Engin Menningarnótt í Reykjavík

Neyð­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar hefur aflýst öllum við­burðum vegna Menn­ing­ar­nætur í Reykja­vík.

Engin Menningarnótt í Reykjavík
Menn­ing­arnótt aflýst Ákveðið hefur verið að aflýsa öllum við­burðum tengdum Menn­ing­arnótt í Reykja­vík, annað árið í röð, vegna Covid-19. Mynd: menningarnott.is

Á fundi í morgun ákvað neyð­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borg að engir við­burðir færu fram vegna Menn­ing­ar­nætur í Reykja­vík 21. ágúst næst­kom­andi. Er það gert vegna útbreiðslu Covid-19 smita í sam­fé­lag­inu. Menn­ing­arnótt er því aflýst, annað árið í röð, en hún hafði áður verið haldin óslitið frá árinu 1996

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg segir Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, for­maður borg­ar­ráðs, að ákvörð­unin sé tekin með hags­muni allra borg­ar­búa að leið­ar­ljósi. Mjög leitt sé að þurfa að aflýsa Menn­ing­arnótt annað árið í röð „en við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stuðla að sem eðli­leg­ustu lífi í borg­inni og órof­inni þjón­ustu“. Er þar ekki síst vísað til skóla­starfs í borg­inni og þjón­ustu við við­kvæma hópa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár