„Galopin landamæri eru ekki skammaryrði“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra vill end­ur­meta aðstæður þar sem flestir eru bólu­settir og segir stjórn­ar­and­stöð­una vilja „loka land­inu“ og tak­marka frelsi almenn­ings til fram­tíðar.

„Galopin landamæri eru ekki skammaryrði“
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Dóms­mála­ráð­herra segir mark­miðið ekki að telja smit til lengri tíma. Mynd: xd.is

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra gagn­rýnir leið­toga stjórn­ar­and­stöð­unnar og segir þá styðja mjög víð­tækar tak­mark­anir á frelsi almenn­ings, jafn­vel til langs tíma, vegna Covid-19 far­ald­urs­ins. „Það er ánægju­legt að sjá að 97% af þeim sem nú smit­ast séu nær ein­kenna­lausir,“ skrifar hún í grein í Morg­un­blað­inu í dag. „Með því er stærsta áfang­anum náð, enda mark­miðið ekki að telja smit til lengri tíma – heldur að koma í veg fyrir útbreidd alvar­leg veik­indi og sporna við álagi á heil­brigð­is­kerfið.“

Í grein­inni segir Áslaug Arna að rík­ari kröfur til stjórn­valda um að gæta með­al­hófs verði að gera eftir því sem lengra líður frá upp­hafi far­ald­urs og þekk­ing eykst. Aðgerðir megi ekki ganga lengra eða vara lengur en til­efni er til. „Þegar 90% full­orð­inna ein­stak­linga eru orðin bólu­sett þarf að slá nýjan takt í umræð­una, end­ur­meta aðstæður og leggja grunn að eðli­legu lífi á ný,“ skrifar hún.

Þá bendir hún á að aðgerð­irnar gildi til 13. ágúst og að á þeim tíma verði upp­lýs­inga aflað um hvernig og hve mikið bólu­settir veikj­ast. „Ég vona að stjórn­ar­and­stöð­unni auðn­ist ekki að slíta í sundur þá ein­ingu sem ríkt hefur meðal lands­manna í bar­átt­unni gegn veirunni. Talað er um stefnu­leysi á sama tíma og virtir sér­fræð­ingar hrósa rík­is­stjórn­inni fyrir vand­virkni og hóf­semi. Gagn­rýnin snýst öðru fremur um að of fljótt hafi verið farið í aflétt­ingar og í að láta af skimun bólu­settra inn í landið. Í þessu felst við­snún­ingur af hálfu stjórn­ar­and­stöð­unnar, enda byggðu ákvarð­an­irnar á til­lögu sótt­varna­læknis. Hingað til hafa þessar sömu raddir lagt mikið upp úr því að fylgja til­lögum hans í einu og öllu,“ skrifar hún.

„Upp­hróp­anir af því tagi lýsa upp­gjöf og úrræða­leysi“

Loks gagn­rýnir hún stjórn­ar­and­stöð­una fyrir upp­hróp­anir. „Sumir leið­togar stjórn­ar­and­stöð­unnar mæla fyrir því að „loka land­inu“, með til­heyr­andi stór­auknu atvinnu­leysi og tekju­tapi sam­fé­lags­ins. Minna fer fyrir til­lögum um aðrar leiðir til að skapa störf og um leið gjald­eyris- og skatt­tekjur til að halda áfram úti okkar öfl­ugu heil­brigðis-, mennta- og almanna­trygg­inga­kerfum. Galopin landa­mæri eru ekki skammar­yrði, heldur eðli­legur hluti þess að búa í frjálsu sam­fé­lagi og einn meg­in­grund­völlur hag­sældar í okkar litla og afskekkta landi. Sömu stjórn­mála­leið­togum finnst ekk­ert til­töku­mál að settar verði á mjög víð­tækar tak­mark­anir á frelsi almenn­ings, jafn­vel til langrar fram­tíðar. Upp­hróp­anir af því tagi lýsa upp­gjöf og úrræða­leysi og fá von­andi engan hljóm­grunn meðal kjós­enda í haust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár