stofnað árið 2016 af Dan Sommer og Stefáni Laurence Stef­áns­syni. Reksturs félags­ins var erf­iður og skil­aði aldrei hagn­aði heldur var millj­óna tap á rekstr­inum á þeim fjórum árum sem það starf­aði. 

Ekki var mikil starf­semi í fyr­ir­tæk­inu á þeim tíma sem það starf­aði, en í byrjun sept­em­ber 2019 virð­ist starf­semin fara á fullt. Stundin hefur undir höndum gögn sem sýna að á ein­göngu tveimur mán­uðum, í sept­em­ber og októ­ber 2019, tókst félag­inu að sækja vörur og þjón­ustu fyrir um 11 millj­ónir króna. Á þessum tíma var rík­is­skatt­stjóri búinn að til­kynna eig­endum fyr­ir­tæk­is­ins að árang­urs­laust fjár­nám hefði átt sér stað hjá því. Þá var Creditinfo einnig búið að til­kynna eig­endum að þeir væru á leið á van­skila­skrá. Þrátt fyrir þessar til­kynn­ingar fóru eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins að stofna til skulda hjá fyr­ir­tækjum úti um allan bæ. Leigðir voru lúx­us­bílar fyrir um tvær og hálfa milljón króna á tíma­bil­inu og borðað á veit­inga­stöðum fyrir um 300 þús­und krónur. Þá voru keyptar tölvur og símar fyrir um eina og hálfa milljón króna. 

Sigurður hefur not­ast við fjölda fyr­ir­tækja und­an­farin ár til að svíkja út tugi millj­óna króna

Margir tóku þátt í að sækja vörur

Í gögnum sem Stundin hefur undir höndum sést að margir tóku þátt í að panta vörur og þjón­ustu á reikn­ing Northern Tours. Allt voru þetta aðilar tengdir Sigurði Þórð­ar­syni og Dan Sommer. Samkvæmt gögn­unum voru sóttar þrjár bif­reiðar til bíla­leig­unnar Hertz á einum degi. Dan Sommer sótti tvær og Helgi Snær Krist­jáns­son eina. Þá náðu Nertil Lila og Helgi Snær Krist­jáns­son í nokkra síma í Tölvutek fyrir um 300 þús­und krónur. Dan Sommer sótti leikja­tölvu og annan tölvu­búnað einnig fyrir um 300 þús­und krónur. Í sam­tali við Stundina segir Dan Sommer að hann hafi ein­göngu verið að sækja þessar vörur fyrir Sigurð Inga en ekki sjálfan sig. „Ég var bara að sækja þetta fyrir Sigga, ekki fyrir mig. Hann hringdi í mig og bað mig um að sækja hitt og þetta fyrir sig. Hann var alltaf að vakna svo seint og svona, svo hann bað mig um að sækja hitt og þetta.“ 

Dan Sommer segir að Sigurður hafi keypt félagið af sér um sum­arið 2019. Þegar hann var spurður hvað kaup­verðið hafi verið og hvort Sigurður hafi í raun greitt fyrir félagið sagð­ist hann ekki vita það alveg. Samkvæmt til­kynn­ingum til fyr­ir­tækja­skrár rík­is­skatt­stjóra kemur fram að Sigurður Ingi hafi ekki verið skráður fyrir félag­inu fyrr en í lok nóv­em­ber 2019, eftir að búið var að skuld­setja félagið tals­vert á þessum tveim mán­uðum. Stuttu seinna skráðu Dan Sommer og Stefán Laurence Stef­áns­son sig úr félag­inu alfarið og sat því Sigurður uppi með skuldir félags­ins.  

„Hug­myndin með félög­unum var að kreista út hverja ein­ustu krónu og á end­anum færi það í þrot“
Sigurður Þórð­ar­son
Sigurður ját­aði fyrir blaða­manni Stund­ar­innar að eini til­gangur þess­ara félaga hafi verið til að svíkja út fé

Játning Sigurðar

Sigurður mætti í við­tal hjá Stund­inni vegna máls­ins á sínum tíma. Í byrjun við­tals­ins neit­aði Sigurður Ingi ítrekað að svara spurn­ingum blaða­manns um úttektir sem voru gerðar fyrir hönd Northern Tours ehf. Eftir nokkuð langt sam­tal ját­aði Sigurður Ingi loks allt.

„Hug­myndin með félög­unum var að kreista út hverja ein­ustu krónu og á end­anum færi það í þrot af því að skatt­ur­inn myndi fara fram á gjald­þrota­beiðni og myndi þá leggja út pen­ing­inn fyrir því,“ segir Sigurður. „Er þetta ólög­legt? Nei, þetta er mjög sið­laust, ég er sam­mála því. Ég veit ekki til þess að ein­hver hafi verið dæmdur fyrir svona.“

Við­ur­kenndi hann að það hafi átt að ná sem mestu af fyr­ir­tækjum með reikn­ings­við­skiptum við Northern Tours. Aðspurður ját­aði Sigurður að hann vissi að hvorki hann né fyr­ir­tækið myndi nokkurn tím­ann fara að greiða fyrir þær vörur sem hann tók út á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. Eins og kom fram hér að ofan þá náðu Sigurður og félagar hans að svíkja út vörur fyrir um 11 millj­ónir króna á ein­göngu tveggja mán­aða tíma­bili. Þá ját­aði Sigurður einnig fyrir blaða­manni að hann hafi ítrekað falsað und­ir­skriftir á papp­írum sem sendir voru inn til rík­is­skatt­stjóra vegna skrán­ingar félaga sinna og hækkun hluta­fjár í félögum í hans eigu.

Er það ekki rétt að þú vissir að allar þessar vörur sem þú og vinir þínir voru að sækja myndu aldrei verða greiddar?

„Já, ég vissi það,“ svar­aði Sigurður Ingi. 

Þú fals­aðir und­ir­skriftir?

„Já,“ svar­aði Sigurður Ingi. 

„Ég veit ekki til þess að ein­hver hafi verið dæmdur fyrir svona.“
Sigurður Þórð­ar­son

Kærður fyrir að svíkja út kjúkling 

Eftir að Sigurður ját­aði við blaða­mann að hafa svikið um 11 millj­ónir króna af ýmsum fyr­ir­tækjum, í gegnum Northern Tours, spurði blaða­maður út í öll hin félögin sem Sigurður hefur átt og sett í þrot. Þegar hann var spurður hvort eini til­gangur þess­ara félaga hafi verið að svíkja fé út úr íslenskum fyr­ir­tækjum ját­aði hann því. Meðal fyr­ir­tækja sem Sigurður er að nota í dag til að svíkja út vörur er Fiix Innovation ehf. Með því félagi tókst honum meðal ann­ars að svíkja út kjúkling frá Ísfugli fyrir um eina og hálfa milljón í þremur send­ingum. Þetta stað­festir Jón Magnús Jónsson, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi Ísfugls. Í sam­tali við Stundina segir Jón að fyr­ir­tækið sé búið kæra málið og að það verði farið fyrir dóm á næstu vikum. 

Sigurður Ingi er einnig skráður fyrir mörgum félaga­sam­tökum. Sigurður Ingi hefur einnig notað þau til að svíkja út vörur. Þetta við­ur­kenndi Sigurður Ingi fyrir blaða­manni Stund­ar­innar. Eitt þeirra, Lit­bolta­fé­lag Íslands, var notað til að svíkja vörur úr heild­söl­unni Ásbjörn Ólafsson ehf. Um var að ræða sæl­gæti og bíla­hreinsi­vörur fyrir um 400 þús­und krónur. Í sam­tali við Stundina segir Guð­mundur K. Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Ásbjarnar Ólafs­sonar ehf., að Sigurður Ingi hafi reynt að nota önnur félög í sinni eigu til að reyna að svíkja meira út úr fyr­ir­tæk­inu, en það hafi verið stoppað af. Í sam­tali við Stundina við­ur­kennir Sigurður Ingi að hann hafi notað Lit­bolta­fé­lag Íslands til að svíkja út vörur frá þeim.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár