Vinkonan stígur fram vegna orða Kolbeins og segir söguna alla

Jóhanna Helga Jens­dóttir seg­ist hafa verið með áverka í nokkrar vikur eftir að hafa hitt lands­liðs­mann­inn Kolbein Sig­þórs­son og orðið fyrir því sem hann neitar að hafi verið ofbeldi.

Vinkonan stígur fram vegna orða Kolbeins og segir söguna alla
Jóhanna Helga Jens­dóttir Birti yfir­lýs­ingu á Facbeook um árás Kolbeins Sig­þórs­sonar, lands­liðs­manns í knatt­spyrnu, haustið 2017, sem hann sagði ekki hafa verið ofbeldi. Mynd: Facebook / Jóhanna Helga Jensdóttir

„Þetta kvöld veitt­ist Kolbeinn Sig­þórs­son að mér með þeim afleið­ingum að ég hlaut áverka og það sá á mér í nokkrar vikur á eftir,“ segir Jóhanna Helga Jens­dóttir, sem stödd var á skemmti­staðnum B5 haustið 2017, þegar knatt­spyrnu­lands­liðs­mað­ur­inn Kolbeinn Sig­þórs­son kom að og sýndi á sér hegðun sem hann neit­aði í gær að hefði verið ofbeldi.

Sama kvöld er Kolbeinn sagður hafa veist að Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur. Báðar kon­urnar lögðu fram kæru á hendur Kolbeini, báðar segj­ast þær hafa fengið afsök­un­ar­beiðni og bætur frá honum. Í við­tali við RÚV á dög­unum greindi Þór­hildur Gyða frá sam­skiptum sínum við KSÍ vegna máls­ins og þar lýsti hún atvikum með þessum hætti: „Hann grípur sem sagt í klofið á mér. Síðan á sér stað lík­ams­árás aðeins seinna þar sem hann tekur mig háls­taki í stutta stund. Þar sem það skarst annar ein­stak­ling­ur­inn inn í. Ég var með áverka í tvær til þrjár vikur eftir hann. Strax dag­inn eftir fæ ég áverka­vott­orð og fer síðan niður á lög­reglu­stöð og legg fram kæru. Við vorum tvær sem urðum fyrir því sama af hans hálfu þetta umrædda kvöld og við fórum saman að kæra.“ 

Kolbeinn sagði í yfir­lýs­ingu í gær að hann kann­að­ist ekki við að hafa beitt ofbeldi, þótt hegðun hans hefði ekki verið „til fyr­ir­myndar“. „Ég kann­að­ist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neit­aði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyr­ir­myndar og baðst ég afsök­unar á henni,“ sagði í yfir­lýs­ingu hans. Kolbeinn sagði þar frá því að henni hefði greitt Stíga­mótum þrjár millj­ónir króna auk greiðslu til stúlkn­anna sem kvört­uðu undan honum. Jóhanna Helga hafnar atburða­lýs­ingu hans í yfir­lýs­ingu sem hún birti á Facebook rétt í þessu.

„Ég hef aldrei rætt þetta mál opin­ber­lega og er ástæðan sú að Kolbeinn gekkst við því sem hann gerði, baðst afsök­unar og iðr­að­ist að ég taldi. Fyrir það var hann í mínum huga maður að meiri,“ segir Jóhanna Helga. „Í gær kvað hins vegar við nýjan tón hjá Kolbeini er hann sendi frá sér yfir­lýs­ingu og neit­aði að hafa brotið á okkur. Ef hann beitti engan ofbeldi, hvers vegna bauð hann fram sátta­greiðslu og styrkti Stígamót sem beita sér gegn hvers konar kyn­bundnu ofbeldi. Hvar dregur Kolbeinn lín­una á því „að vera til fyr­ir­myndar“ og að beita ofbeldi?“

Yfirlýsing Jóhönnu Helgu Jensdóttur í heild

Að gefnu til­efni

Vegna yfir­lýs­ingar sem Kolbeinn Sig­þórs­son sendi frá sér til fjöl­miðla, þann 1. sept­em­ber s.l., sé ég mér ekki annað fært en að stíga fram og tjá mig um mál sem fram að þessu var lokið af minni hálfu.

Ég er títt­nefnda „vin­konan“

Föstu­dags­kvöldið 15. sept­em­ber 2017 var ég ásamt fleirum á skemmti­staðnum b5. Þetta kvöld veitt­ist Kolbeinn Sig­þórs­son að mér með þeim afleið­ingum að ég hlaut áverka og það sá á mér í nokkrar vikur á eftir. Þetta umrædda kvöld hafði Kolbeinn áður veist að Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur, eins og ítrekað hefur komið fram í fjöl­miðlum und­an­farna daga.

Ég fór með málið í hef­bundið ferli og lagði fram kæru hjá lög­reglu. Skömmu síðar fáum við Þór­hildur boð frá lög­manni um að skrifa undir þagn­ar­skyldu­samn­ing. Það skyldi vera gegn greiðslu upp á 300.000 kr. Ég afþakk­aði þetta boð og málið hélt áfram í hefð­bundnum far­vegi hjá lög­reglu. 

Skömmu síðar hafði annar lög­maður sam­band við mig til þess að reyna að leita sátta. Við tóku nokkrir fundir þar sem farið var yfir stöðu mála og á einum þeirra komu fram til­lögur að mögu­legum sáttum. Kolbeinn bauð okkur Þórhildi, hvorri fyrir sig 1.500.000 kr í sátta­greiðslu. Við sam­þykktum það með þeim fyr­ir­vara að hann myndi gang­ast við brotum sínum gegn okkur, augliti til auglits og biðja okkur afsök­unar á hegðun sinni og fram­ferði þetta kvöld. Þá settum við það sem skil­yrði hann myndi einnig gefa 3.000.000 kr til Stíga­móta, sem er eins og flestir vita ráð­gjafar- og fræðslu­mið­stöð sem berst gegn kyn­ferð­is­of­beldi. Þótti okkur Þórhildi það afar við­eig­andi í ljósi þess sem gerð­ist umrætt kvöld.

Kolbeinn var á þessum tíma upp­tek­inn í verk­efnum erlendis og hafði ekki tök á að koma til lands­ins. Úr varð að ég, Þór­hildur Gyða, faðir minn og lög­maður Kolbeins flugum út á sátt­ar­fund.  Á þeim fundi gekkst Kolbeinn við brotum sínum, sýndi iðrun og bað okkur inni­lega afsök­unar. Það var upp­lifun mín á þessum tíma að Kolbeinn væri ein­lægur í afsök­un­ar­beiðni sinni, hann sæi eftir því sem hann gerði og því skildum við „sátt“ og ég taldi mál­inu lokið af minni hálfu.

Ég hef aldrei rætt þetta mál opin­ber­lega og er ástæðan sú að Kolbeinn gekkst við því sem hann gerði, baðst afsök­unar og iðr­að­ist að ég taldi. Fyrir það var hann í mínum huga maður að meiri.  

Í gær kvað hins vegar við nýjan tón hjá Kolbeini er hann sendi frá sér yfir­lýs­ingu og neit­aði að hafa brotið á okkur. Ef hann beitti engan ofbeldi, hvers vegna bauð hann fram sátta­greiðslu og styrkti Stígamót sem beita sér gegn hvers konar kyn­bundnu ofbeldi. Hvar dregur Kolbeinn lín­una á því „að vera til fyr­ir­myndar“ og að beita ofbeldi? 

Ég vil taka það skýrt fram að Stígamót komu ekki nálægt þessu máli á neinn hátt, heldur fannst okkur, í kjöl­far þess sem gerð­ist, við­eig­andi að pen­ing­ur­inn færi þangað. Það er því ekki rétt að Kolbeinn hafi greitt 3 millj­ónir til Stíga­móta að eigin frum­kvæði eins og kemur fram í yfir­lýs­ingu hans, en hann sætt­ist á það.

Eins og ég sagði hér að ofan þá ætl­aði ég aldrei að stíga fram, en rétt skal vera rétt. Ég mun ekki tjá mig meira um þetta mál, þar sem því er lokið af minni hálfu, en sann­leik­ur­inn skal vera í fyr­ir­rúmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár