Logi kallar umræðu um Kristrúnu „atlögu að lýðræði“

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði „dag­blöð sér­hags­muna­afl­anna“ gera aðför að lýð­ræð­inu með sér­kröfum á hendur Kristrúnu Frosta­dóttur um að gefa upp upp­lýs­ingar um fjár­hag sinn, eftir fréttir af hátt í 100 millj­óna króna hagn­aði hennar af kaup­rétt­ar­samn­ingum. Kristrún sagð­ist hins vegar áður skilja gagn­rýn­ina.

Logi kallar umræðu um Kristrúnu „atlögu að lýðræði“
Logi Ein­ars­son Sagði umfjöllun um fjár­mál Kristrúnar Frosta­dóttur ótrú­lega í leið­togaum­ræðum á RÚV í kvöld. Mynd: RÚV

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir umfjöllun hags­muna­tengdra fjöl­miðla um fjár­mál Kristrúnar Frosta­dóttur, odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður, vera „aðför að lýð­ræð­inu“. 

Kristrún svar­aði ekki blaða­manni Við­skipta­blaðs­ins sem vann frétt um hagnað hennar af kaup­rétt­ar­samn­ingi þegar hún starf­aði í Kviku banka, en hann er sagður hafa nálg­ast 100 millj­ónir króna. Kristrún brást síðan harka­lega við umfjöll­un­inni.

„Sam­an­tekin ráð virð­ast nú vera hjá MBL og Við­skipta­blað­inu að gef­ast upp á að ræða um mína póli­tík á efn­is­legum grunni og reyna nú bara að keyra kon­una niður með smjör­klípum, óhróðri, gera lítið úr jafn­að­ar­manna­skoð­unum mínum,“ sagði hún á Twitter.

Hæfileikarík kona þurfi að svara meiru

„Hefði ekki verið eðli­leg­ast að koma strax fram og svara þessum spurn­ingum,“ var Logi spurður í leið­togaum­ræðum á RÚV í kvöld, „í stað þess að grípa til klækju­stjórn­mála og saka blaða­menn um und­ar­legar hvatir“?

„Mér finnst eig­in­lega alveg ótrú­legt að ung kona, hæfi­leik­a­rík kona, sem hefur ótrú­lega margt fram að færa í umræð­unni núna fyrir kosn­ingar, sé krafin af dag­blöðum sér­hags­muna­afl­anna um að gefa meiri upp­lýs­ingar um sinn per­sónu­legan fjár­hag heldur en nokkur annar stjórn­mála­maður hefur þurft að gera. Kristrún Frosta­dóttir hefur svarað og svarið hennar stendur. Sam­fylk­ingin er hins vegar vön þessu úr þessum áttum sem þetta kemur. Og við tökum þessu bara af æðru­leysi.“

„Hræðsluáróður og atlaga að lýðræðinu“

Þegar Baldvin Þór Bergsson, frétta­maður RÚV, sagði að Sam­fylk­ingin hefði áður gagn­rýnt ef eitt­hvað teld­ist  „und­ar­legt í fjár­málafor­tíð hjá öðrum stjórn­mála­flokkum“, sagði Logi óboð­legt að hún þyrfti að gefa meiri upp­lýs­ingar en aðrir og ekki hafi verið um neitt mis­ferli að ræða.

„Það er óboð­legt að hún sé krafin um meiri upp­lýs­ingar um sinn fjár­hag, heldur en aðrir hérna við borðið.“
Logi Ein­ars­son

„Þessu var öllu svarað. Við höfum stigið fram þegar fólk hefur verið upp­víst að mis­ferli. Hér var ekki um neitt slíkt að ræða. Ég end­ur­tek, að það er óboð­legt að hún sé krafin um meiri upp­lýs­ingar um sinn fjár­hag, heldur en aðrir hérna við borðið. Og ég vil kalla þetta næstum því ein­hvers konar hræðslu­á­róður og atlögu að lýð­ræði til þess að hræða ungt og hæfi­leik­a­ríkt fólk frá því að taka þátt í stjórn­málum. Og ég tek ekki þátt í því og styð hana.“

Kristrún segir kaupréttarkerfið ekki sanngjarnt

Kristrún sagði í sam­tali við Stundina að hún teldi að fólk sem væri í þeirri stöðu að njóta kaup­rétta ætti að greiða meira til sam­fé­lags­ins, enda fengju ekki allir sömu tæki­færi. „Ég held að það sé mjög mik­il­vægt að ein­stak­lingar sem eru í þess­ari stöðu séu með­vit­aðir um það og séu þá til­búnir að leggja meira til sam­fé­lags­ins vegna þess að mjög eðli­lega hugsar fólk þarna úti: Ég fékk ekki þessi tæki­færi og ég get ekki ávaxtað mitt fé á sömu for­sendum ...“

Þá sagði Kristrún kerfið ekki vera byggt upp með sann­gjörnum hætti. „Þannig að ég get kannski ekki farið út í díteila um það en ég á ekk­ert erfitt með að full­yrða það að mér finnst ekki sann­gjarnt hvernig kerfið er upp­byggt, það liggur alveg fyrir.“ 

Hún neitar að svara um hagnað sinn af kaup­rétt­ar­samn­ingum og vill ekki ganga svo langt, í svörum sínum til Stund­ar­innar, að segja að hún muni beita sér gegn slíkum samn­ingum, verði hún fjár­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár