524. spurningaþraut: Ríki kennd við liti?

524. spurningaþraut: Ríki kennd við liti?

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá tón­list­ar­mann Pat Metheny spila á gítar sem Linda Manzer smíð­aði sér­stak­lega fyrir hann. Gítar þessi var nefndur í höf­uðið á ákveðnum mynd­list­ar­manni og var nafn­giftin ekki út í loftið. Hver var sá mynd­list­ar­maður?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Það er djamm í kvöld og það er djamm á morgun og ekki á morgun heldur hinn og hinn og hinn og hinn og hinn ...“ Hver mælti svo — FRESH FRESH?

2.  Hvaða lið hefur oft­ast orðið Íslands­meist­ari í hand­bolta karla?

3.  Hve langt er (nokkurn veg­inn) frá Skúla­götu í Reykja­vík í beinni loft­línu að rótum Esjunnar? Eru það 10 kíló­metrar — 15 kíló­metrar — 20 kíló­metrar — 25 kíló­metrar eða 30 kíló­metrar?

4.  En yfir hvaða fjörð liggur sú beina loft­lína?

5.  Í hvaða landi er Kíl­ar­skurður?

6.  Einn æðsti valda­maður til­tek­ins ríkis í síð­ari heims­styrj­öld hét Tojo. Hvaða ríki er hér um að ræða?

7.  Sunna Val­gerð­ar­dóttir heyr­ist iðu­lega nefnd í fjöl­miðlum. Hvað er hennar starf?

8.  Tvö sjálf­stæð ríki í Evrópu kenna sig á einn eða annan hátt við liti. Hvaða ríki eru það?

9.  Í hvaða núver­andi ríki bjuggu Aztekar þá þeir komu mest til sögu stór­við­burða?

10.  „Ég hef aldrei vitað aðra eins sjó­ferð, því ekk­ert okkar hafði vit á sjó. Nei, ég vildi miklu heldur vinna í ...“ Hvar þá?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heita systk­inin á mynd­inni hér að neðan? Jú, mig vantar bæði nöfnin.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Steindi.

2.  Valur.

3.  Tíu kíló­metrar.

4.  Kolla­fjörð.

5.  Þýska­landi.

6.  Japan.

7.  Frétta­maður.

8.  Svart­fjalla­land og Hvíta-Rússland.

9.  Mexíkó.

10.  Skógerð. (Sjá hér.)

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Gítarinn á efri mynd­inni var nefndur eftir Pablo Picasso.

Picasso

Ástæðan var nátt­úr­lega sú að þessi sér­kenni­legi smíð­is­gripur þótti minna á kúbista-mál­verk Picassos.

Þar er allt á skakk og skjön eins og alkunna er.

Hér má til dæmis sjá por­trett af Picasso eftir annan kunnan kúbista, Juan Gris.

Á neðri mynd­inni eru Anna og Andrés, prinsessa og prins af Bret­landi, börn Elísa­betar drottn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár