Nú, þegar mánuður er til kosninga, þá má búast við að orðið „stöðugleiki“ fari æ oftar að skjóta upp kollinum. Ríkisstjórnarflokkarnir munu allir þrír stíga fram og vitna um að þeim hafi tekist að tryggja stöðugleika jafnvel í heimsfaraldri og þeim einum sé treystandi til að viðhalda stöðugleikanum.
Þessu munu forkólfarnir tönnlast á: Viðhalda stöðugleikanum.
En guði forði okkur frá stöðugleika ríkisstjórnarflokkanna fjögur ár enn!
Ég hef eflaust minnst á það áður en mér fannst ansi merkilegt þegar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lýsti því í viðtali við Andrés Magnússon á Morgunblaðinu fyrir örfáum misserum að hún hefði gengið í að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki af því uppi hefði í samfélaginu verið svo hávær krafa um stöðugleika.
Tvær ríkisstjórnir hefðu sprungið með látum á rúmu ári og þjóðin hefði þráð stöðugleika.
Var einhver að grenja á stöðugleika?
Ég veit ekki hvort Katrín trúði þessu sjálf en þetta var allavega …
Athugasemdir