Landsmönnum utan trúfélaga fjölgar

Tæpur fjórð­ungur lands­manna standa utan trú­fé­laga eða hafa ótil­greinda skrán­ingu. Meðlimum fjölgar mest í ása­trú­ar­fé­lag­inu.

Landsmönnum utan trúfélaga fjölgar
Fjölgar mest Mestur vöxtur hefur verið í með­lima­fjölda ása­trú­ar­fé­lags­ins. Mynd: Wikipedia/Haukurth

Lands­mönnum sem standa utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga eða hafa ótil­greinda skrán­ingu hefur fjölgað um tæp­lega 3.500 frá 1. des­em­ber síð­ast­liðnum. Tæpur fjórð­ungur lands­manna er ýmist skráður utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga eða með ótil­greinda skrán­ingu.

Sem fyrr er langstærstur hluti lands­manna skráður í þjóð­kirkj­una, tæp­lega tveir þriðju hlutar lands­manna, alls 229.686 manns. Lít­ils­háttar fækkun hefur orðið frá 1. des­em­ber, um 31 með­lim. Frá 1. des­em­ber árið 2019 hefur hins vegar fækkað um rétt tæp­lega 1.500 manns í þjóð­kirkj­unni.

Tæplega 57 þús­und manns eru með ótil­greinda skrán­ingu og hefur fjölgað um ríf­lega 2.300 manns frá 1. des­em­ber síð­ast­liðnum. Frá 1. des­em­ber 2019 hefur fjölgað um ríf­lega 5.500 manns í þeim hópi.

Tæplega 29 þús­und manns eru skráðir utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga og hefur þeim fjölgað um ríf­lega eitt þús­und frá 1. des­em­ber síð­ast­liðnum og um tæp­lega þrjú þús­und frá árinu 2019.

Helstu breyt­ingar aðrar á trú­fé­laga­skrán­ingu eru þær að áfram fækkar þeim sem skráðir eru í zuism trú­fé­lagið. Frá því á síð­asta ári hefur þeim fækkað um 185 og eru nú 731 skráðir í félagið. Í des­em­ber 2019 voru 1.255 manns skráðir í félagið. For­svars­menn félags­ins lýstu því yfir árið 2015 að þeir hyggð­ust end­ur­greiða sókn­ar­gjöld þeirra sem skráðir væru í félagið og á stuttum tíma skráðu yfir þrjú þús­und manns sig í félagið. Deilur stóðu um stjórn félags­ins lengi vel og engin starf­semi hefur verið í því um margra miss­era skeið, ef starf­semi var þá nokkurn tíma til staðar.

Mest fjölgun hefur orðið í ása­trú­ar­fé­lag­inu á tíma­bil­inu, um 257 með­limi og eru nú ríf­lega 5.300 manns skráðir í félagið. Meðlimum í lífs­skoð­un­ar­fé­lag­inu Siðmennt hefur á sama tíma fjölgað um 228 og eru þeir nú tæp­lega 4.300.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár